Nærsamfélag Hvammsvirkjunar mun njóta takmarkaðs ávinnings af orkuframleiðslunni

Efna­hags­legur ávinn­ingur Hvamms­virkj­unar mun koma fram þar sem orkan er nýtt en ekki í nær­sam­fé­lag­inu þar sem orkan er fram­leidd, sam­kvæmt grein­ing­ar­vinnu Skeiða- og Gnúp­verja­hrepps þar sem Hvamms­virkjun á að rísa.

Nærsamfélag Hvammsvirkjunar mun njóta takmarkaðs ávinnings af orkuframleiðslunni
Hvamms­virkjun Lands­virkjun hefur sótt um fram­kvæmda­leyfi til sveit­ar­fé­lag­anna tveggja sem Hvamms­virkj­unin yrði inn­an; Skeiða- og Gnúp­verja­hrepps og Rangár­þings ytra. Virkj­unin mun ekki þjóna hags­munum Skeiða- og Gnúp­verja­hrepps til fram­tíðar í óbreyttri mynd sam­kvæmt grein­ing­ar­vinnu sem unnin hefur verið fyrir sveit­ar­fé­lagið. Mynd: Landsvirkjun

Nær­sam­fé­lag Skeiða- og Gnúp­verja­hrepps mun njóta mjög tak­mark­aðs ávinn­ings af orku­fram­leiðsl­unni sem hlýst af fyr­ir­hug­aðri Hvamms­virkjun á meðan efna­hags­legur ávinn­ingur mun koma fram þar sem orkan er nýtt. Hvamms­virkjun mun því ekki þjóna hags­munum Skeiða- og Gnúp­verja­hrepps til fram­tíðar í óbreyttri mynd. 

Þetta sýna tölu­legar stað­reyndir sem eru hluti af grein­ing­ar­vinnu sveit­ar­stjórnar Skeiða- og Gnúp­verja­hrepps um áhrif orku­fram­leiðsl­unnar á nærum­hverfi íbúa, og áhrif á nær­sam­fé­lags orku­fram­leiðslu almennt. 

Sveit­ar­stjórn Skeiða- og Gnúp­verja­hrepps lagði fram bókun á fundi sínum í gær þar sem hún hvetur öll sveit­ar­fé­lög á lands­byggð­inni sem hafa orku­mann­virki í nærum­hverfi sínu, eða eru með hugs­an­leg virkj­ana­á­form í far­vatn­inu, til þess að staldra við í skipu­lags­málum virkj­ana á meðan sann­gjörn skipt­ing auð­lind­ar­innar verður fest í lög. „Með öðrum kosti verða engin orku­skipti á Íslandi í náinni fram­tíð,“ segir meðal ann­ars í bók­un­inni.  

Orkustofnun gefur grænt ljós og Landsvirkjun sækir um framkvæmdaleyfi 

Hvamms­virkj­un, virkjun sem deilt hefur verið um í ára­fjöld, verður 95 MW að afli. Áin verður stífluð með 350 metra langri og allt að 18 metra hárri jarð­vegs­stíflu og við hana mun mynd­ast fjög­urra fer­kíló­metra lón.

Hvamms­virkjun er stóru skrefi nær því að verða að veru­leika með virkj­un­ar­leyfi Orku­stofn­un­ar sem gefið var út í byrjun des­em­ber. Á aðfanga­dag var greint frá því að Lands­virkjun hefur sótt um fram­kvæmda­leyfi til sveit­ar­fé­lag­anna tveggja sem virkj­unin yrði inn­an; Skeiða- og Gnúp­verja­hrepps og Rangár­þings ytra. Sam­hliða fram­kvæmda­leyf­inu verða útboð fram­kvæmda­þátta und­ir­bú­in. Þá þarf einnig sam­þykki stjórnar Lands­virkj­unar fyrir fram­kvæmd­inni áður en hægt er að hefj­ast handa.

Ef öll þessi mál fá jákvæða umfjöllun gæti bygg­ing virkj­un­ar­innar, sem yrði sú sjö­unda á Þjórs­ár- og Tungna­ár­svæð­inu, haf­ist í sumar. Lands­virkjun von­ast til að virkj­unin verði komin í gagnið 2026. 

Tryggja þarf í lögum að nærumhverfi njóti efnahagsleg ávinnings

Í bókun sveit­ar­stjórn­ar­innar er það gagn­rýnt að ekk­ert sam­tal hefur átt sér stað á milli ríkis og sveit­ar­fé­laga sem þurfa að skipu­leggja og heim­ila fram­kvæmd­irnar. „Það er stað­reynd að nærum­hverfið þar sem orkan er fram­leidd nýtur mjög tak­mark­aðs ávinn­ings af henni.“ Sveit­ar­stjórnin vill að tryggt verði með lögum að nærum­hverfið þar sem orkan á upp­sprettu sína njóti efna­hags­legt ávinn­ings sem mun styrkja byggð þar sem orkan verður til um allt land. Einnig þurfi að breyta raf­orku­lögum til að tryggja að dreifi­kostn­aður raf­orku sé sá sami í dreif­býli og þétt­býli. 

Bókun sveit­ar­stjórnar Skeiða- og Gnúp­verja­hrepps í heild sinni: 

„Rík­is­stjórn Íslands setti í stjórn­ar­sátt­mála sinn aðgerðir um orku­skipti og útfösun jarð­efna­elds­neytis, þar sem grunnur er lagður að fullum orku­skiptum, að þeim verði náð eigi síðar en árið 2040 og að Ísland verði óháð jarð­efna­elds­neyti fyrst þjóða. Hvamms­virkjun er ein­ungis fyrsta skrefið af mörgum í gríð­ar­legum áform­uðum virkj­ana­fram­kvæmdum Lands­virkj­unar í nærum­hverfi Skeiða- og Gnúp­verja­hrepps á næstu 17 árum.

Ekkert sam­tal hefur átt sér stað á milli ríkis og sveit­ar­fé­laga sem þurfa að skipu­leggja og heim­ila allar þessar fram­kvæmdir. Það er stað­reynd að nærum­hverfið þar sem orkan er fram­leidd nýtur mjög tak­mark­aðs ávinn­ings af henni.

Tryggja þarf með lögum að nærum­hverfið þar sem orkan á upp­sprettu sína, njóti efna­hags­legs ávinn­ings sem mun styrkja byggð þar sem orkan verður til um allt land. Einnig þarf að breyta raf­orku­lögum til að tryggja að dreifi­kostn­aður raf­orku sé sá sami í dreif­býli og þétt­býli.

Sveit­ar­stjórn Skeiða- og Gnúp­verja­hrepps hvetur öll sveit­ar­fé­lög á lands­byggð­inni sem hafa orku­mann­virki í nærum­hverfi sínu, eða eru með hugs­an­leg virkj­ana­á­form í far­vatn­inu til þess að staldra við í skipu­lags­málum virkj­ana á meðan sann­gjörn skipt­ing auð­lind­ar­innar verður fest í lög. Með öðrum kosti verða engin orku­skipti á Íslandi í náinni fram­tíð.“

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár