Evrópa og ný skipting heimsins

Óttinn við stríðan straum flótta­manna er einn sterkasti drif­kraftur evrópskra stjórn­mála. Pólitískar afleiðingar slíks ótta gætu valdið miklum skemmdum á evrópskum samfélögum. Þetta er samevrópskur vandi. Hann krefst náinnar samvinnu.

Flóttafólk
Flótta­fólk Óttinn við stríðan straum flótta­manna er einn sterkasti drif­kraftur evr­ópskra stjórn­mála. Mynd: AFP

Heimurinn er að skiptast með nýjum hætti. Ekki í tvær blokkir eins og í kalda stríðinu, heldur í óstöðug og takmörkuð bandalög margra stórvelda, svæðis­bundin valda­kerfi og flókin flekaskil sem spanna alla jörðina. Nýjar ógnir við öryggi þjóða eru að birtast. Ríki, jafnvel stór­veldin, eiga sífellt erfiðara með að tryggja hagsmuni sína án mikillar samvinnu. Árangur þjóða ræðst æ meir af hæfni þeirra til þátttöku í nánum banda­lögum ríkja. 

Lítil og stór álfa

Stutt er síðan Evrópa réði heiminum og enn sýnist álfan okkar giska stór. Ekki á heims­korti þar sem hún er skagi út úr Asíu. Og ekki lengur að mann­fjölda því hún verður sífellt minni í ört vaxandi mannhafi heimsins. En í nánast öllu öðru tilliti er Evrópa fyrirferðar­mikil í heiminum. Hún er heimkynni flestra þeirra þjóð­félaga sem tróna efst á nánast öllum listum um góðan árangur ríkja, allt frá menntun og heil­brigði til jafnréttis, kaup­máttar, mann­réttinda, lýðræðis og öryggis. Evrópskar borgir drottna á flestum listum yfir notalegustu og lífvænlegustu borgir heimsins. En stjórnmál álfunnar einkennast þó oft af ótta og reiði.

Lexíur af Brexit 

Útganga Breta og innrás Rússa í Úkraínu breytti tilfinningum íbúa Evrópu fyrir stöðu sinni í heiminum. Öfugt við slagorða­kenndan aðdrag­anda Brexit urðu deilurnar og atburðarás Brexit upplýsandi fyrir fólk. ESB varð skiljanlegri veruleiki. Raun­veruleg valda­kerfi, uppbygging, starf og tilgangur ESB varð ljósari. 

Einfeldningslegar kenningar um Brusselvaldið og andlits­lausa embættis­menn hafa að mestu vikið fyrir öllu vitrænni umræðu um ástæður aukinnar samvinnu ríkja og veru­leikann í Evrópu. Jafnvel popúlistar á hægri kanti stjórn­mála í flestum löndum ESB berjast ekki lengur fyrir útgöngu sinna ríkja. Vaxandi meirihluti breskra kjósenda telur að útgangan úr ESB hafi verið mistök en einungis þriðjungur að Brexit hafi verið rétt ákvörðun.   

Hið eiginlega fullveldi

Stuðningur við náið Evrópu­samstarf hefur sennilega aldrei verið dýpri og almennari í álfunni. Fregnir af deilum munu þó áfram einkenna fréttir fjölmiðla af ESB enda ekki annars af vænta af nánu samstarfi nær þrjátíu ólíkra ríkja með jafnmörg þjóðþing og hundruð stjórn­málaflokka. 

Niður­staðan af Brexit er hins vegar sú að fleiri en áður gera sér ljóst að hin eiginlega fullveldis­barátta í  Evrópu snýst ekki um ítrasta sjálfræði einstakra ríkja, heldur um möguleika evrópskra samfélaga til að ráða sem mestu um örlög sín í risa­stórum, samtengdum og ófrið­legum heimi. Mögu­leikar Evrópu­ríkja til þess fara minnkandi og hvíla sífellt meira á nánu samstarfi.  

Lexíur af Úkraínu

Innrásin í Úkraínu jók líka stuðning við samstarf Evrópu­ríkja. Hún varð hins vegar einnig til þess að hugmyndir um hernaðarlegt sjálf­stæði Evrópu frá Banda­ríkjunum víkja að mestu til hiðar. Niður­staðan er annars vegar sú að ESB myndar nú þéttari og sterkari pólitíska og efnahags­lega blokk en áður og hins vegar að öryggi Evrópu verður áfram nátengt Banda­ríkjunum í breyttri heim­skipan. Þótt menningarlegar og pólitískar gjár á milli Evrópu og Banda­ríkjanna fari breikkandi verða Vestur­lönd því áfram til sem einn fleki í þeim hnattrænu umbrotum sem nú eiga sér stað. Þetta á sérstak­lega við um öryggismál en síður annað, allt frá pólitískum gildum til viðskipta­hagsmuna. 

Hvorum megin lendir Rússland?

Þótt stríðið í Úkraínu hafi þjappað Vestur­löndum saman er alveg ljóst að vestrænu forræði í heiminum hnignar og það nokkuð hratt. Í risa­samfélögum Asíu er litið á Úkraínu­stríðið sem stað­bundið evrópskt vandamál. Það sem skiptir máli fyrir fram­tíðina, segir fólk í flestum stærstu samfélögum jarðarinnar, er ekki hvað gerist í Evrópu heldur hvernig hlutirnir verða á Indlandi og í Kína. 

Það er að miklu leyti rétt en að einu leyti rangt. Ein allra stærsta spurning alþjóða­mála snýst um það hvort Rússland lendir austan eða vestan fleka­skila í heiminum sem eru sífellt betur að koma í ljós. Rússar eru austan megin núna, og verða það áfram ef pútínismi ræður. Fátt skiptir meira máli fyrir stöðu Evrópu í heiminum og framvindu alþjóða­mála en að Rússland tengist aftur hinum evrópska heimi.  

Úkraína og Balkanskagi

Úkraína og átta ríki á Balkans­kaga sækjast eftir fullri aðild að ESB sem allra fyrst. ESB ræður ekki við inngöngu þeirra í bili en reynslan af lýðræðisvæðingu og efnahags­uppgangi í tengslum við stækkun banda­lagsins til tuttugu ríkja í Suður- og Austur-Evrópu á síðustu áratugum lofar góðu. Framtíð lýðræðis, velmegunar og öryggis Úkraínu hvílir á því að þetta gangi. Það sama má segja um mörg lönd Balkan­skagans. 

Kína hefur gert miklar tilraunir til að auka áhrif sín í fjölda ríkja í austan­verðri Evrópu sem eru ýmist utan eða innan ESB. Tilgangurinn er að veikja einingu innan ESB og draga úr áhrifum sambandsins. Síðustu misserin hefur hins vegar hvert landið af öðru snúið af braut aukinna samskipta við Kína. Ástæðurnar eru margar, ekki síst klaufalegar tilraunir Kína til pólitískra áhrifa og vonbrigði með fjár­festingar og lánakjör.  

Öryggisleysið

Rætur pólitískrar ólgu í Evrópu eru margar en einhvers konar öryggis­leysi er jarðvegur þeirra flestra. Evrópa hefur hlutfalls­lega minnkað og virðist vanmáttug gagnvart alvarlegum ógnunum að utan. Þetta vekur eðlilega ótta. Annað er að viðbrögð margra kjósenda í Evrópu við vandræðum samtímans hafa vakið spurningar um veiga­mikil grunn­gildi í álfunni. Það veldur kvíða. 

Við þetta bætist svo reiði yfir því hvernig efnahags­kerfi álfunnar hefur þróast hinum ríku til stórkostlegra hagsbóta en þeim fátækari til lítils ávinnings. Og svo eðlileg móðgun margra yfir því að menningarlegar elítur álfunnar eru taldar líta niður á almenning og skilja illa þá angist sem víða ríkir innan hennar.    

Stærsta öryggismál Evrópu?

Fjölgun flótta­manna frá öðrum heims­svæðum er það sem veldur dýpstri angist í Evrópu. Líta má á þetta sem alvarlegasta öryggis­vanda álfunnar. Ekki vegna þess að flótta­fólk sé hættulegt heldur vegna þeirra áhrifa sem stór­aukinn straumur flótta­manna getur haft á stjórnmál Evrópu­ríkja. 

53%
Nýleg könnun Gallup í Nígeríu bendir til að 53% íbú­anna vilja flytja úr landi.

Nýleg könnun Gallup í Nígeríu bendir til að 53% íbúanna vilja flytja úr landi. Þetta er ekki vegna stríðs­átaka, þau eru stað­bundin, heldur vegna atvinnu­leysis, glæpa og vonleysis. Nígeríu­menn eru 220 milljónir og verða fleiri en Bandaríkja­menn eftir rúm tuttugu ár. Nígería er aðeins eitt af tugum landa í svipuðum sporum. Pakistan er annað risaríki í miklum vanda sem milljónir reyna nú að flýja. Evrópa er algengasti draumurinn. 

Að frátöldu Rússlandi verða Evrópu­menn fljótlega færri en íbúar Nígeríu og Pakistan, aðeins tveggja af tugum landa sem fólk vill flýja. Óttinn við stríðan straum flótta­manna er einn sterkasti drif­kraftur evrópskra stjórn­mála. Pólitískar afleiðingar slíks ótta gætu valdið miklum skemmdum á evrópskum samfélögum. Þetta er samevrópskur vandi. Hann krefst náinnar samvinnu. 

Kjósa
57
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár