„Með engum hætti vil ég saka þingmenn um mútuþægni“

Dóms­mála­ráð­herra gaf í skyn úr ræðu­stól Alþingis í dag að þing­menn þægju gjafir frá nýjum Íslend­ingum sem hlotið hefðu rík­is­borg­ara­rétt frá Alþingi. Í yfir­lýs­ingu segir ráð­herr­ann að honum þyki „leitt að ég hafi ekki orðað þann hluta ræðu minnar nægi­lega skýrt.“

„Með engum hætti vil ég saka þingmenn um mútuþægni“
Ráðherra Jón Gunn­ars­son lét umdeild ummæli, sem hann sagði byggja á orðrómi, falla á þingi í dag. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra segir í yfir­lýs­ingu sem hann birti á Facebook í dag að það hafi ekki hvarflað að honum að ásaka neinn þing­mann um að hafa þegið mútur og að honum þyki „leitt að ég hafi ekki orðað þann hluta ræðu minnar nægi­lega skýrt. Með engum hætti vil ég saka þing­menn um mútu­þægni.“

Ráð­herr­ann gaf í skyn úr ræðu­stól Alþingis í dag að þing­menn þægju gjafir frá nýjum Íslend­ingum sem hlotið hefðu rík­is­borg­ara­rétt frá Alþingi. Hann fleytti með orðum sínum áfram dylgjum sem settar hafa verið fram, sér í lagi um tvo til­tekna stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn sem á árum áður störf­uðu sem lög­menn, m.a. við rétt­ar­gæslu ein­stak­linga sem sótt hafa um alþjóð­lega vernd á Íslandi.

Orðrétt sagði Jón, í umræðum um fund­ar­stjórn for­seta:

„Hitt er svo hvernig staðið hefur verið að rík­is­borg­ara­rétt­ar­veit­ingu hér á Alþingi, það held ég að sé til­efni til þess að skoða, virðu­legur for­seti, og það má líka skoða það, t.a.m. í nefnd­inni sem um þetta fjall­aði, hver eru mögu­leg tengsl fólks við það fólk sem hefur verið veittur rík­is­borg­ara­réttur. Var mögu­legt að ein­hverjir hefðu komið að borð­inu áður með atvinnu eða vinnu við að sinna þeim hæl­is­leit­endum sem voru að fá veit­ingu rík­is­borg­ara­réttar, hafa mönnum borist ein­hver sér­stakur þakk­læt­is­vottur fyrir að hafa veitt rík­is­borg­ara­rétt. Þetta eru kannski atriði sem, virðu­legur for­seti, væri ástæða til að fá til skoð­unar hjá nefnd­inni og fá svör við því hvort ein­hver orðrómur um slíkt eigi við rök að styðj­ast.“

Samkvæmt 103. grein almennra hegn­ing­ar­laga liggur allt að tveggja ára fang­elsi við því að taka við, fara fram á að fá eða láta lofa sér „fé eða öðrum hagn­aði til þess að greiða atkvæði á ákveð­inn hátt eða til þess að greiða ekki atkvæði.“

Í yfir­lýs­ing­unni sem Jón birti í kvöld segir hann að það hafi ekki verið rétt hjá sér að vitna til orðróms sem hafi verið í gangi. Hann hafi enda ekki lagt slíkt í vana sinn. „Í ræðu minni á þingi vís­aði ég til þess orðróms sem hefur verið á kreiki um að til­tek­inn þing­maður hafi greitt atkvæði um umsóknir um rík­is­borg­ara­rétt handa ein­stak­lingum sem hann hafði sinnt hags­muna­gæslu fyrir. Þá hafi þing­maður hugs­an­lega í ein­hverju til­viki þegið þakk­læt­is­vott fyrir aðkomu sína að afgreiðslu mála. Í ræðu minni ávarp­aði ég þennan orðróm og kall­aði eftir því hann yrði skoð­aður enda um alvar­legt mál að ræða ef rétt reyn­ist. Það hvarfl­aði hins vegar ekki að mér að ásaka neinn um að hafa þegið mútur og mér þykir leitt að ég hafi ekki orðað þann hluta ræðu minnar nægi­lega skýrt. Með engum hætti vil ég saka þing­menn um mútu­þægni.“

Gagnrýndur harðlega

Stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn gagn­rýndu ummæli Jóns harð­lega á þingi í dag. Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ingar, var þar á meðal og sagði að henni væri „mjög brugðið“ við ummæli dóms­mála­ráð­herra, sem vænt­an­lega hefðu beinst að nefnd­inni allri, eða ef til vill bara að þeim sem hefðu starfað með erlendu fólki. Hún er þar á meðal.

„Hvert erum við komin herra for­seti þegar við þurfum að sitja undir þessum róg hér, frá hæst­virtum ráð­herrum og þing­mönnum? Að við séum með ein­hver ann­ar­leg sjón­ar­mið uppi þegar við erum að afgreiða hér lög. Margur heldur mig sig. Þetta er slíkur við­bjóður, ég er orðin svo leið á þessu, svo leið á þessum róg frá þing­mönnum og ráð­herrum Sjálf­stæð­is­flokks­ins að ég óska eftir því að herra for­seti grípi inn í þegar þeir koma hér trekk í trekk með lyg­ina að vopni. Þetta er orðið alveg pass­legt,“ sagði Helga Vala. 

Er Helga Vala gekk úr ræðu­stól, fram­hjá Bjarna Bene­dikts­syni for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, heyrð­ist hún á útsend­ingu Alþingis segja: „Reyndu að hafa stjórn á þessu liði“.

Arndís Anna K. Gunn­ars­dóttir, þing­maður Pírata, sagði orð dóms­mála­ráð­herra við­ur­styggi­leg og að mörgu leyti ekki svara­verð.

„Mér hins vegar finnst rétt að koma hérna og bera af mér sakir. Ég hef aldrei þegið mútur fyrir það að veita fólki rík­is­borg­ara­rétt með frá Alþingi, aldrei, og myndi aldrei gera. Mál­flutn­ingur hæst­virts dóms­mála­ráð­herra þykir mér sýna hversu slæman mál­stað hann hefur að verja, þegar hann sér ástæðu til að leggj­ast svona lágt,“ sagði Arndís Anna.

Jón fékk líka skammir frá stjórn­ar­þing­manni. Jódís Skúla­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, sagði „óboð­legt að fá slík orð frá hæst­virtum dóms­mála­ráð­herra eins og hér voru látin falla“ en Jódís situr í und­ir­nefnd alls­herjar- og mennta­mála­nefndar sem fjallar um umsóknir til Alþingis um rík­is­borg­ara­rétt og sagði nefnd­ar­menn þar sinna því starfi af heil­indum. 

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Siggi Rey skrifaði
    Held að Vellýgni Bjarni þurfi að taka niður um þeim Jón og rassskella hann. Gengur ekki að hann fari fram úr Vellýgna Bjarna í ósannsögli!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár