Gamall heimur og nýr – íslenskar sviðslistir í Evrópu

Fram­tíðin mun ekki snú­ast um hval­veiðar, gervi­greind eða raf­byssur heldur mann­leg og skap­andi sam­skipti byggð á sam­eig­in­legum skiln­ingi og virð­ingu við sam­fé­lög sem eru okkur ólík. Sviðs­list­irnar eru kjör­inn vett­vangur fyrir slík sam­skipti, skrifar leik­hús­gagn­rýn­and­inn Sigríður Jóns­dóttir í grein um sviðs­listir í Evrópu – og hér á Íslandi.

Gamall heimur og nýr – íslenskar sviðslistir í Evrópu
Prag Íslend­ingar áttu sinn full­trúa á Prague Quadrennial. Mynd: Unsplash

Í nýliðnu sum­ar­leyfi á meg­in­landi Evrópu (nánar til­tekið í Aust­ur­ríki, Tékk­landi, Hollandi, Þýska­landi og Póllandi) dásam­aði ég tvennt; sam­göngur og sviðs­lista­menn­ingu. Ég læt borg­ar­skipu­lags­fræð­inga um að skrifa pistla um sam­göngu­mál þannig að sviðs­lista­menn­ingin verður hér til umræðu.  

Eftir örstutta við­komu í Vín­ar­borg tók við lest yfir landa­mærin til Tékk­lands á Prague Quadrennial, heims­við­burð þar sem leik­mynda­hönn­uðir og annað sviðs­lista­fólk frá öllum heims­hornum sýna verk sín á tveggja vikna langri hátíð. Skipu­lagi PQ má líkja við Fen­eyjat­ví­ær­ing­inn; hvert þátt­töku­land til­nefnir einn leik­mynda­hönnuð sem fær úthlutað sýn­ing­ar­rými til að sýna list sína.

Aðal­svæði PQ er Holešovice-mark­að­ur­inn hinum megin við Vltava-ána en hátíðin fer fram um alla borg­ina. Hægt er að horfa á leik­sýn­ingar, hlusta á annað lista­fólk segja frá vinnu­að­ferðum sínum og sjá unga sviðs­lista­nem­endur taka þátt í stórri alþjóð­legri hátíð. Orð fá varla lýst hversu magnað var að fá inn­sýn inn í hug­ar­heim lista­fólks frá öllum heims­hornum. Öll með mis­mun­andi sýn, öll með mis­mun­andi fag­ur­fræði, öll með sömu yfir­skrift sem að þessu sinni var undir orð­inu RARE (sjald­gæft) og á sama stað.

Leik­mynda­hönn­uð­ur­inn Brynja Björns­dóttir var full­trúi Íslands í þetta sinn en verk hennar var inn­blásið af verk­inu Til ham­ingju með að vera mann­leg eftir Sigríði Soffíu Níels­dóttur sem sýnt var í Þjóð­leik­hús­inu fyrr í vor. Í íslenska teym­inu voru einnig Rebekka Ingi­mund­ar­dóttir og Eva Signý Berger ásamt hópi íslenskra sviðs­lista­kvenna sem frömdu gjörn­inga í heim­inum sem Brynja skap­aði. Íslenska hópnum var tekið ein­stak­lega vel og vakti mikla lukku.

Íslensk list á flakki um Evrópu

Næst lá leiðin með flugi yfir nokkur evr­ópsk landa­mæri til Hollands. Íslenska sendi­ráðið í Belgíu stóð fyrir íslenskri menn­ing­ar­viku í Amster­dam, en sendi­ráðið hefur einnig umsjón með mál­efnum Íslend­inga í Hollandi. Á einni viku mátti líta á íslenska mynd­list og heyra íslenska tón­list í Cloud-gall­er­í­inu við Prinsengracht. Undir lok vik­unnar var leik­lestur á leik­verkum Tyrfings Tyrf­ings­sonar, Kart­öflu­æt­unum og Helgi Þór rofnar, sem bæði voru frum­sýnd í Borg­ar­leik­hús­inu á sínum tíma.

Leik­stjóri við­burð­ar­ins var Vincent van der Valk, sem lék einmitt í Sjö ævin­týrum um skömm eftir Tyrfing í Þjóð­leik­hús­inu, og er af íslenskum ættum. Móðir hans er dans­ar­inn og kenn­ar­inn Hlíf Svav­ars­dóttir, sem var list­rænn stjórn­andi Íslenska dans­flokks­ins um tíma en flutti sig síðan um set til Arnheim í Hollandi til að setja sitt mark á dans­heim­inn þar í landi.

Mikilvægt að sækja sér menntun erlendis

Á sama tíma og ég dvaldi í Amster­dam var Vincent að leika í The Making of Soros the Musical sem var sýndur í Bellevue-leik­hús­inu þar í borg. Leik­sýn­ingin fjallar um ævi banda­ríska auð­jöf­urs­ins George Soros sam­hliða ævi aðal­leikkon­unnar Lineke Rijxman. Leik­sýn­ingin er svið­sett af leik­hópnum De Mug met de gouden tand, eða Gull­tennta moskítóflugan á íslensku, lands­frægur sjálf­stæður leik­hópur sem hefur starfað í Hollandi síð­ast­liðin 35 ár, einn af fjöl­mörgum sjálf­stæðum hol­lenskum sviðs­lista­hópum.

Ein virtasta leik­kona Hollands, Chris Nietvelt, tók þátt í leik­lestr­inum. Nietvelt hefur lengi starfað við International Theater Amster­dam og dag­inn sem ég kvaddi borg­ina var til­kynnt að hin norska Eline Arbo myndi taka við af Ivo van Hove sem list­rænn stjórn­andi ITA. Arbo er menntuð í Osló en sótti fram­halds­menntun í leik­stjórn til Amster­dam þar sem hún hefur slegið í gegn á síð­ustu árum. Arbo er gott dæmi um hversu mik­il­vægt er fyrir ungt lista­fólk að sækja sér menntun erlendis, menntun sem skilar sér oftar en ekki til heima­lands­ins enda hefur hún svið­sett sýn­ingar í Noregi, þar á meðal Þjóð­leik­hús­inu í Osló, við mjög góðar und­ir­tektir.

Á leið minni aftur til Prag kom ég við í Vín­ar­borg, þar sem Wiener Festwochen var í gangi og sá The Confessions eftir Alex­ander Zeldin, sem er ungur enskur sviðs­lista­maður. Á síð­ast­liðnum árum hefur hann unnið í Englandi, Þýska­landi og Frakk­landi en leik­ritið fjallar um ástr­alska móður hans. The Confessions var heims­frum­sýnt í Vín­ar­borg og mun síðan ferð­ast um Evrópu á kom­andi mán­uðum. Hér er annað dæmi um mik­il­vægi alþjóð­legra tengsla. Zeldin er ungur lista­maður með alþjóð­leg tengsl sem setur mark­miðið hátt. Hann vinnur á alþjóð­lega vísu, talar um sér­tæk mál­efni (reynslu ástr­al­skrar móður sinnar) og fær þannig til sín heims­þekkt hæfi­leika­fólk, á borð við leikkon­una Pamelu Rabe, til að taka þátt í leik­sýn­ingum sínum.

Á stuttri við­komu í Prag til að sjá loka­metrana á PQ hitti ég sviðs­lista­kon­una Hall­veigu Kristínu Eiríks­dóttur sem stundar fram­halds­nám í Finn­landi. Í byrjun júlí liggur leið hennar til upp­sveita Slóvakíu til að taka þátt í hátíð­inni Into the Miracles með dans­dúettnum Kunn­ingjum (e. Acquaintances). Hópurinn er fram­lag Tjarn­ar­bíós/Íslands til hátíð­ar­innar en við­burð­ur­inn fer fram á 70 kíló­metra göngu­leið um sveitir Slóvakíu, sem áhorf­endur ganga á þremur dögum og upp­lifa lista­verk frá 40 alþjóð­legum lista­mönnum.

Varðveisla hugmynda og fagurfræði

Rúsínan í tékk­neska pyslu­end­anum var síðan dagslöng rútu­ferð um nær­sveitir Prag til að skoða forn­frægar leik­hús­bygg­ingar í Kacina, Tábor og Český Krumlov. Íslenska sál­ar­tetrið varð atómið eitt við að verða vitni að stór­feng­leika Český Krumlov-kast­al­ans, byggður árið 1240, og minnk­aði enn þá meira við að standa á 250 ára gömlu leik­sviði í einu best varð­veitta bar­rokk­leik­húsi heims­ins, bætt við kast­al­ann árið 1767 á meðan Íslend­ingar voru enn þá í torf­kofum með mold­ar­gólfum. Innviðir, tækja­bún­aður og leik­munir hafa verið varð­veitt og sum end­ur­byggð í upp­runa­legum stíl.

Síðasti við­komu­staður reisunnar var Kraká í Póllandi og heim­sókn í Cricoteka, glæný bygg­ing við bakka Vistula-ár í borg­inni, opnuð árið 2014. Cricoteka er til­einkað lista­mann­inum Tadeusz Kantor sem var einn helsti sviðs­lista­frum­kvöð­ull 20. ald­ar­innar en hann heim­sótti Ísland á Lista­há­tið í Reykja­vík vorið 1990 með heims­fræga leik­hópnum sínum Cricot 2, en hann lést 8. des­em­ber sama ár.

Í safn­inu má finna skjala­safn Kantor, sýn­ing­ar­sali, kaffi­hús og kennslu­stofur. Hér er ekki ein­ungis verið að geyma muni og skjöl heldur hug­mynda- og fag­ur­fræði. Ég mun aldrei gleyma til­finn­ing­unni sem smaug inn í lík­amann við að standa ein í sýn­ing­ar­salnum, eins og vofur for­tíð­ar­innar væru að taka á móti mér og krefj­ast þess að ég liti mér nær.

Sögulega er íslenskt stjórn­mála­fólk afar dug­legt að bera okkur saman við aðrar Norð­ur­landa­þjóðir, hvað við höfum það gott og menn­ing­ar­lega sér­stöðu. En sann­leik­ur­inn er sá að Ísland er ekki í sömu deild og aðrar Norð­ur­landa­þjóðir, mögu­lega ekki einu sinni í deild­inni þar á eftir heldur. Í vor átti ég erindi til Finn­lands til að hitta nor­rænt sam­starfs­fólk sem starfar á sviði leik­minja- og sviðs­lista­sögu en sömu­leiðis að heim­sækja leik­minja­safnið í Finn­landi sem flutti inn í glæ­nýtt heim­ili í gam­alli kap­al­verk­smiðju við höfn­ina fyrir nokkru. Hópurinn heim­sótti einnig Cirko, heim­ili sjálf­stæðra sirku­slista í land­inu, stað­sett á gömlu iðn­að­ar­svæði, og sá leik­sýn­ingu í glæ­nýju hús­næði Viirus-leik­húss­ins, sjálf­stætt og sænsku­mæl­andi leik­hús í mið­borg Helsinki.

Íslendingar ekki að byggja rými fyrir sviðslistir

Við á Íslandi stöndum í þeim sporum að Tjarn­ar­bíó, heim­ili sjálf­stæðra sviðs­lista í land­inu, var hárs­breidd frá lokun. Eftir neyð­ar­kall frá sen­unni og ótrú­lega elju var loks­ins hlustað, ríkið mun stíga inn og rekst­ur­inn heldur áfram í haust. Það er ekki sjálf­bær stjórnun eða upp­byggi­leg að ráða­fólk ríði inn á hvítum hesti til að redda mál­unum á síð­ustu stundu.

Þessi gjörn­ingur er bara enn annar plástur á opið svöðu­sár. Við erum ekki að byggja leik­hús eða end­ur­nýta rými fyrir sviðs­listir heldur að loka þeim. Við erum ekki að styðja við sviðs­lista­fólk þannig að þau geti dafnað heima og erlendis. Við erum ekki bara að standa okkur illa heldur afar illa.

En lista­fólkið okkar berst í bökkum eins og alltaf. Sviðs­lista­mið­stöð Íslands var sett á lagg­irnar í byrjun síð­asta árs með eitt stöðu­gildi. Friðrik Frið­riks­son hefur unnið mikið og gott starf en ekki er enda­laust hægt að hlaða mik­il­vægum verk­efnum á eina mann­eskju.

Íslenskt lista­fólk er að gera það gott á erlendri grund, þrátt fyrir gíf­ur­legt mót­læti og aft­ur­halds­semi heima fyrir. Við sem þjóð höfum alla burði og hæfi­leika til að vera virkir list­rænir þátt­tak­endur á alþjóð­legum vett­vangi, lista­fólkið okkar er fram­úr­skar­andi og áhug­inn fyrir landi og þjóð á meg­in­landi Evrópu svo sann­ar­lega til staðar.

Fram­tíðin mun ekki snú­ast um hval­veiðar, gervi­greind eða raf­byssur heldur mann­leg og skap­andi sam­skipti byggð á sam­eig­in­legum skiln­ingi og virð­ingu við sam­fé­lög sem eru okkur ólík. Sviðs­list­irnar eru kjör­inn vett­vangur fyrir slík sam­skipti. Okkar er ábyrgðin að hlúa að umhverf­inu þannig að íslenskt sviðs­lista­fólk geti dafnað, blómstrað og sett sitt mark á heim­inn.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár