Sjúkratryggingar Íslands auglýstu um miðjan febrúar eftir tilboðum frá heilbrigðisfyrirtækjum á einkamarkaði sem framkvæma liðskiptaaðgerðir á mjöðmum og hnjám á skurðstofum. Sjúkratryggingar gera ráð fyrir að samningur taki gildi fyrir 1. apríl næstkomandi og að þá verði byrjað að framkvæma liðskiptaaðgerðir á einkaspítala. Fjögur fyrirtæki tóku þátt í útboðinu: Cosan slf, Ledplastikcentrum, Stoðkerfi ehf. og Klíníkin ehf.
Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga, sagði í samtali við Heimildina, eftir að greint var frá hvaða fyrirtæki hefðu boðið í aðgerðirnar, að Landspítalinn hafi ekki getað gert nægilega margar liðskiptaaðgerðir. „Afköst spítalans hafa því ekki staðið undir þörfum. Ég skil málið þannig að áður hafi verið settur sérstakur peningur inn í Landspítalann til að fjölga þessum aðgerðum en það hafi ekki staðist,“ sagði forstjóri Sjúkratrygginga.
Alls voru 2.055 manneskjur á biðlista eftir liðskiptaaðgerð í september síðastliðnum. Á heimasíðu embættisins má sjá að biðlistar eftir ýmsum skurðaðgerðum hafa tútnað út undanfarin ár.
Athugasemdir