Mynd: Reitir

Úrvalsvísitalan ekki lækkað meira í einum mánuði í 14 ár – Markaðsvirðið dróst saman um næstum 300 milljarða

Maí­mán­uður var ekki góður á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði. Úrvals­vísi­talan, sem mælir gengi bréfa í þeim tíu félögum sem hafa mestan selj­an­leika, lækk­aði um 12,7 pró­sent. Það er mesta lækkun í einum mán­uði síðan í mars 2009.

Mark­aðsvirði skráðra félaga í Kauphöll Íslands dróst saman um 296 millj­arða króna í maí­mán­uði. Heild­ar­virði þeirra félaga sem skráð eru á Aðal­markað og First North mark­að­inn var 2.296 millj­arðar króna í lok þess mán­aðar. Úrvals­vísi­talan lækk­aði um 12,7 pró­sent í síð­asta mán­uði, sem er mesta lækkun hennar innan mán­aðar síðan í mars 2009, skömmu eftir að hún var sett á lagg­irnar, þegar hún lækk­aði um 23,91 pró­sent. Því er um mestu lækkun að ræða á einum mán­uði í rúm­lega 14 ár. 

Þetta kemur fram í upp­lýs­ingum sem Heim­ildin hefur fengið frá Nasdaq á Íslandi, sem rekur íslensku kaup­höll­ina. 

Úrvals­vísi­talan mælir gengi þeirra tíu félaga sem eru með mestan selj­an­leika hverju sinni. Sem stendur eru þau tíu félög sem hana mynda Arion banki, Eimskip, Festi, Icelandair, Íslands­banki, Kvika banki, Marel, Reitir, Síminn og Sjóvá. 

Loftið að fara úr eignabólunum

Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn, og þær aðgerðir sem seðla­bankar og stjórn­völd um allan heim, þar með talið hér­lendis, gripu til vegna efna­hags­legra áhrifa hans bjuggu til eigna­bólur. Það þýðir að verði á eigna­flokkum hækk­aði umfram það sem und­ir­liggj­andi þættir gefa til­efni til. Þeir eigna­mark­aðir sem hækk­uðu mest voru hluta­bréfa- og fast­eigna­mark­að­ur­inn. 

Á árinu 2020 hækk­aði úrvals­vísi­talan til að mynda um 20,5 pró­sent og heild­ar­vísi­tala hluta­bréfa um 24,3 pró­sent. Mark­aðsvirði þeirra 23 félaga sem skráð voru á mark­að­ina tvo á því ári hækk­aði um 312 millj­arða króna á því ári, eða um 24 pró­sent. 

Árið 2021 gekk enn betur. Bréf í öllum félögum á aðal­mark­aði, og öllu nema einu á First North, hækk­uðu. Alls hækk­aði úrvals­vísi­talan um 33 pró­sent og heild­ar­vísi­tala hluta­bréfa um 40,2 pró­sent. Þau tvö félög sem hækk­uðu mest í virði, Arion banki og Eim­skip, tvö­föld­uðu mark­aðsvirði sitt. Að teknu til­liti til þess að fjögur félög voru skráð á markað á því ári þá hækk­aði mark­aðsvirði allra skráðra félaga um næstum eitt þús­und millj­arða króna á árinu 2021, og var 2.556 millj­arðar króna í lok þess árs. 

Í fyrra dró úr þessum aðgerðum, fjár­magn varð dýr­ara sam­hliða hækk­andi stýri­vöxtum og verð­bólga fór á flug. Á því ári lækkað heild­ar­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar um 17 pró­sent.

Alvotech skekkti myndina framan af ári

Framan af þessu ári jókst heild­ar­virði þeirra félaga sem skráð eru á íslenskan hluta­bréfa­markað. 

Vert er að taka fram skráðum félögum fjölg­aði umtals­vert á síð­ustu árum. Þau eru nú 29 tals­ins á báðum mörk­uðum og því eru fleiri um að mynda heild­ar­mark­aðsvirðið en áður.  má þar nefna Íslands­banka, Síld­ar­vinnsl­una, Nova, Play, Amaroq Minerals og Ölgerð­ina. Í þessum mán­uði bætt­ist svo Hamp­iðjan í hóp­inn. En verð­mætasta félagið sem hefur verið nýskráð á síð­ustu árum er Alvotech.

Í lok febr­úar var heild­ar­mark­aðsvirði allra komið upp í 2.758 millj­arða króna, aðal­lega á baki þess að bréf í Alvotech ruku upp í síðla árs í fyrra og framan af þessu ári. Eftir að opin­berað var í apríl að félagið hafi ekki fengið mark­aðs­leyfi fyrir lyk­il­vöru sem það ætl­aði að selja inn á Banda­ríkja­markað frá miðju þessu ári hrundi mark­aðsvirði Alovotech. Á tveimur mán­uðum fór það úr því að vera 528 millj­arðar króna í að vera 333 millj­arðar króna. Það lækk­aði um meira en þriðj­ung, eða 195 millj­arða króna. 

Alvotech er hins vegar ekki hluti af úrvals­vísi­töl­unni, sem lækk­aði um 12,7 pró­sent í maí. Þar skipti mestu að mark­aðsvirði Marel, sem lengi vel var verð­mætasta félagið á íslenska mark­aðnum, lækk­aði um 24 pró­sent í mán­uð­inum. Það er nú um 331 millj­arður króna. Sú lækkun kemur í kjöl­far þes að virði Marel fór úr 663,5 í 367 millj­arða króna á árinu 2022. Virðið í dag er því helm­ingur þess sem það var í byrjun árs í fyrra. 

Mikið útflæði úr hlutabréfasjóðum

Á vef Keld­unnar má sjá 12 mán­aða ávöxtun 16 íslenskra hluta­bréfa­sjóða. Þar kemur fram að þeir hafi allir skilað nei­kvæðri afkomu síð­ast­liðið ár, á bil­inu -4,0 til -16,8 pró­sent. 

Þeir sem eiga í sjóð­unum þurfa samt sem áður að greiða þókn­anir til þeirra, sem í flestum til­fellum eru hlut­falls­lega hærri en gengur og ger­ist alþjóð­lega. 

Þessar miklu breyt­ingar sem orðið hafa á efna­hags­legum aðstæðum hafa dregið veru­lega úr áhuga fjár­festa á því að eiga í íslenskum hluta­bréfa­sjóðum. Frá miðju ári 2020 og fram í apríl í fyrra höfðu fjár­festar keypt hlut­deild­ar­skír­teini í slíkum sjóðum fyrir tæp­lega 91,5 millj­arða króna, en inn­lausnir á sama tíma­bili voru ein­ungis um 49,2 millj­arðar króna. Því voru seld hlut­deild­ar­skír­teini fyrir 42,3 millj­örðum krónum meira en það sem tekið var út úr sjóð­unum á þessu tíma­bili.

Síðan þá hefur þessi staða snú­ist algjör­lega við. Á tólf mán­aða tíma­bili, frá maí í fyrra og út apríl í ár, voru ein­ungis seld hlut­deild­ar­skír­teini í hluta­bréfa­sjóðum fyrir 14,3 millj­arða króna. Á sama tíma leystu fjár­festar út 26,1 millj­arð króna út úr sjóð­unum, eða 11,8 millj­örðum krónum meira en flæddi inn í þá. 

Lífeyrissjóðirnir stækka en hinir minnka

Þegar skoðuð er fjár­fest­ing í öllum íslenskum verð­bréfa­sjóðum, bæði þeim sem fjár­festa í skulda­bréfum og hluta­bréfum, inn­an­lands og erlendis, þá hefur orðið mikil breyt­ing á. Frá byrjun síð­asta árs og út apr­íl­mánuð 2023 hafa verið seld hlut­deild­ar­skír­teini í þeim fyrir 589,6 millj­arða króna. Á sama tíma hafa fjár­festar leyst út hlut­deild­ar­skír­teini fyrir 748,4 millj­arða króna. Inn­lausnir voru því 158,8 millj­örðum krónum meiri en sala á hlut­deild­ar­skír­teinum á tíma­bil­inu. Á þessum 16 mán­uðum hefur það ein­ungis einu sinni gerst að hlut­deild­ar­skír­teini í sjóðum voru seld fyrir hærri upp­hæð en leyst var út úr sjóð­unum innan mán­aðar. Það gerð­ist í des­em­ber í fyrra.

Heimili lands­ins áttu hlut­deild­ar­skír­teini í verð­bréfa­sjóðum upp á 342,6 millj­arða króna í lok árs 2021. Í apr­íl­lok var eign þeirra 305,4 millj­arðar króna, og hafði því dreg­ist saman um 37,2 millj­arða króna. Eign atvinnu­fyr­ir­tækja í sjóð­unum hefur á sama tíma­bili dreg­ist saman um 36,7 millj­arða króna. Þeir fjár­festar sem hafa bætt mestu við sig af hlut­deild­ar­skír­teinum í verð­bréfa­sjóðum frá byrjun árs 2022 eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Þeir eiga nú slík skír­teini fyrir 296,1 millj­arð króna, sem er 29,4 millj­örðum krónum meira en þeir áttu í upp­hafi tíma­bils­ins. Hlut­deild líf­eyr­is­sjóða í sjóð­unum öllum hefur auk­ist úr því að vera 24,6 pró­sent í að vera 28,7 pró­sent frá byrjun árs í fyrra og út apr­íl­mánuð 2023.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár