Ormur Guðjónsson fæddist í líkama stúlku og var gefið nafnið Dagbjört. Fyrsta æskuminningin er frá maskadegi, sem flestir þekkja sem öskudag, á Ísafirði, þar sem hann bjó. Hann var á leikskólaaldri, fjögurra eða fimm ára gamall, og langaði svo til að vera Indiana Jones. „Ég fékk kúrekahatt sem pabbi átti. Hann átti líka smink og notaði svamp til að setja á mig skeggrót. Ég var ógeðslega krúttlegur Indiana Jones. Fæstar stelpur vilja vera Indiana Jones, sem gefur kannski hugmynd um að ég var ekkert stelpa.“
Einhverju sinni var hann fyrir sunnan og fór út á leikvöll þar sem hann hitti ókunnuga krakka. Þeir spurðu hvað hann héti og hann svaraði um hæl: „Gústaf.“
Fjölskyldan flutti til Akureyrar þegar Ormur var sjö ára. Hann lýsir því hvernig eineltið litaði öll hans grunnskólaár. „Ég byrjaði í fyrsta bekk í grunnskólanum á Ísafirði en eftir ár fékk pabbi vinnu á Akureyri …
Athugasemdir (1)