Stuðningur við ríkisstjórnina ekki mælst minni á kjörtímabilinu

Sam­fylk­ingin er stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt nýrri könnun Maskínu. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina hefur ekki verið minni á kjör­tíma­bil­inu og mælist nú 39 pró­sent.

Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja mælist 39 pró­sent sam­kvæmt nýj­ustu könnun Maskínu og hefur ekki mælst minna á kjör­tíma­bil­inu.

Sam­fylk­ingin er með 23 pró­sent fylgi, mest allra flokka. Þar á eftir kemur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 20 pró­sent fylgi. Munurinn á fylgi flokk­anna er þó innan skekkju­marka. Svo var ekki þegar Sam­fylk­ingin mæld­ist með 25,3 pró­sent fylgi í könnun Gallup sem birt­ist í byrjun febr­úar og er það í fyrst sinn síðan 2009 sem flokk­ur­inn mælist stærstur. 

Fylgi flokks­ins hefur farið hratt upp á við eftir að Kristrún Frosta­dóttir til­kynnti um for­manns­fram­boð í Sam­fylk­ing­unni í ágúst 2022, en hún var kjörin for­maður flokks­ins í októ­ber. Í könnun Maskínu mælist Sam­fylk­ingin nú með 13,1 pró­sentu­stigi meira fylgi en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 20 pró­sent fylgi, 4,4 pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 12 pró­sent fylgi, 5,3 pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum haustið 2021. Vinstri græn mæl­ast með 7 pró­sent fylgi, 5,6 pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum. 

Rík­is­stjórnin hefur ekki mælst með jafn lítið fylgi á kjör­tíma­bil­inu eins og nú, 39 pró­sent. Sam­an­lagt fengu Sjálf­stæð­is­flokkur, Fram­sókn­ar­flokkur og Vinstri græn 54,4 pró­sent atkvæða í þing­kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina eftir kosn­ingar hefur mest mælst 50,9 pró­sent, í mars 2022, og í júlí sama ár mæld­ist stuðn­ing­ur­inn 50,2 pró­sent.

Könnunin fór fram á net­inu 3. til 13. febr­úar og var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem dregin er með til­viljun úr Þjóðskrá. Svar­endur voru alls staðar af á land­inu, 18 ára og eldri. 1.892 svarenur tóku afstöðu til flokks. 

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Þessi ríkisstjórn hefur lifað sjálfa sig. Kófið varð að líkindum til þess að hún skrimti síðustu kosningar.
    0
  • Baldur Gudmundsson skrifaði
    Þessi útkoma stjórnarflokkanna kemur mér alls ekki á óvart það er allt í skrúfunni hjá henni um þessar mundir.
    0
  • Ásta Jensen skrifaði
    Ég kýs sjálfstæðisflokkinn útaf útlendingafrumvarpinu
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár