Félag Helga keypti vörumerki og heimasíður miðla Torgs á 480 milljónir

Helgi Magn­ús­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi aðal­eig­andi Torgs, segir að eignir sem tengj­ast Frétta­blað­inu hafi ekki verið inni í Torgi þegar félagið var gefið upp til gjald­þrota­skipta. Hann segir að félagið Hof­garðar ehf. sem hann á hafi keypt vöru­merki og heima­síður Frétta­blaðs­ins, DV og Hring­brautar á 480 millj­ónir fyrir tveimur árum.

Staðfestir sölu eigna sem tengjast Fréttablaðinu
Stað­festir sölu eigna sem tengj­ast Frétta­blað­inu Helgi Magn­ús­son, fyrr­ver­andi eig­andi útgáfu­fé­lags­ins Torgs, stað­festir að eignir sem tengj­ast Frétta­blað­inu hafi verið seldar út úr félag­inu. Hann seg­ist hafa keypt vöru­merkið og heima­síð­una í gegnum eign­ar­halds­fé­lag árið 2021. Mynd: Torg

Helgi Magn­ús­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi eig­andi útgáfu­fé­lags­ins Torgs sem meðal ann­ars gaf út Frétta­blaðið, stað­festir að eignir sem tengj­ast Frétta­blað­inu hafi verið seldar út úr fyr­ir­tæk­inu og séu ekki inni í þrota­búi þess. Helgi var meðal ann­ars spurður út í vöru­merkið Frétta­blaðið og eins og heima­síð­una fretta­bla­did.is. Helgi segir að þessar eignir hafi verið seldar út úr Torgi til félags hans, Hofgarða ehf., á 480 millj­ónir króna fyrir tveimur árum. „Þetta er ekki inni í þrota­bú­inu. Það var búið að selja þetta fyrir lif­andis löngu.“ 

Hann segir að við­skiptin hafi verið liður í því að styrkja lausa­fjár­stöðu Torgs. „Fyrir nákvæm­lega tveimur árum, í mars 2021, seldi Torg yfir til míns fyr­ir­tækis, Hofgarða, við­skipta­vild sem fólst í öllum bröndum, nöfnum, rétt­indum og öllu slíku á þessum miðlum, á 480 millj­ónir. Þetta voru DV, DV.is, Frétta­blaðið, Frétta­bla­did.is, Hring­braut og svo fram­vegis. Þetta var liður í því að bæta lausa­fjár­stöðu …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár