Segir leiðtogafundinn ekki sögulegan fyrir neinn nema Íslendinga

Fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra segir að það hafi tog­ast á í henni leiði og stolt þegar hún velti fyrir sér hvað henni ætti að finn­ast um nýaf­stað­inn leið­toga­fund Evr­ópu­ráðs­ins í Reykja­vík. Íslend­ingar þurfi að „ reyna að halda haus og láta ekki hina sér­kenni­legu blöndu oflætis og van­meta­kenndar trufla dóm­greind okkar.“

Segir leiðtogafundinn ekki sögulegan fyrir neinn nema Íslendinga
Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir kom að stofnun Kvenna­list­ans, var borg­ar­stjóri Reykja­víkur, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og utan­rík­is­ráð­herra Íslands. Síðustu ár hefur hún starfað sem yfir­maður hjá ýmsum alþjóða­stofn­unum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra sem sem starf­aði lengi hjá alþjóða­stofn­unum, segir að það hafi engin ástæða verið til að ætla að leið­toga­fundur Evr­ópu­ráðs­ins, sem hald­inn var í vik­unni á Íslandi, yrði sögu­legur fundur fyrir aðra en Íslend­inga. Eina ástæða þess að fund­ur­inn væri sögu­legur fyrir Ísland er vegna þess að hann var hald­inn hér. Þetta kemur fram í færslu sem Ingi­björg Sólrún birti á Facebook. 

Þar segir hún að það hafi „böggl­ast svo­lítið fyrir mér hvað mér á að finn­ast um leið­toga­fund Evr­ópu­ráðs­ins sem var að ljúka í Reykja­vík. Það tog­ast á í mér leiði og stolt.“

Ingi­björg Sólrún segir að það hafi angrað sig hvað á Íslandi hafi verið mikil múgsefjun í gangi og hversu margir stukku á þann vagn, mataðir af stjórn­mála­mönnum og fjöl­miðlum, að í upp­sigl­ingu væri tíma­móta­fundur sem myndi lengi í minnum hafður. „Fæstir leið­toga­fundir eru þess eðlis og oftar en ekki hafa þeir öðru fremur tákn­ræna þýð­ingu og eru til marks um að ríki ætli sér að standa saman, sem getur vissu­lega skipt máli á óvissu­tímum. Tíma­móta­fundir eru gjarnan loka­hnykk­ur­inn á ferli sem hefur staðið yfir í nokkuð langan tíma með flóknum samn­inga­við­ræðum og til þeirra boðað til að taka end­an­lega póli­tíska ákvörðun. Leið­toga­fundur Evr­ópu­ráðs­ins í Reykja­vík mark­aði fremur upp­hafið og bjó til vænt­ingar um ferli sem von­andi mun skila árangri þegar fram líða stundir.

Það var hins vegar engin ástæða til að ætla að þetta yrði sögu­legur fundur nema fyrir okkur Íslend­inga - vegna þess að hann var hald­inn á Íslandi!“

Hrósar konunum í forsvari

Ráð­herr­ann fyrr­ver­andi hrósar hins vegar þætti Íslend­inga. Það sé gríð­ar­lega mikil vinna að skipu­leggja svona fund og sjá til þess að allt gangi snurðu­laust  fyrir sig. „Ég fékk ekki betur séð en að allt hafi verið gert með miklum sóma og eiga allir sem að þessu komu mik­inn heiður skilið. Konurnar tvær sem voru í for­svari, for­sæt­is­ráð­herra og utan­rík­is­ráð­herra, sinntu sínu hlut­verki af miklu öryggi og sama á við um allt það starfs­fólk sem bar hit­ann og þung­ann af und­ir­bún­ingi og fram­kvæmd fund­ar­ins. Eins og oft ger­ist hér á Íslandi lögðu allir líf og sál í fram­kvæmd­ina enda finnst okkur gjarnan að heiður lands og þjóðar sé að veði. Þegar ég hlust­aði á Víking Heiðar spila Ave Maria eftir Sigvalda Kalda­lóns af heitri til­finn­ingu fyrir fund­ar­gesti rann það upp fyrir mér að í sam­ræmi við góða íslenska gest­risni væri aðeins það besta talið nógu gott fyrir gest­ina. Það fyllir mig stolti.“

Ingi­björg Sólrún minnir á í færsl­unni að Íslend­ingar séu smá­þjóð og þess vegna finn­ist henni svo gott að fyll­ast stolti af því sem vel er gert í sam­skiptum við aðrar þjóðir, hvort sem það er í bolta­í­þróttum, Eurovision eða Evr­ópu­ráð­inu. „Við verðum samt að reyna að halda haus og láta ekki hina sér­kenni­legu blöndu oflætis og van­meta­kenndar trufla dóm­greind okkar.“

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár