Leituðu að öruggasta stað í heimi og fundu hann á Íslandi

„Þetta er ekki leikur. Að rífa sig upp með rótum og yfir­gefa heima­landið gerir eng­inn nema af nauð­syn,“ segir Abir, sem flúði frá Sýrlandi til Íslands ásamt bróður sínum, Tarek. Útlend­inga­stofnun hefur synjað þeim um vernd en leit aldrei til aðstæðna í Sýrlandi í umfjöllun sinni heldur í Venes­ú­ela, þar sem systk­inin eru fædd en flúðu frá fyrir mörgum árum.

Leituðu að öruggasta stað í heimi og fundu hann á Íslandi

Umsækj­andi er ekki flótta­maður og skal synjað um alþjóð­lega vernd á Íslandi með vísan til útlend­inga­laga. Einnig skal synja umsækj­anda um dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða.

Þegar systk­inin Abir og Tarek fengu þessa nið­ur­stöðu Útlend­inga­stofn­unar nýverið var það „eins og að verða fyrir eld­ingu“. Að heyra að þau væru ekki flótta­menn að mati stofn­un­ar­innar, eftir að hafa flúið bæði Sýrland og Venes­ú­ela, orðið fyrir ránum og horft upp á lífs­við­ur­væri sitt að engu verða, var svo mikið reið­ar­slag að þau eru enn að jafna sig. „Ég held að fólk átti sig almennt ekki á því hvernig ástandið í þessum löndum er,“ segir Abir. „Að við höfum að engu að hverfa í Venes­ú­ela. Eigum þar enga fram­tíð. Að ástandið hefur ekki batnað þótt ein­hverjar skýrslur segi það.“

Flestir vita að það er stríð í Sýrlandi en ef til vill ekki hvað hefur tekið við eftir að sviðs­ljós fjöl­miðla færð­ist annað. Að þar …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Það vantar fólk í vinnu á Íslandi. Hér er fólk sem er tilbúið að vinna og þarf enga ölmusu frá ríkinu. Hvers vegna ekki að leyfa því að vera?
    3
  • Thordis Malmquist skrifaði
    Vildi óska þess að þetta vealings fólk fengi skjól, en líklega eru margir í svipuðum sporum, hvar á að draga mörkin, við hvað er miðað?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár