Hvað gerðist eiginlega í Elon Musk viðtalinu?

Elon Musk ræddi við frétta­mann BBC í tæpa klukku­stund nú á dög­unum. Viðtalið hefur farið eins og eld­sveipur um netheima. Heim­ildin tók saman megin atriði við­tals­ins.

Hvað gerðist eiginlega í Elon Musk viðtalinu?

Elon Musk tjáði sig um kaupin á Twitter og fram­tíð­ar­á­horfur fyr­ir­tæk­is­ins í nýlegu við­tali við frétta­mið­il­inn BBC á dög­unum. Viðtalið er tæpur klukku­tími í heild sinni og lætur Elon ófá orð falla um stöðu mið­ils­ins hálfu ári eftir að hann festi kaup á fyr­ir­tæk­inu. 

James Clayton frétta­maður BBC seg­ist hafa fengið tutt­ugu mín­útur til að und­ir­búa sig fyrir við­talið og hefur hann sætt þónokk­urri gagn­rýni meðal net­verja fyrir að halda ekki í við óheflaðan per­sónu­leika Musk. Rétt áður en við­talið byrj­aði til­kynnti Musk Clayton að við­tal­inu yrði streymt í beinni á Twitter. Undir lok við­tals­ins sagði Musk að tæp­lega 700 þús­und manns hefðu fylgst með fram­vindu þess. 

Þvingaður til að kaupa

Kaupin á Twitter ullu miklum usla á síð­asta ári. Musk við­ur­kenndi að hafa endað á að kaupa fyr­ir­tækið til þess að koma sér hjá mála­ferlum. Musk seldi tölu­vert af hluta­bréfum sínum í Teslu til að fjár­magna kaupin, sér til mik­ils ama. Eftir söl­una féll Tesla í virði og Musk harmar það að almenn­ingur hafi haldið að hann hefði misst trúna á raf­bíla­fyr­ir­tæk­inu.

„Þetta hefur ekki verið leið­in­legt, heldur rús­sí­ban­areið,“ segir Musk í við­tal­inu um síð­ustu sex mán­uði í starfi hjá Twitter. Hann heldur því fast­lega fram að eftir kaup hans hafi notkun mið­ils­ins auk­ist. 

Svarar gagnrýni

Clayton spyr Musk út í þá gagn­rýni sem hann hefur sætt fyrir að reka 80% starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins. Musk færir þá rök fyrir því að fyr­ir­tækið hafi verið rekið með svo miklu tapi að það hefði aðeins getað verið starf­rækt í fjóra mán­uði í við­bót án breyt­inga. 

Twitter hagn­ast ekki á starf­semi sinni sem stendur en Musk segir rekst­ur­inn nán­ast koma út á jöfnu. Musk myndi íhuga að selja Twitter fyrir 44 millj­arða banda­ríkja­dala ef kaup­and­inn væri ein­hver sem hann treysti. Enn sem komið er hefur hann ekki fundið erf­ingja sinn.

25% skemmt

Musk leggur tvisvar fram mynd­lík­ingu. Hann segir það að kaupa Twitter hafi verið eins og að kaupa vöru­hús þar sem kaup­anda er sagt að minna en 5% af vör­unum séu skemmdar. Þegar kaup­and­inn mætir síðan á stað­inn sér hann að um 25% allra vara í vöru­hús­inu eru skemmdar og krefst þess þar af leið­andi að fá að kaupa vöru­húsið á lægra verði. Það var hans upp­lifun af Twitter kaup­unum á síð­asta ári.

Síðar í við­tal­inu segir rík­asti maður í heimi að það sé að detta úr tísku að eyða pen­ing.

„Ég kaus Biden ekki Trump“

Eftir að Musk tók við Twitter veitti hann þeim sem áður höfðu verið bann­aðir á miðl­inum aðgengi á ný á grund­velli mál­frelsis. Þeirra á meðal er fyrrum Banda­ríkja­for­seti Donald Trump. Musk tekur þó fram að hann hafi kosið Biden. „Ég kaus Biden ekki Trump.“ Enn hefur Trump ekki tíst neinu enda á hann sinn eigin miðil, Truth Social sem er rek­inn af Trump Media & Technology Group. 

Að mati Musk á Twitter ekki að vera flokkspóli­tískur mið­ill heldur vett­vangur fyrir fólk til þess að ræða saman sem jafn­ingjar. Clayton veitir þessum rökum við­spyrnu og spyr hvort að Musk telji þá hat­urs­orð­ræðu og upp­lýs­inga­óreiðu í lagi á miðl­inum. Eig­and­inn gefur því lít­inn gaum enda seg­ist hann ekki vita hver búi yfir þeim rétti til að vera dóm­bær á hvað telj­ist til hat­urs­orð­ræðu. Ef fólk er ósátt við þetta á það að fara í gegnum þingið og fá í gegn laga­breyt­ingu. „Rangupp­lýs­ingar eins eru upp­lýs­ingar ann­ars,“ segir hann. 

„Ég er líka að taka viðtal við þig“

Á þessum tíma­punkti við­tals­ins tók Musk stjórn­ina og spurði frétta­mann­inn spjör­unum úr. Hvort að Musk var búinn að und­ir­búa sig fyrir við­talið með það að mark­miði að koma Clayton í vand­ræði er ekki ljóst. En ágengni hans í garð Clayton og BBC var skýr.

Hann biður Clayton um dæmi um  per­sónu­lega notkun frétta­manns­ins á Twitter. Þegar fjöl­miðla­mað­ur­inn getur ekki nefnt dæmi notar Musk það til að grafa undan gagn­rýn­inni á hat­urs­orð­ræðu á miðl­inum. Hann segir svo við frétta­mann­inn „þú veist ekki um hvað þú ert að tala,“ og bætir síðar við „þú varst að ljúga.“

Þegar Clayton nær að snúa umræðu­efn­inu að upp­lýs­inga­miðlun og COVID-19 snýr Musk því til baka og spyr hvort BBC ætli að axla ábyrgð fyrir mis­vísandi upp­lýs­ingar. „Ég er líka að taka við­tal við þig,“ segir Musk og bætir glott­andi við, „ég er viss um að þú bjóst ekki við því.“

Hundur Musk er forstjóri Twitter

Það hlakkar í Musk þegar hann talar um að hundur hans Flóki sé orð­inn for­stjóri Twitter. Musk segir Flóka ábyrgan hund og erfitt sé að koma hlutum fram hjá honum. 

Eins og not­endum Twitter er kunn­ugt um ákváðu margir af stærstu aug­lýsendum á Twitter að fjar­lægja aug­lýs­ingar sínar eftir kaup Musk á sam­fé­lags­miðl­inum. Nú segir Musk hins vegar að flestir séu komnir til baka. Hann telur aug­lýs­ingar Disney og Apple gefa góða vís­bend­ingu um þær fram­farir sem mið­il­inn sé nú að taka. 

Heim­ildin fjall­aði nýverið um til­lögu for­seta Banda­ríkj­anna Joe Biden um að banna TikTok þar lendis verði það ekki selt úr höndum Kínverja. Um það hefur Musk fátt að segja en tekur þó afstöðu gegn því að hlutir séu bann­aðir. Hann notar ekki TikTok sjálfur en segir að margir hafi sagt honum að fólk upp­lifi gjarnan eft­ir­sjá yfir þeim tíma sem það eyddi á TikTok. Það vill hann ekki að ger­ist með Twitter.

Reyndist honum erfitt persónulega

Musk við­ur­kennir að ferlið sé búið að reyn­ast honum erfitt þrátt fyrir að hann telji það mik­il­vægt að fá gagn­rýni. Samband hans við fjöl­miðla er furðu­legt að eigin sögn. Hann telur það þó mik­il­vægt að fjöl­miðlar geti sagt „vonda“ hluti við valda­mikið fólk. 

Háværar umræður meðal not­enda um auð­kenn­is­merk­ingu Twitter (bláa merkið sem hluti not­enda Twitter, aðal­lega opin­berar per­sónur eða fjöl­miðlar, gátu fengið fyrir aftan nafnið sitt) hafa ekki farið fram­hjá Musk. Ákveðin óreiða skap­að­ist eftir að Musk ákvað að hægt yrði að kaupa sér auð­kenn­ingu. Fjöl­miðlar á borð við New York Times sem ekki greiddu upp­hæð­ina misstu sína auð­kenn­is­merk­ingu. Musk seg­ist hafa haft lúm­skt gaman að því að svipta New York Times merk­inu. 

Hann snýr gagn­rýn­inni við í við­tal­inu og segir fjöl­miðla ákveða fyrir fólk hvað það hugsi. Að hans mati á fólk að eiga þar sterk­ari þátt. Það er lyk­ill­inn að lang­lífi Twitter, að fólkið fái rödd og geti talað sig saman. 

Musk endar við­talið á að opna síma sinn og taka við spurn­ingum frá áhorf­endum sem bein­ast að BBC á meðan Clayton reynir að taka stjórn á aðstæð­unum á ný, en án árang­urs.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár