Er frelsið örugglega svona yndislegt?

Frjáls: Æska í skugga járn­tjalds­ins eftir Leu Ypi fjallar um æskuár höf­undar í Albaníu árin sem komm­ún­ista­stjórn lands­ins féll og óða­kap­ít­al­ismann í kjöl­farið. Eyrún Edda Hjör­leifs­dóttir þýddi.

„Allt sem þeir sögðu um kap­ít­al­isma var satt. Allt sem þeir sögðu um komm­ún­isma var lygi.“ Þennan brand­ara heyrði maður stundum þegar maður kom fyrst til gömlu Austur-Evrópu á síð­asta ára­tug síð­ustu aldar, ára­tug­inn eftir fall komm­ún­ism­ans.

Ég minn­ist þess líka hvernig þeir sem lík­leg­ast hefðu orðið vinstri­menn í vestr­inu urðu hægri­menn í austr­inu (þótt það hafi jafn­ast út á þeim ára­tugum sem nú eru liðnir), skóla­bók­ar­dæmi um hvernig for­tíð fólks skil­yrðir skoð­anir þess, upp­reisn­ar­gjörnu fólki er oft­ast í nöp við það yfir­vald sem fer oft­ast með völd og þeir sem hafa verið illa brenndir af einni stjórn­mála­stefnu eru ekki lík­legir til að kjósa hana í nán­ustu fram­tíð.

Ég rifja þetta upp þegar ég spjalla við Leu Ypi, albanska fræði­konu sem skrif­aði Frjáls: Æska í skugga járn­tjalds­ins, um æskuár sín í Albaníu. Það sem er merki­legt við bók­ina er nefni­lega hvernig for­eldr­arnir …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bókmenntahátíð 2023

Mósaík stórstjarna á bókmenntahátíð – og heyrt í einni stjörnu ...
ViðtalBókmenntahátíð 2023

Mósaík stór­stjarna á bók­mennta­há­tíð – og heyrt í einni stjörnu ...

Nú, þegar far­fuglar flykkj­ast til lands­ins, er að skella á Bók­mennta­há­tíðin í Reykja­vík en hún hefst 19. apríl með ævin­týra­lega til­komu­mik­illi dag­skrá – eins og alltaf. Þunga­vigt­ar­höf­undar á heims­mæli­kvarða streyma til lands­ins og land­anum gefst færi á að spyrja þá spjör­unum úr, plata þá til að skrifa á bækur og heyra þá fjalla um verk sín.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár