Hvað er hæfileg neysla?

Ummæli fyrr­ver­andi heil­brigð­is­ráð­herra Dan­merkur um hlut­verk áfengis, einkum bjórs, hvað sé hæfi­leg neysla og til­gang­ur­inn með neysl­unni, hafa vakið mikla athygli í Danmörku. Ráð­herr­ann fyrr­ver­andi er núver­andi fram­kvæmda­stjóri sam­taka bjór- og gos­fram­leið­enda.

Hvað er hæfileg neysla?
Nick Hækkerup Margir Danir drekka of mikið. Fyrr­ver­andi ráð­herr­ann telur bjór þó síður en svo óhollan. Mynd: AFP

Bjór er lífs­gleði og félags­skapur er yfir­skriftin á við­tali sem birt­ist í jóla­blaði sam­taka danskra bjór- og gos­drykkja­fram­leið­enda við fram­kvæmda­stjór­ann, Nick Hækkerup. Bryggerifor­en­ingen, eins og sam­tökin heita, voru stofnuð árið 1899 og starfs­menn félaga innan sam­tak­anna eru um 50 þús­und, víðs vegar um heim, þar af 4.600 í Danmörku.
Það er kannski ekki að undra að fram­kvæmda­stjór­inn tengi fram­leiðslu vinnu­veit­enda sinna við jákvæðni í líf­inu, hverjum þykir jú sinn fugl fagur. Það sem ýmsum þykir athygl­is­vert í þessu sam­bandi er að umræddur fram­kvæmda­stjóri er fyrr­ver­andi heil­brigð­is­ráð­herra Dan­merkur.

Nick Hækkerup er fæddur árið 1968, lög­fræð­ingur frá Hafn­ar­há­skóla og með dokt­ors­próf í Evrópu- og þjóða­rétti. Hann gekk ungur til liðs við flokk sós­í­alde­mókrata og varð borg­ar­stjóri í Hillerød árið 2000 (þau sem við köllum bæjar-eða sveit­ar­stjóra heita borg­ar­stjórar í Danmörku). Hann varð þing­maður árið 2007 og sat á þingi til árs­ins 2022. Gegndi emb­ættum ráð­herra dóms­mála, varn­ar­mála, við­skipta- og Evr­ópu­mála, í rík­is­stjórnum Helle Thorning-Schmidt og Mette Frederik­sen. Síðast en ekki síst var Nick Hækkerup ráð­herra heil­brigð­is­mála og for­varna frá júlí 2019 til maí 2022 en sagði þá af sér til að setj­ast í fram­kvæmda­stjóra­stól sam­taka bjór- og gos­drykkja­fram­leið­enda. 

„Í áður­nefndu við­tali sagði Nick Hækkerup að bjór sé síður en svo óhollur, í hófi. Nú verði bjór­brans­inn að hætta að beygja sig fyrir hrein­trú­ar­fólki og heil­brigðispostulum“

Í áður­nefndu við­tali sagði Nick Hækkerup að bjór sé síður en svo óhollur, í hófi. Nú verði bjór­brans­inn að hætta að beygja sig fyrir hrein­trú­ar­fólki og heil­brigðispostulum sem líti á allt út frá ein­hverju mæl­an­legu, þyngd og  tommu­stokk­skvarða. „Það eru nefni­lega líka lífs­gæði sem ekki verða metin með þessu móti, ástin á börnum okkar, gleðin við að ganga um í nátt­úr­unni. Ánægjan af að fá sér bjór með vinnu­fé­lögum, eða for­eldrum ann­arra barna í sum­ar­bú­staðnum. Gleði og sorg eru ekki mæl­an­leg með tommu­stokk­skvarð­anum.“ Þegar blaða­mað­ur­inn spurði hverja hann ætti við þegar hann nefndi hrein­trú­ar­fólkið og heil­brigðispost­ul­ana sagði Nick Hækkerup að það væru ýmis sam­tök sem kenndu sig við heil­brigðan og hollan lífs­stíl, og heil­brigð­is­yf­ir­völd. „Full­yrð­ingar um að allt umfram 10 áfeng­is­ein­ingar á viku ( í einni 12% rauð­víns­flösku eru 6-7 ein­ingar, í  ½ lítra dós af 6% bjór eru 2 ein­ingar) séu hættu­legar byggja ekki á stað­reyndum.“ Fram­kvæmda­stjór­inn dró síðan fram blað með nið­ur­stöðum fjöl­margra rann­sókna á sam­hengi áfeng­is­neyslu og heilsu­fars. Þar segir að dag­leg neysla 1 til 3 ein­inga áfengis sé ekki skað­leg heils­unni. „Við þetta bæt­ist svo lífs­gæðin og gleðin. Semsagt: Bjór er lífs­gleði, bjór er félags­skapur, bjór er hluti dönsku þjóð­arsál­ar­innar,“ sagði Nick Hækkerup og bank­aði með kúlu­penn­anum í skrif­borðið.

Ráðlagt að drekka minna

Nick Hækkerup nefndi í við­tal­inu áður­nefndar 10 áfeng­is­ein­ingar á viku. Með þess­ari tölu vís­aði hann til ráð­legg­inga Sund­heds­styrel­sen (stofnun hlið­stæð íslenska Land­lækn­is­emb­ætt­inu) frá því snemma á síð­asta ári.
Þar er mælt með að hver ein­stak­lingur, eldri en 18 ára, drekki ekki meira en 10 áfeng­is­ein­ingar á viku, og ekki meira en 4 ein­ingar á einum og sama deg­inum. Í þessu fólust umtals­verðar breyt­ingar frá leið­bein­ing­unum sem gefnar voru út árið 2010. Þar var mælt með að karlar drykkju ekki meira en 14 ein­ingar viku­lega og konur að hámarki 7 ein­ingar. Eldri leið­bein­ingar höfðu hljóðað upp á 21 viku­lega ein­ingu fyrir karla og 14 fyrir konur.
Breyt­ingin er mikil og í nýju leið­bein­ing­unum er það nýmæli að ráð­lagt hámark er það sama fyrir konur og karla.

800 þúsund Danir drekka of mikið

Í skýrslu frá danska krabba­meins­fé­lag­inu (Kræftens Bekæmpelse) sem var gefin út árið 2020 kom fram að 800 þús­und Danir drykkju of mikið, miðað við þáver­andi leið­bein­ingar Sund­heds­styrel­sen, áður­nefndar 14 viku­legar ein­ingar fyrir karla og 7 fyrir konur. Samkvæmt nýju leið­bein­ing­unum um æski­legt hámark væri talan langtum hærri en 800 þús­und. Í skýrsl­unni segir að hver Dani, eldri en 18 ára, drekki að jafn­aði 9,5 lítra af hreinum vín­anda á ári hverju. Árlega lát­ast að minnsta kosti 1.800 Danir úr krabba­meini sem rekja má til áfeng­is­neyslu og 1.200 til við­bótar af völdum ann­arra sjúk­dóma sem tengj­ast ofneyslu áfengis, segir í skýrslu danska krabba­meins­fé­lags­ins.

Aukin áfengisneysla ungmenna veldur áhyggjum

Dönsk ung­menni byrja fyrr að neyta áfengis en jafn­aldrar þeirra í öðrum löndum Evrópu og drekka jafn­framt meira.
Í skýrslu Sund­heds­styrel­sen frá árinu 2020 kemur fram að á fyrstu 16 árum þess­arar aldar hafi dregið úr áfeng­is­neyslu danskra ung­menna en síðan hafi neyslan auk­ist á ný. Árið 2018 lagði Sund­heds­styrel­sen fram til­lögur um að ald­urs­mörk til áfeng­is­kaupa yrðu hækkuð í 18 ár.  Samkvæmt núgild­andi lögum mega ung­menni sem náð hafa 16 ára aldri kaupa bjór og vín, svokölluð skot, allt að 16,5% styrk­leika. Í fram­haldi af þessum til­lögum Sund­heds­styrel­sen lagði þáver­andi rík­is­stjórn Mette Frederik­sen  (2015 -2019) fram til­lögur um að hækka áfeng­is­kaupa­ald­ur­inn í 18 ár. Ekki náð­ist sam­staða um þetta á danska þing­inu.
Í stjórn­ar­sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar er kveðið á um að stjórnin hafi for­ystu um for­varn­ar­að­gerðir sem mið­ist að því að draga úr neyslu ung­menna á áfengi. Blaða­maður Politi­ken spurði Sophie Løhde heil­brigð­is­ráð­herra hvort stjórnin ætl­aði sér að hækka áfeng­is­kaupa­ald­ur­inn í 18 ár. Ráð­herr­ann svar­aði ekki spurn­ing­unni en vís­aði á stjórn­ar­sátt­mál­ann.
Ulrik Becker, læknir og sér­fræð­ingur í áfeng­is­tengdum sjúk­dómum, sem sat í nefnd­inni sem lagði til að áfeng­is­kaupa­ald­ur­inn yrði hækk­aður, sagði það mikil von­brigði að það hefði ekki náðst. „Í Banda­ríkj­unum er áfeng­is­kaupa­aldur víð­ast hvar 21 ár, og það er ekki til­viljun. Það er sam­hengi milli mik­illar áfeng­is­neyslu á unga aldri og áfeng­is­vanda­málum síðar á ævinni. Það er ekki fyrr en um tví­tugs­ald­ur­inn, 20- 21 árs, að heil­inn er nægi­lega þrosk­aður til að umgang­ast áfengi,“ sagði Ulrik Becker í við­tali við Politi­ken.

DrukÍ þess­ari vin­sælu dönsku kvik­mynd frá 2020 kanna nokkrir vinir hvort það sé rétt að mann­eskjan sé fædd með of lítið magn af alkó­hóli í lík­am­anum.

Ulrik Becker sagði í áður­nefndu við­tali að það væri lang­hlaup að breyta siðum og venjum tengdum áfengi. „Við sjáum þó breyt­ingar, fyrir 20-30 árum var það siður í mörgum fyr­ir­tækjum að byrja vinnu­dag­inn á morg­un­snafs, þetta heyrir nán­ast sög­unni til.“ Og bætti við: „Það er athygl­is­vert að hugsa til þess að ef áfengi yrði fundið upp í dag yrði ekki leyfi­legt að selja það.“ Þarna vísar Ulrik Becker til talna um dauðs­föll af völdum áfengis.

Aukin umræða og kvikmyndin Druk

Umræður um áfengi, ekki síst ung­linga­drykkju, hefur auk­ist mikið í Danmörku á allra síð­ustu árum. Í kvik­mynd­inni Druk (Mátu­legir), sem frum­sýnd var árið 2020, segir frá fjórum vinnu­fé­lögum, kenn­urum í mennta­skóla. Útgangs­punktur mynd­ar­innar er að mann­eskjan sé fædd með of lítið alkó­hólmagn í blóð­inu og vin­irnir ákveða að kanna hvort þetta sé rétt. Efni mynd­ar­innar skal ekki rakið hér en myndin vakti mikla athygli og hefur fengið mikla aðsókn. Í mörgum dönskum fram­halds­skólum fóru fram, eftir að myndin var frum­sýnd, miklar umræður um áfengi og áfeng­is­neyslu. Áður­nefndur Ulrik Becker telur slíka umræðu af því góða og seg­ist sann­færður um að myndin veki marga til umhugs­unar.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár