Þessi grein birtist fyrir meira en ári.

Sex þingmenn Framsóknarflokksins vilja leyfa hnefaleika sem „eru góðir fyrir líkama og sál“

Flutn­ings­menn frum­varps sem heim­il­ar at­vinnu- og áhuga­manna­hne­fa­leika segja bann við at­vinnu­manna­hne­fa­leik­um skerða at­vinnu­frelsi. „Það get­ur ver­ið að þótt við fyrstu sýn líti hne­fa­leik­ar út eins og al­menn áflog tveggja manna þá er það langt frá því að vera raun­in,“ seg­ir í grein­ar­gerð frum­varps­ins.

Sex þingmenn Framsóknarflokksins vilja leyfa hnefaleika sem „eru góðir fyrir líkama og sál“
Skerðing á atvinnufrelsi Áhugamannahnefaleikar hafa verið leyfilegir hér á landi í um 20 ár en sex þingmenn Framsóknarflokksins hafa nú lagt fram frumvarp sem heimilar einnig atvinnumannahnefaleika. Þingmennirnir segja bann við atvinnumannahnefaleikum skerða atvinnufrelsi. Mynd: EPA

Sex af þrettán þingmönnum Framsóknarflokksins hafa lagt fram frumvarp á Alþingi um hnefaleika. Þingmennirnir vilja heimila keppni, sýningu og kennslu hnefaleika, bæði áhugamanna- og atvinnumannahnefaleika. 

Flutningsmenn frumvarpsins, sem útbýtt var á Alþingi í gær, eru Ágúst Bjarni Garðarsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Þórarinn Ingi Pétursson, Jóhann Friðrik Friðriksson og Stefán Vagn Stefánsson. „Það getur verið að þótt við fyrstu sýn líti hnefaleikar út eins og almenn áflog tveggja manna þá er það langt frá því að vera raunin,“ segir meðal annars í greinargerð frumvarpsins

Ásamt því að heimila keppni, sýningu og kennslu hnefaleika vilja þingmennirnir heimila sölu og notkun hnefaleikahanska, annars búnaðar og tækja til notkunar við iðkun og þjálfun hnefaleika ásamt mótshaldi tengdu hnefaleikum. Þá er lagt til að Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands setji reglur um iðkun og þjálfun hnefaleika ásamt mótshaldi tengdu hnefaleikum á Íslandi. Hnefaleikasamband Íslands var stofnað árið 2015 og sjö hnefaleikafélög eru starfrækt á Íslandi í dag og reka þau skipulagt íþróttastarf á sviði hnefaleika.

Áhugamannahnefaleikar verið leyfðir frá 2002

Hnefaleikar voru bannaðir á Íslandi árið 1956 með lagasetningu en árið 2002 voru samþykkt lög sem heimila ólympíska hnefaleika, eða áhugamannahnefaleika. Verði frumvarpið að lögum mun það fella úr gildi önnur lög um hnefaleika. Helsti munurinn á atvinnumannahnefaleikum og áhugamannahnefaleikum er sá að skylt er að hafa höfuðhlífar í áhugamannahnefaleikum. Þar eru loturnar einnig færri, alls þrjár, en í atvinnumannahnefaleikum getur viðureign staðið í allt að tólf lotur.  

„Það getur verið að þótt við fyrstu sýn líti hnefaleikar út eins og almenn áflog tveggja manna þá er það langt frá því að vera raunin.“
Úr greinargerð þingmanna Framsóknarflokks um frumvarp um hnefaleika

Í greinargerðinni er saga hnefaleika rakin, þeir sagðir hafa verið vinsæl íþrótt bæði meðal áhorfenda og iðkenda hér á landi og um allan heim. Þá er bent á að hnefaleikamenn hafa verið meðal hæstlaunuðu íþróttamanna heims síðastliðin ár „enda er nánast alltaf slegist um miða á hvern hnefaleikaviðburð ásamt því að fólk um allan heim borgar háar fjárhæðir fyrir að horfa á viðburði hvort sem það er í sjónvarpi eða á netinu“. Í greinargerðinni er einnig minnst á nokkra hnefaleikamenn sem eru „meðal frægustu einstaklinga heims“, til að mynda Muhammad Ali, Mike Tyson, Floyd Mayweather, Manny Pacquiao, Oscar De La Hoya og George Foreman.

Þar segir einnig að hnefaleikar, „stundum kallað „box“ í almennu tali,“ sé á meðal þekktustu íþróttagreina heims. „Ýmsar reglur gilda um lögmæti höggs, öryggisráðstafana er gætt í hvívetna og högg eru mismunandi skilgreind hvað varðar stigagjöf. Ásamt þessu eru ýmis brögð og stílar til staðar sem hnefaleikakappar, eða „boxarar“, hafa varið árum saman í að fullkomna.“

Hnefaleikar góðir fyrir líkama og sál

Þá segir að þeir sem æfa og stunda hnefaleika reglulega „eru almennt í góðu líkamlegu formi og lifa heilbrigðum lífsstíl. Hnefaleikar, eins og allar aðrar íþróttir, eru góðir fyrir líkama og sál.“ 

Flutningsmennirnir segja engan grundvallarmun á hnefaleikum, eða öðrum bardagaíþróttum, og öðrum íþróttum sem viðurkenndar eru hér á landi. „Hins vegar hafa hnefaleikar, sem og margar aðrar bardagaíþróttir verið misskildar og/eða sætt fordómum í áranna raðir hér á landi og víðar.“

Í greinargerðinni segjast flutningsmennirnir vera meðvitaðir um áhættu þess að stunda hnefaleika en benda á að öllum íþróttagreinum fylgir hætta á meiðslum hvort sem þau eru alvarleg eða meiri háttar. 

Bann við hnefaleikum skerðir frelsi bæði til iðkunar og atvinnu að mati flutningsmannanna og vísa þau í 75. grein stjórnarskrárinnar þar sem segir: „Öllum er frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa.“ Það frelsi má þó takmarka með lögum ef almannahagsmunir krefjast þess en flutningsmenn frumvarpsins segja að ekki er talið að almannahagsmunir samfélagsins krefjis þess að takmarka skuli frelsi til atvinnu hvað hnefaleika varða.  

„Með samþykkt frumvarpsins verður staða hnefaleika, þessarar vinsælu íþróttagreinar, styrkt hér á landi og um leið auknir möguleikar á því að atvinnumenn í hnefaleikum geti komið frá Íslandi í náinni framtíð,“ segir í greinargerð frumvarpsins.

Kjósa
-6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gísli Sváfnisson skrifaði
    jú, það er víst best að kjósa framsókn
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "að ekki er talið að almannahagsmunir samfélagsins krefjis þess að takmarka skuli frelsi til atvinnu hvað hnefaleika varða."
    Rothögg getur valdið heilaskemmdum og jafnvel langri innlögn á sjúkrahúsi. Það eru almannahagsmunir að sjúkrahúsin séu ekki ofhlaðin að óþörfu.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
1
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Þórður Snær Júlíusson
5
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Elsku ráð­herr­ar, hætt­ið að gefa Ís­land

Nú stend­ur til að gefa norsk­um lax­eld­is­fyr­ir­tækj­um ís­lenska firði til eign­ar. Þeg­ar er bú­ið að gefa ör­fá­um út­gerð­ar­fjöl­skyld­um hundruð millj­arða króna hið minnsta af fé sem ætti að hafa far­ið í sam­fé­lags­lega upp­bygg­ingu. Vilji er til þess að gefa einka­að­il­um vindorku en eng­inn vilji til þess að rukka ferða­þjón­ustu fyr­ir nýt­ingu á al­manna­g­æð­um. Hvað geng­ur ís­lensk­um ráða­mönn­um eig­in­lega til?

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
1
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
4
Greining

Sleppti mál­tíð­um til þess að kom­ast frá Ás­brú

„Stans­laust von­leysi vakn­ar um leið og þú mæt­ir,“ seg­ir ung­ur venesú­elsk­ur hæl­is­leit­andi um Ás­brú. Þar hafi ver­ið ómögu­legt fyr­ir hann, eða nokk­urn mann, að að­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi – sem er at­riði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hef­ur sagst vilja fleiri bú­setu­úr­ræði á borð við Ás­brú.
Fyrirtækið sem Kvika keypti kom að lánum til félags konu Ármanns
7
ViðskiptiKvika og Ortus

Fyr­ir­tæk­ið sem Kvika keypti kom að lán­um til fé­lags konu Ár­manns

Breska fyr­ir­tæk­ið Ort­us Capital, sem Ár­mann Þor­valds­son, nú­ver­andi for­stjóri al­menn­ings­hluta­fé­lags­ins Kviku, var hlut­hafi í var einn af lán­veit­end­um breska kráar­fyr­ir­tæk­is­ins Red Oak Taverns, sem eig­in­kona Ár­manns á hlut í. Þetta fyr­ir­tæki varð síð­ar að Kviku Secu­rities í Bretlandi og keypti það breskt lána­fyr­ir­tæki af við­skipta­fé­lög­um fyr­ir tveim­ur ár­um fyr­ir millj­arða króna.
Umsækjandi hjá MAST vill rökstuðning: „Ég er vonsvikinn“
8
FréttirLaxeldi

Um­sækj­andi hjá MAST vill rök­stuðn­ing: „Ég er von­svik­inn“

Eg­ill Stein­gríms­son dýra­lækn­ir var ann­ar af um­sækj­end­un­um um sviðs­stjórastarf hjá Mat­væla­stofn­un sem með­al ann­ars snýst um eft­ir­lit með lax­eldi. Fiska­líf­eðl­is­fræð­ing­ur­inn Þor­leif­ur Ág­ústs­son var ráð­inn fram yf­ir hann og vakti ráðn­ing­in at­hygli inn­an MAST vegna já­kvæðra skrifa hans um lax­eldi hér á landi.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
5
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
6
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
7
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Ráðning stjórnanda til MAST vekur athygli: „Ég er fagmaður"
10
FréttirLaxeldi

Ráðn­ing stjórn­anda til MAST vek­ur at­hygli: „Ég er fag­mað­ur"

MAST til­kynnti starfs­mönn­um sín­um um það á mið­viku­dag­inn að bú­ið væri að ráða Þor­leif Ág­ústs­son sem nýj­an sviðs­stjóra yf­ir með­al ann­ars fisk­eld­is­deild­ina hjá stofn­un­ina. Þor­leif­ur hef­ur skrif­að grein­ar þar sem hann tal­ar fyr­ir lax­eldi í sjókví­um. Þor­leif­ur seg­ist vera vís­inda­mað­ur og að hann taki ekki af­stöðu. For­stjóri MAST, Hrönn Jó­hann­es­dótt­ir vill ekki ræða um ráðn­ing­una þeg­ar eft­ir því er leit­að.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár