Kólnunin gekk til baka með offorsi

Norður-Atl­ants­hafið hefur ekki verið jafn heitt frá upp­hafi mæl­inga. Haf­fræð­ingur segir meðal ann­ars hægt að rekja hlýn­un­ina, eins og nán­ast allt annað í veðri núorðið, til lofts­lags­breyt­inga, enda fari 90% gróð­ur­húsa­á­hrifa í að hita heims­höfin.

Kólnunin gekk til baka með offorsi
Hafið Hita­stigið í Norður-Atl­ants­hafi hefur sveifl­ast fram og aftur á síð­ustu ára­tugum.

„Það er eng­inn mögu­leiki á að segja „þetta hefði hvort eð er gerst.“ Við erum ein­fald­lega komin í heim sem er umbreyttur vegna lofts­lags­breyt­inga,“ segir Halldór Björns­son, haf- og veð­ur­fræð­ingur hjá Veð­ur­stofu Íslands. 

Samkvæmt gögnum frá Haf- og lofts­lags­stofn­un Banda­ríkj­anna (NOAA) mæld­ist með­al­hiti yfir­borðs í Norður Atl­ants­hafi í byrjun júní 0,7 gráðum hærri en árið á undan. Um nýtt met er að ræða, hálfri gráðu hærra en fyrra met. 

„Þetta er alveg svaka­lega mikið,“ segir Halldór. „Atl­ants­hafið er miklu heit­ara en það hefur verið mjög lengi.“

Höfin munu halda áfram að hlýna

Hita­stigið í Norður-Atl­ants­hafi hefur sveifl­ast fram og aftur á síð­ustu ára­tugum, eins og Halldór bendir á. Frá haf­ísár­unum og til 1995 var þar fremur kalt en þá hlýn­aði aftur. Árið 2014 kóln­aði að nýju og vís­inda­menn fóru að hafa áhyggjur af bláa blett­inum, haf­svæði skammt frá Íslandi sem virt­ist ekki vera að hlýna þrátt fyrir hlýnun ann­ars staðar í haf­inu. En blett­ur­inn hvarf meira og minna eftir árið 2020 og hefur verið að hlýna síðan. 

„Nú erum við komin aftur í ástand sem er frekar líkt því ástandi sem var 2010. Nema að þetta gengur til baka með slíku offorsi að við erum komin með miklu heit­ara ástand,“ segir Halldór.

„Við erum ein­fald­lega komin í heim sem er umbreyttur vegna lofts­lags­breyt­inga,“
Halldór Björns­son,
haf- og veð­ur­fræð­ingur hjá Veð­ur­stofu Íslands.

Hann telur lík­legt að sú mikla hlýnun sem nú mælist sé frá­vik sem muni ganga til baka en að heilt yfir muni höf heims­ins halda áfram að hlýna. 

Ástæður þess­arar miklu hlýn­unar í Norður-Atl­ants­hafi eru taldar marg­þættar og erfitt að kenna ein­hverju einu um. Hlýnandi veð­ur­far er talið spila þar inn í, en mjög heitt er í heim­inum í ár, eins og Einar Svein­björns­son, veð­ur­fræð­ingur hjá Veð­ur­vakt­inni sem heldur úti Bliku, bendir á. Þá hefur hlýnun Norður-Atl­ants­hafs einnig verið tengd við það að straum­hvirf­ill sunn­ar­lega á Atl­ants­haf­inu, sem golfstraum­ur­inn er hluti af, virð­ist hafa veikst.

„Það að þessi stóri mikli straum­hvirf­ill skuli vera aðeins veik­ari teng­ist breyt­ingum á vinda­fari sem síðan aftur eru mögu­lega raktar til lofts­lags­breyt­inga,” segir Einar.

Þýðir ekki endilega að sundspretturinn verði hlýr

En þó með­al­hiti Norður-Atl­ants­hafs, sem mældur er frá 0 til 60 breidd­argráðu, sé hærri en aldrei fyrr, þýðir það ekki að sjór­inn við Íslands­strendur sé hlýr og nota­legur. Einar segir sjó­inn eitt­hvað hlýrri en vant er sunnan af land­inu en fyrir norðan og austan sé hann fremur kaldur. 

„Það teng­ist bæði til­tölu­lega miklum hafís þar í vetur og líka þessum tíðu suð­vestan vindum sem gerir það að verkum að kaldi sjór­inn fær meiri útbreiðslu,“ segir Einar. 

Verður alla vega hlýrra að stinga sér í sjó­inn í Naut­hóls­vík? 

„Kannski þegar fram í sækir, að menn finni ein­hvern mun en við megum ekki gleyma því að við erum stað­sett mjög norð­ar­lega í Atl­ants­haf­inu,“ segir Einar. 

Aðspurður segir hann að þessi hlýnun Norður-Atl­ants­hafs sé ekki lík­leg til þess að leiða af sér ýkt­ara veð­ur­far eða nátt­úru­ham­farir en að yfir hlýjum sjó verði meiri upp­gufun og meira raka­fram­boð til lofts­ins. Það getur leitt af sér meiri úrkomu. 

„Ekkert endi­lega hér á landi frekar en á Bret­landseyjum að Vestur-Noregi en summa úrkom­unnar eykst við Norður-Atl­ants­hafið þegar svona háttar til. Það er algjör­lega ómögu­legt að segja hvaða staðir fá mest af þessu. Það veltur á því hvernig veð­ur­kerfin eru að hreyfast hérna á okkar slóðum,“ segir Einar.

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár