Mósaík stórstjarna á bókmenntahátíð – og heyrt í einni stjörnu ...

Nú, þegar far­fuglar flykkj­ast til lands­ins, er að skella á Bók­mennta­há­tíðin í Reykja­vík en hún hefst 19. apríl með ævin­týra­lega til­komu­mik­illi dag­skrá – eins og alltaf. Þunga­vigt­ar­höf­undar á heims­mæli­kvarða streyma til lands­ins og land­anum gefst færi á að spyrja þá spjör­unum úr, plata þá til að skrifa á bækur og heyra þá fjalla um verk sín.

Mósaík stórstjarna á bókmenntahátíð – og heyrt í einni stjörnu ...

Menn­ing­ar­síð­urnar í nýjasta tölu­blaði Heim­ild­ar­innar eru nú helg­aðar Bók­mennta­há­tíð þar sem sjá má mósaík stuttra sam­tala þar sem hinir og þessir pennar tala við höf­unda. Eins gefur að líta dag­skrá Bók­mennta­há­tíð­ar­innar sem les­endur geta stungið á sig. En þó að við­tölin virð­ist mörg, þá eru þau aðeins við nokkra af stór­stjörn­unum sem koma á hátíð­ina. Þetta er bara smakk!

Hér er riðið á vaðið með brot úr mósaíkinu en ég mælti mér mót við einn höf­und­inn í gegnum Facetime og varð um leið hugsað til þess hversu nútíma­menn­ing er í raun­inni fárán­leg. Að kona geti setið heima í stofu og bjallað í höf­und sem hún hefur dýrkað á annan ára­tug.

Það er saga á bak við fyrstu bók­ina sem ég las eftir Kirsten Hammann. Árið 2008, í miðju hrun­inu, var ég sjálf í við­tali hjá danska dag­blað­inu Politi­ken, í bóka­blað­inu, þar sem ég var að gefa út mína …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bókmenntahátíð 2023

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár