1069. spurningaþraut: Bræður og systur koma hér við sögu

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir kastal­inn sem sjá má á mynd­inni hér að ofan? Nafnið verður að vera nán­ast staf­rétt.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað hét sá sem lét reisa þennan kast­ala?

2.  Banda­rískir bræður sem báru nafnið Jackson mynd­uðu fyrir nokkrum ára­tugum vin­sæla hljóm­sveit. Brátt tók þó einn bróð­ir­inn að skyggja á hina, bæði hvað snerti vin­sældir og skandala ýmsa ófagra (þegar fram í sótti). Hvað hét hann?

3.  Systur þeirra bræðra lögðu einnig fyrir sig tón­list og náðu tvær þeirra all­miklum vin­sældum, hvor í sínu lagi. Hvað hétu syst­urnar — og hér þarf að hafa bæði skírn­ar­nöfnin rétt!

4.  Hvaða íslensku systk­ini gáfu bæði út glæpa­sögur fyrir síð­ustu jól — annað þeirra reyndar í sam­vinnu við annan mann og óskyldan? Nöfn beggja þurfa að vera rétt.

5.  Herculaneum var smá­borg í Róma­veldi. Af hverju hefur nafn borg­ar­innar varð­veist þótt nöfn ótelj­andi sam­bæri­legra smá­borga hafi gleymst?

6.  Hvað heitir lengsti neð­an­sjáv­ar­fjalla­garður Jarðar?

7.  Þegar páf­inn í Róm flytur ræðu á heima­slóðum ávarpar hann fólk „urbi et orbi“. Hvað þýðir það?

8.  „Veistu gæskur að ...“ hvað?

9.  Í hvaða úthafi eru Kiribati-eyjar?

10.  Hvað heitir kunn­asta versl­un­ar­gatan í London?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað hét konan á mynd­inni?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Lúðvík.  Það dugar.

2.  Michael.

3.  La Toya og Janet.

4.  Ármann og Katrín Jak­obs­börn.

5.  Hún grófst undir ösku í sama gosi og Pompeii. 

6.  Atl­ants­hafs­hrygg­ur­inn eða —fjall­garð­ur­inn.

7.  „Í borg og heimi“.

8.  „... ekki er allt sem sýn­ist?“

„Veistu gæskur ...“

9.  Kyrra­haf­inu.

10.  Oxford Street.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Neuschwanstein kastal­inn.

Á neðri mynd­inni er Edda Heiðrún Backmann leik­kona.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár