Þessi grein birtist fyrir meira en ári.

Tekjur RÚV af auglýsingasölu hafa aukist um næstum 50 prósent á tveimur árum

Þrátt fyr­ir að aug­lýs­inga­sala hafi skil­að RÚV 372 millj­ón­um krón­um meira í kass­ann í fyrra en ár­ið áð­ur, og þær tekj­ur hafi auk­ist um 774 millj­ón­ir króna á tveim­ur ár­um, þá tap­aði RÚV 164 millj­ón­um króna á ár­inu 2022.

Tekjur RÚV af auglýsingasölu hafa aukist um næstum 50 prósent á tveimur árum
Útvarpsstjóri Stefán Eiríksson hefur stýrt RÚV frá árinu 2020. Mynd: Heiða Helgadóttir

Tap varð af rekstri RÚV í fyrra upp á alls 164 milljónir króna þrátt fyrir að rekstrartekjur hafi vaxið um 849 milljónir króna, og verið 7,9 milljarðar króna. Árið 2021 hafði ríkismiðillinn skilað 45 milljóna króna hagnaði. 

Þetta er í annað sinn síðan árið 2014 sem RÚV skilar tapi. Athygli vekur að óskilgreindur „annar rekstrarkostnaður“ jókst um 560 milljónir króna milli ári. Gengið hefur nokkuð á eigið fé RÚV á undanförnum árum en eiginfjárhlutfallið var 28,5 prósent árið 2018. Um síðustu áramót var það komið niður í 20,1 prósent. 

Rekstr­ar­hagn­aður jókst milli ára og var 337 millj­ónir króna. Hrein fjár­magns­gjöld, sem nánast tvöfölduðust milli ára, átu hann hins vegar upp að mestu en þau voru 501 millj­ónir króna á síð­asta ári. 

Þetta kemur fram í nýlega birtum árs­reikn­ingi RÚV.

Auglýsingatekjur aukist mikið á tveimur árum

Tekjur RÚV eru að uppi­stöðu tvenns­kon­ar: tekjur af almanna­þjón­ustu sem koma í formi fram­lags úr rík­is­sjóði og tekjur af sam­keppn­is­rekstri. Alls fékk RÚV næstum 5,1 millj­arða króna úr rík­is­sjóði í fyrra sem var 430 milljónum krónum meira en komu þaðan árið 2021. Þær greiðslur munu aukast verulega á þessu ári, en áætlað er að ríkissjóður greiði RÚV 5,7 milljarða króna á árinu 2023. Auk þess munu greiðslur til ríkismiðilsins úr sameiginlegum sjóðum að óbreyttu fara stighækkandi á næstu árum sökum þess að útvarpsgjaldið fylgir verðlagsbreytingum. Auk þess er öllum fullorðnum einstaklingum og lögaðilum gert að greiða gjaldið. Þegar fólki og fyrirtækjum fjölgar, þá fjölgar krónunum sem renna til RÚV. 

Tekjur af sam­keppn­is­rekstri juk­ust líka skarpt milli ára, eða um 454 milljónir króna, og voru rúmlega 2,8 milljarðar króna. Þar munar mestu um tekjur af auglýsingum og kostunum, sem voru 2,4 milljarðar króna og jukust um 372 milljónir króna milli ára. Á tveimur árum hafa þær aukist um 774 milljónir króna, eða um 48 prósent. Til samanburðar má nefna að styrkir sem greiddir voru út til á þriðja tug einkarekinna fjölmiðla úr ríkissjóði í fyrra voru um 385 milljónir króna. Sú upphæð var því svipuð og sú tekjuaukning sem RÚV tók til sín í gegnum auglýsingasölu á síðasta ári. 

Þessara tekna er aflað í gegnum dótturfélagið RÚV sölu, þar sem störfuðu 17 manns í byrjun síðasta árs. Sá sjónvarpsviðburður sem ugglaust hefur skilað RÚV mestum tekjum vegna kostunar og auglýsingasölu er heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem fram fór í Katar í lok síðasta árs. Um er að ræða einn stærsta sjónvarpsviðburð í heimi og áhorfið á hann er gríðarlegt. 

Laun útvarpsstjóra hækkuðu um 217 þúsund á mánuði

Stöðu­gildum fjölgaði um tvö hjá RÚV milli ára og voru 254 á árinu 2022. Launa­kostn­aður jókst sam­hliða um 225 millj­ónir króna og var rúmlega 3,2 milljarðar króna.

Heild­ar­laun og líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur Stef­áns Eiríks­sonar útvarps­stjóra námu 32,6 millj­ónum króna í fyrra. Þau hækkuðu um 8,7 prósent milli ára, eða um 217 þúsund krónur að meðaltali á mánuði. Það þýðir að Stefán var með 2,7 millj­ónir króna á mán­uði í laun og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð fyrir að stýra stærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins, og því eina sem er í eigu rík­is­ins. 

Stefán var ráð­inn snemma árs 2020 og þá skip­aður til fimm ára. Hann er tíundi útvarps­stjóri RÚV frá upp­hafi og tók við starf­inu af Magn­úsi Geir Þórð­ar­syn­i. 

RÚV er rekið í sam­ræmi við þjón­ustu­samn­ing sem gerður er við það ráðu­neyti sem fer með mál­efni fjöl­miðla hverju sinni. Nú er það ráðu­neyti menningar- og viðskiptamála sem stýrt er af Lilju Alfreðs­dótt­ur. Nýr þjón­ustu­samn­ingur var und­ir­rit­aður í lok árs 2020 og lát­inn gilda aft­ur­virkt frá 1. jan­úar á því ári. Hann rennur út í lok þessa árs. 

Fréttablaðið í þrot

Miklar sviptingar hafa verið í íslenskum fjölmiðlum undanfarið. Sú nýjasta, sem átti sér stað í lok síðustu viku, fól í sér að Fréttablaðið, sem hefur verið risaleikandi á markaðnum í meira en tvo áratugi og var eitt af tveimur eftirstandandi dagblöðum landsins, hætti rekstri. Samhliða hætti systurmiðillinn Hringbraut, sem hélt úti sjónvarpsstöð, útsendingum. Fyrirtækið voru gefin upp til gjaldþrotaskipta á mánudag og hátt í 100 manns misstu vinnuna. Áður hafði N4 hætt rekstri á þessu ári. Einkarekna fjölmiðlaflóran hefur því sífellt verið að verða fátæklegri.

Í tölum sem Hagstofa Íslands birti í lok árs í fyrra kom fram að tekjur allra fjöl­miðla á Íslandi hafi verið 27 millj­örðum króna árið 2021. Á föstu verð­lagi er það sama upp­hæð og þeir þén­uðu árið 2015, en 13 pró­sent minni tekjur en miðl­arnir höfðu sam­an­lagt árið 2005. Inni í þessum tölum eru þær tekjur sem RÚV tók til sín, en það var með 25 pró­sent hlut­deild í fjöl­miðla­tekjum á árinu 2021. Í þeim kom fram að RÚV hafi verið að auka hlutdeild sína í auglýsingatekjum á undanförnum árum. Miðað við uppgjör RÚV vegna síðasta árs má búast við að hlutdeild RÚV í heildartekjum fjölmiðla hafi aukist á því ári.

Ætla að draga úr umsvifum RÚV

Í nýlega kynntri fjármáláætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára er boðað að unnið verði að því „að draga úr umsvifum Ríkisútvarpsins á samkeppnismarkaði“, en það þýðir að reynt verður að setja hömlur á getu ríkismiðilsins til að sækja sér auglýsingafé. Engin útfærsla á því markmiði er þó lögð fram í áætluninni, en samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar stendur ekki til að taka RÚV að öllu leyti af auglýsingamarkaði. 

Í áætluninni segir að unnið verði að endurnýjun þjónustusamnings ráðherra við RÚV sem, líkt og áður sagði, rennur út í lok árs 2023. „Lögð verður áframhaldandi áhersla á að Ríkisútvarpið muni áfram sem hingað til leitast við að fylgja þróun fjölmiðlunar, m.a. með breyttum áherslum í dagskrá og fjölbreyttara efnisframboði á vef, auk þess að gera eldra efni aðgengilegra en áður. [...] Helstu áskoranir næstu árin eru að viðhalda og efla það traust sem almenningur ber til Ríkisútvarpsins, sbr. árlegar mælingar þar að lútandi. Þá stendur Ríkisútvarpið enn frammi fyrir því að lækka skuldir og halda óbreyttum tekjum til að hægt verði að halda úti sambærilegri dagskrá og verið hefur.“

Þar var einnig boðað að auka árlegan stuðning við einkarekna fjölmiðla um 400 milljónir króna á næsta ári og að hann verði þá um 777 milljónir króna. Viðbótarframlagið, sem ætlað er „tryggja fjölbreytni á fjölmiðlamarkaði“ mun verða tryggt til fimm ára, eða út árið 2028.

Samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar stendur meðal annars til að miðla viðbótarfjárhæðinni til fjölmiðla í gegnum skattaívilnun og er aðgerðinni að hluta til ætlað að hvetja fjölmiðla til að taka upp áskriftarfyrirkomulag. Útfærsla á leiðinni er þó ekki tilgreind í áætluninni.

Heimildin er einn þeirra fjöl­miðla sem upp­­­­­fyllir skil­yrði fyrir rekstr­­­ar­­­styrk úr rík­­­is­­­sjóði.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár