Mynd: Heiða Helgadóttir

Fjármagnstekjur á hvern íbúa í Garðabæ og á Seltjarnarnesi um 1,8 milljón í fyrra

Mikill munur er á fjár­magnstekjum sem hver íbúi í Garðabæ og á Sel­tjarn­ar­nesi afl­aði í fyrra að með­al­tali og slíkum tekjum sem aðrir íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins öfl­uðu. Fjár­magnstekjur voru 17 pró­sent tekna í þessum tveimur sveit­ar­fé­lögum en tíu pró­sent allra tekna lands­manna.

Fjár­magnstekjur á hvern skatt­greið­anda í Garðabæ og á Sel­tjarn­ar­nesi voru um 140 pró­sent hærri að með­al­tali í fyrra en þær voru í Reykja­vík. Þegar skoð­aðar eru fjár­magnstekjur í stærri sveit­ar­fé­lögum lands­ins þá eru þær hvergi hærri en í þessum tveimur sveit­ar­fé­lögum og miklu hærri en í hinum sveit­ar­fé­lög­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. 

Þetta má lesa út úr nýbirtum tölum Hagstofu Íslands um tekjur lands­manna.

Meðaltal fjár­magnstekna á öllu land­inu í fyrra var 821 þús­und krónur. Ef horft er ein­vörð­ungu á sveit­ar­fé­lög sem eru með fjögur þús­und íbúa eða fleiri þá voru þær tekjur hæstar að með­al­tali í Garðabæ, 1.812 þús­und krónur, og á Sel­tjarn­ar­nesi, 1.768 þús­und krónur. Ekkert annað sveit­ar­fé­lag af slíkri stærð­argráðu nær að vera með fjár­magnstekjur á hvern íbúa sem eru yfir einni milljón króna. Í höf­uð­borg­inni Reykja­vík, sem er mið­stöð stjórn­sýslu og atvinnu­lífs …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Vá, skammarlegt að búa á Seltjarnarnesi. Ég ætla að flytja í Garðabæinn þar sem eru tvö stæði og leggja í bæði fyrir utan vínbúðanna.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár