Stuðningur við ríkisstjórnina ekki mælst minni á kjörtímabilinu

Samfylkingin er stærsti flokkur landsins samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Stuðningur við ríkis­stjórnina hefur ekki verið minni á kjör­tímabilinu og mælist nú 39 prósent.

Samanlagt fylgi ríkis­stjórnar­flokkanna þriggja mælist 39 prósent samkvæmt nýjustu könnun Maskínu og hefur ekki mælst minna á kjör­tímabilinu.

Samfylkingin er með 23 prósent fylgi, mest allra flokka. Þar á eftir kemur Sjálfstæðis­flokkurinn með 20 prósent fylgi. Munurinn á fylgi flokkanna er þó innan skekkju­marka. Svo var ekki þegar Samfylkingin mældist með 25,3 prósent fylgi í könnun Gallup sem birtist í byrjun febrúar og er það í fyrst sinn síðan 2009 sem flokkurinn mælist stærstur. 

Fylgi flokks­ins hefur farið hratt upp á við eftir að Kristrún Frosta­dóttir til­kynnti um for­manns­fram­boð í Sam­fylk­ing­unni í ágúst 2022, en hún var kjörin for­maður flokks­ins í októ­ber. Í könnun Maskínu mælist Sam­fylk­ingin nú með 13,1 prósentu­stigi meira fylgi en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021.

Sjálfstæðis­flokkurinn mælist með 20 prósent fylgi, 4,4 prósentu­stigum minna en flokkurinn fékk í síðustu Alþingis­kosningum. Framsóknar­flokkurinn mælist með 12 prósent fylgi, 5,3 prósentu­stigum minna en flokkurinn fékk í kosningunum haustið 2021. Vinstri græn mælast með 7 prósent fylgi, 5,6 prósentu­stigum minna en flokkurinn fékk í kosningunum. 

Ríkis­stjórnin hefur ekki mælst með jafn lítið fylgi á kjör­tímabilinu eins og nú, 39 prósent. Samanlagt fengu Sjálfstæðis­flokkur, Framsóknar­flokkur og Vinstri græn 54,4 prósent atkvæða í þing­kosningunum í september 2021. Stuðningur við ríkis­stjórnina eftir kosningar hefur mest mælst 50,9 prósent, í mars 2022, og í júlí sama ár mældist stuðningurinn 50,2 prósent.

Könnunin fór fram á netinu 3. til 13. febrúar og var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem dregin er með tilviljun úr Þjóðskrá. Svarendur voru alls staðar af á landinu, 18 ára og eldri. 1.892 svarenur tóku afstöðu til flokks. 

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Þessi ríkisstjórn hefur lifað sjálfa sig. Kófið varð að líkindum til þess að hún skrimti síðustu kosningar.
    0
  • Baldur Gudmundsson skrifaði
    Þessi útkoma stjórnarflokkanna kemur mér alls ekki á óvart það er allt í skrúfunni hjá henni um þessar mundir.
    0
  • Ásta Jensen skrifaði
    Ég kýs sjálfstæðisflokkinn útaf útlendingafrumvarpinu
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár