Hinn horfni hryllingur herforingjastjórnarinnar

Allt sem við misstum í eld­inum er smá­sagna­safn eftir Mariönu Enriquez í þýð­ingu Jóns Halls Stef­áns­sonar.

Allt sem við misstum í eld­inum er smá­sagna­safn eftir Mariönu Enriquez, þar sem sögur um hrylli­lega atburði þró­ast yfir í hrein­rækt­aðar hryll­ings­sögur, saum­aðar saman úr goð­sögum og blóð­ugri sögu Argent­ínu. Þegar ég heyri í Mariönu á heim­ili hennar í Buenos Aires spyr ég hana fyrst um til­vitnun í Wuthering Heights eftir Emily Brönte í upp­hafi, þar sem hún óskar sér að verða stúlku­barn á ný, hálf­villt og hörð – og frjáls. Er villi­mennskan kannski lyk­ill­inn að frels­inu?

„Margar sög­urnar eru um ung­lings­stelpur, það er enn ákveðið frelsi í lík­ömum þeirra sem er oft truflað. Frelsið er gott en það þýðir oft eitt­hvað villt og brjálað. Og ég held að Emily Brönte hafi verið dálítið svo­leiðis. Það er ákveðið frelsi sem kemur með þessum breyt­ingum á lík­am­anum, þú ert á ein­hverjum mærum.“

Þetta teng­ist vafa­laust hinum starf­anum hennar, en hún starf­aði lengi sem tón­list­ar­blaða­maður. …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bókmenntahátíð 2023

Mósaík stórstjarna á bókmenntahátíð – og heyrt í einni stjörnu ...
ViðtalBókmenntahátíð 2023

Mósaík stór­stjarna á bók­mennta­há­tíð – og heyrt í einni stjörnu ...

Nú, þegar far­fuglar flykkj­ast til lands­ins, er að skella á Bók­mennta­há­tíðin í Reykja­vík en hún hefst 19. apríl með ævin­týra­lega til­komu­mik­illi dag­skrá – eins og alltaf. Þunga­vigt­ar­höf­undar á heims­mæli­kvarða streyma til lands­ins og land­anum gefst færi á að spyrja þá spjör­unum úr, plata þá til að skrifa á bækur og heyra þá fjalla um verk sín.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár