Mynd: Shutterstock

Háhyrningar ættaðir frá Íslandi enduðu sem sýningardýr á Tenerife

Tugir háhyrn­inga voru fang­aðir við strendur Íslands á átt­unda og níunda ára­tug síð­ustu aldar og seldir í dýra­garða. Þeir áttu margir hverjir ömur­lega ævi, enda rifnir frá fjöl­skyldum sínum, töp­uðu jafn­vel glór­unni og urðu fólki að bana. Sumir þeirra lifa enn – og nokkrir nákomnir ætt­ingjar þeirra eru í haldi á Tenerife.

Þeir eru svo sætir. Stinga hausnum bros­andi upp úr vatn­inu. Allt að því hjala krútt­lega og elska að leika sér. Með bolta. Í sund­laug. Við mann­eskju.

Þannig voru, og eru kannski enn að ein­hverju leyti, nokkurn veg­inn hug­myndir margrar mann­eskj­unnar um háhyrn­inga. Þá er enn hægt að sjá í dýra­görðum þar sem þeir synda á spretti um litlar laugar, velta sér um í vatn­inu – nú eða loft­inu – í til­komu­miklum stökkum og skvetta stríðn­is­lega vatni á við­stadda. Fá síld að launum. Þakka fyrir sig með því að hneigja höf­uðið.

Og fólk klappar. Hrópar. Sjáið hann stökkva! Hann er svo snið­ugur! Sér ekki eftir því að borga sig inn í garð­inn. Kannski þennan á Tenerife, hinni miklu Íslend­inganý­lendu. Þar eru háhyrn­ingar í haldi sem „slegið hafa í gegn“ hjá gestum. Hafast við í laugum sem eru mest 120 metrar á lengd og nokkrir metrar á dýpt. Búa við bestu aðstæður …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Þekking

Alheimurinn í nýju og skarpara ljósi
Þekking

Alheim­ur­inn í nýju og skarpara ljósi

Nýjasta stór­virki mann­kyns­ins, James Webb geim­sjón­auk­inn, er ætlað að skoða myndun fyrstu stjarna og vetr­ar­brauta alheims­ins. Hvar og hvenær kvikn­aði fyrsta ljósið í alheim­inum? Hvernig verða stjörnur og sól­kerfi til? Hvernig mynd­uð­ust vetr­ar­braut­irnar? Hvaða eðlis- og efna­fræði­lega eig­in­leika þurfa plánetur og sól­kerfi að hafa til að geyma líf? Fyrstu myndir sjón­aukans eru komnar. „Þær voru enn skýr­ari, skarp­ari og glæsi­legri en ég átti von á,“ segir Sævar Helgi Bragason.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár