Mál á hendur feðgunum í morðmálinu á Blönduósi fellt niður

Héraðs­saksóknari telur að feðgarnir á Blönduósi hafi beitt neyðar­vörn til að verjast yfir­standandi árás Brynjars Þórs Guðmunds­sonar, sem skaut og myrti Evu Hrund Péturs­dóttur og særði Kára Kárason alvarlega í ágúst síðastliðnum. Brynjar lést í átökunum.

Málið fellt niður
Málið fellt niður Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur fellt niður mál á hendur feðg­unum. Mynd: Unsplash

Embætti héraðs­saksóknara hefur fellt niður mál á hendur feðgunum á Blönduósi, sem haft hafa réttar­stöðu grunaðra um að hafa orðið valdir að dauða Brynjars Þórs Guðmunds­sonar. Brynjar ruddist inn í hús á Blönduósi í ágúst síðastliðnum, skaut heimilis­föðurinn Kára Kárason í magann og særði alvarlega, og skaut síðan eiginkonu Kára, Evu Hrund Péturs­dóttur, í höfuðið og banaði henni.

Brynjar lést eftir átök við Hilmar Þór Kárason, son þeirra Kára og Evu Hrundar, og leiddi réttar­krufning í ljós að dánar­orsök hans var köfnun vegna þrýstings á háls og brjóst. Fengu þeir feðgar báðir réttar­stöðu sakbornings við rannsókn málsins.

„Það er okkar nið­ur­staða að þeir hafi þarna verið að afstýra yfir­stand­andi árás“
Kolbrún Bene­dikts­dóttir
sak­sókn­ari
Beittu neyð­ar­vörnKolbrún Bene­dikts­dóttir hér­aðs­sak­sókn­ari segir emb­ættið meta það svo að feðgarnir hafi beitt neyð­ar­vörn og verið að afstýra yfir­stand­andi árás.

Mál á hendur feðgunum var hins vegar fellt niður í gær. Kolbrún Benedikts­dóttir saksóknari stað­festir þetta í samtali við Heimildina. „Já. Það var gert á grund­velli neyðar­varnar, það er okkar niður­staða að þeir hafi þarna verið að afstýra yfir­standandi árás og ekki farið út fyrir takmörk leyfilegrar neyðar­varnar. Þar af leiðandi er málið ekki talið líklegt til sakfellingar og því fellt niður.“

Málinu er því að öllum líkindum lokið í ljósi þess að Brynjar er látinn og engum sakborningi til að dreifa. Þó segir Kolbrún að eins og með aðrar ákvarðanir héraðs­saksóknara sé mögulegt að þeir sem hlut eigi að máli geti kært niður­stöðuna til ríkis­saksóknara. „Það verður bara að koma í ljós hvort um eitthvað slíkt verður að ræða eða ekki.“

Átök leiddu til dauða

Samkvæmt rannsókn lögreglunnar á Norður­landi eystra, sem fór með málið, fór Brynjar inn um ólæstar dyr á húsi þeirra Kára og Evu á Blönduósi 21. ágúst síðastliðinn. Hafði hann meðferðis afsagaða hagla­byssu. Mun hann síðan hafa farið út af heimilinu en Kári farið á eftir honum. Kom til orða­skipta þeirra á milli fyrir utan húsið sem endaði með því að Brynjar skaut Kára. Að því loknu fór hann aftur inn í húsið og banaði Evu Hrund.

Kári mun hafa elt Brynar inn í húsið og náð á honum tökum á meðan hann var að hlaða hagla­byssuna. Mun Hilmar þá hafa komið föður sínum til aðstoðar. Hilmar mun hafa náð byssunni af Brynjari og síðan hafi komið til harkalegra átaka þeirra á milli sem enduðu með því að Brynjar lést.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár