Að strjúka samfélaginu í öfuga átt

List­fræð­ing­ur­inn Margrét Elísabet Ólafs­dóttir rýnir í sýn­ing­una Boð­flenna – en Snorri Ásmunds­son sýnir nú í Lista­safni Reykja­nes­bæjar.

Að strjúka samfélaginu í öfuga átt
Viðbrögð Tilvist verka Snorra Ásmunds­sonar hefur verið sam­tvinnuð umfjöllun um þau.
Myndlist

Boð­flenna

Niðurstaða:

Sýning: Boðflenna Sýningarstaður: Listasafn Reykjanesbæjar Sýningarstjóri: Helga Þórsdóttir Tímabil: 17. maí - 20. ágúst

Gefðu umsögn

Sýningin Boð­flenna í Lista­safni Reykja­nes­bæjar er yfir­lits­sýn­ing á verkum Snorra Ásmunds­sonar, ólík­inda­t­óls í íslensku lista­lífi sem skil­greina mætti sem nútíma naí­vista. Snorri er með öðrum orðum sjálf­mennt­aður í list­inni en hann hefur ein­göngu feng­ist við mynd­list frá árinu 1996. Hann hefur frá upp­hafi lagt áherslu á mál­verk og gjörn­inga­list en til­vist gjörn­inga­verk­anna hefur verið sam­tvinnuð umfjöllun fjöl­miðla um verkin. Fyrsta upp­á­tæki Snorra sem vakti fjöl­miðla­at­hygli var sýn­ing á verkum listakatt­ar­ins Loka á Akureyri sum­arið 1997 en elstu verkin á sýn­ing­unni í Reykja­nesbæ eru einmitt nokkur mál­verk eftir Snorra/Loka. Þar hefur þeim verið komið fyrir við hlið­ina á sjón­varps­skjá sem sýnir fréttir af fram­boðs­fundi Katta­fram­boðs­ins sem bauð fram í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum á Akureyri vorið 2022.         

Að skilgreina Snorra  

Katta­fram­boðið er eitt af yngri verkum Snorra á sýn­ing­unni og dæmi­gert fyrir þær sakir að þar tvinnar Snorri saman líf og list sem renna saman í eitt án þess að hægt sé að greina þar á milli. Gjörn­ingar Snorra búa yfir ásýnd veru­leika sem birt­ist áhorf­endum í formi frétta sem eru sannar í þeim skiln­ingi að Snorri þyk­ist aldrei vera annar en hann er og kemur til dyr­anna eins og hann er klæddur í það skiptið. Hann er á vissan hátt and­stæða Joseph Beuys, sem lét sig sam­runa lífs og listar varða, og bjó yfir sterkum per­sónu­leika og ímynd. Snorri Ásmunds­son á meira skylt við Zelig því hann tekur á sig það gervi sem tíð­ar­and­inn blæs honum í brjóst hverju sinni. Það er í þess­ari þver­sögn sem sann­leikur verk­anna, aðdrátt­ar­afl þeirra og óþæg­indi birt­ast. Fyr­ir­myndir gervanna eru ímyndir fengnar úr fjöl­miðlum, hvort sem þær eru full­trúar póli­tískra vald­hafa, and­legra leið­toga, útlits­sér­fræð­inga, þjóðarí­myndar eða lista­manna. Helga Þórs­dóttir sýn­ing­ar­stjóri dregur þá sann­fær­andi ályktun að per­sónur Snorra séu ekki hluti af alter-egói hans heldur „hvíli í honum sjálfum“, þótt mögu­lega aðeins um stund.

Að sýna Snorra

Það er ekki ein­falt að setja upp sýn­ingu á verkum eftir Snorra Ásmunds­son, sem byggja til­vist sína að stórum hluta á við­brögðum fjöl­miðla og því hvernig þeir miðla fréttum af gjörn­ingum hans til almenn­ings. Hluta þess­arar umfjöll­unar er að finna á sýn­ing­unni í formi blaða­úr­klippa og frétta­skota en eitt ein­kenni þessa frétta­flutn­ings er að hann birt­ist ýmist í fréttum eða sem slúður, en sjaldn­ast á menn­ing­ar­síðum eða sem list­gagn­rýni. Verkin eru þá hluti af fjöl­miðlaum­hverf­inu fremur en list­heim­inum enda auð­veld­ara að ná til fjöld­ans í gegnum fjöl­miðla en með sýn­ingu í lista­gall­eríi. Það má því full­yrða að Snorri Ásmunds­son sé með þekkt­ari lista­mönnum lands­ins þótt verk hans hafi oft farið öfugt ofan í þá sem fjalla um mynd­list af meiri „alvöru“ en Snorri vill láta kenna sig við.     

Þegar verk Snorra eru komin saman á einum stað verður ekki annað séð en þau stand­ist vel tím­ans tönn og hafi virkað í því rými sem hann hefur skapað sér hverju sinni. Er þá sama hvort um er að ræða íþrótta­sal (Master Hilarion, 2019), kirkju (Guðs­þjón­usta í Hrís­eyj­ar­kirkju, 2018), torg (Ást­ar­p­íramíd­inn 2006), svalir (Fjall­konan, 2020), heim­ili stjórn­mála­flokks (Sjálf­stæð­is­mað­ur­inn, 2009), sjón­varps­sal (For­seta­fram­boðið (2003)) eða sölu­torg (Afláts­bréf, síðan 2003). Snorra tekst alltaf að smeygja sér inn og strjúka sér óþægi­lega upp við hin ýmsu mál­efni, hvort sem þau eru af trú­ar­legum toga, póli­tískum eða sam­fé­lags­legum. Hann gerir það með ein­lægni naí­vist­ans að vopni, þess sem kærir sig koll­óttan um annað sam­hengi, og kemur alltaf niður stand­andi hversu illa sem verkin kunna að koma við þau sem strok­ist er upp við.  

Að vera Snorri

Þegar gengið er í gegnum sýn­ing­una í Lista­safni Reykja­nes­bæjar verður ekki hjá því kom­ist að við­ur­kenna að verk Snorra virka eins og sam­fé­lags­púls. Honum tekst að snerta ein­hverja kviku í þjóð­arsál­inni á hverjum tíma með því að máta sig við hana. Í ljós­mynd­inni The American Dream (2006) sefur Snorri vært á hvítum rúm­fötum, með pípu­hatt með mynstri amer­íska fán­ans á höfð­inu og frels­is­stytt­una í fang­inu – þetta er í miðjum efna­hags­upp­gang­inum. Í gjörn­ingnum Hnakka og skinkur (2011) sem fluttur var á umdeildri sýn­ingu, Koddu, í Nýlista­safn­inu rétt eftir hrun, beinir hann að okkur hinni hlið speg­ils­ins og allt verður vit­laust. Sýningin Boð­flenna ber nafn með réttu því Snorri treður sér alls staðar að, óboð­inn. Hann er við og við erum hann með alla okkar bresti og hégóma og jafn­framt leynda þrá eftir aflausn. Á sýn­ing­unni er einnig að finna mál­verk frá ólíkum tíma­bilum, tón­list­ar­upp­tökur, ljós­mynda­röð og sýn­ing­ar­skrá með grein­ar­góðum textum, þar sem þó hefði mátt halda betur utan um upp­lýs­ingar um stað­reyndir um fjöl­skrúð­ugan list­feril Snorra Ásmunds­sonar.  

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár