Fylgi Framsóknar í borginni hrynur en meirihlutinn bætir samt við sig

Næstum helm­ingur borg­ar­búa er óánægður með störf borg­ar­stjóra en flokkur hans mælist samt sem áður stærsti flokk­ur­inn í borg­inni. Píratar bæta við sig mestu fylgi en allir í minni­hluta nema Sós­í­alista­flokk­ur­inn hafa tapað fylgi frá síð­ustu kosn­ingum.

Fylgi Framsóknar í borginni hrynur en meirihlutinn bætir samt við sig
Á bæn? Einar Þor­steins­son leiddi Fram­sókn­ar­flokk­inn til mik­ils kosn­inga­sig­urs fyrir örfáum mán­uðum síðan. Fylgið hefur dreg­ist saman um rúm­lega tíu pró­sentu­stig siðan þá. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn í Reykja­vík, undir for­ystu Einars Þor­steins­sonar, mælist með 8,2 pró­sent fylgi í nýrri könnun Maskínu. Flokk­ur­inn vann mik­inn kosn­inga­sigur í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum  í fyrra­vor þegar hann fékk 18,7 pró­sent atkvæða. Því hefur Framsókn tapað 10,5 pró­sentu­stigum af fylgi það sem af er kjör­tíma­bili, en Einar mun taka við sem borg­ar­stjóri um næstu ára­mót. 

Hinir flokk­arnir sem mynd­uðu meiri­hluta með Fram­sókn­ar­flokknum; Sam­fylk­ingin, Píratar og Viðreisn, bæta allir við sig fylgi frá kosn­ing­unum. Sam­fylk­ingin bætir við sig 3,1 pró­sentu­stigi, mælist stærsti flokk­ur­inn í borg­inni og nýtur stuðn­ings 23,4 pró­sent kjós­enda. Píratar bæta mesta allra flokka við sig, tæpum níu pró­sentu­stigum, og mæl­ast með 20,4 pró­sent fylgi. Viðreisn fer svo úr 5,2 í 6,8 pró­sent fylgi. Sam­an­lagt mælist fylgi flokk­anna sem mynda meiri­hlut­ann 58,8 pró­sent. Það er þremur pró­sentu­stigum meira en þeir fengu í kosn­ing­unum í maí í fyrra. 

Af því leiðir að minna hlut­fall kjós­enda myndi vilja kjósa flokk­anna sem sitja í minni­hluta borg­ar­stjórnar nú en gerðu það í síð­ustu kosn­ingum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, stærsti flokk­ur­inn í minni­hluta og sá sem fékk flest atkvæði allra í síð­ustu kosn­ingum, mælist nú með 22,3 pró­sent fylgi. Það er 2,2 pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn fékk í fyrra­vor. Flokkur fólks­ins fer úr 4,5 í 3,8 pró­sent og Vinstri græn úr 4,0 í 3,3 pró­sent. 

Eini flokk­ur­inn í minni­hlut­anum sem bætir við sig fylgi frá kosn­ingum er Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem fer úr 7,7 í 9,6 pró­sent. 

Sanna stendur sig best

Maskína mældi einnig ánægju með meiri- og minni­hluta og það hvort fólki fynd­ist Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar, standa sig vel. Einungis 21,5 pró­sent sögðu að þeim fynd­ist meiri­hlut­inn vera að standa sig vel og 46,6 pró­sent töldu hann raunar vera að standa sig illa. 

Aðspurðir voru þó enn minna hrifnir af frammi­stöðu minni­hlut­ans. Einungis 11,7 pró­sent sögðu að hann stæði sig vel og 44,9 pró­sent telja að hann hafi staðið sig illa. Alls sögð­ust tæp­lega 28 pró­sent vera ánægð með störf Dags sem borg­ar­stjóra en 48 pró­sent voru óánægð með hann.

ÁnægjaSanna Magda­lena Mörtu­dóttir er sá borg­ar­full­trúi sem flestir eru ánægðir með.

Maskína spurði líka um þann borg­ar­full­trúa sem fólki þótti hafa staðið sig best. Þar nefndu flestir, 15,5 pró­sent, Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur, odd­vita Sós­í­alista­flokks­ins. Dagur kom þar á eftir með 12,9 pró­sent og fast á hæla hans Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Alex­andra Briem, borg­ar­full­trúi Pírata, var nefnd af 10,3 pró­sent aðspurðra en Einar Þor­steins­son, vænt­an­legur borg­ar­stjóri, af ein­ungis 8,5 pró­sent. 

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóð­hópur fólks sem dreg­inn er með til­viljun úr Þjóðskrá, á net­inu. Alls voru svar­endur 702, en þeir eru á aldr­inum 18 ára og eldri og búsettir í Reykja­vík. Könnunin fór fram 25. nóv­em­ber til 2. des­em­ber 2022. Nið­ur­stöð­urnar voru fyrst birtar í dag.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár