Efling boðar til atkvæðagreiðslu um verkfall hjá Íslandshótelum

Samn­inga­nefnd Eflingar fund­aði með starfs­fólki Íslands­hót­ela í gær og sam­þykkti í kjöl­farið verk­falls­boðun. Verði hún sam­þykkt í atkvæða­greiðslu þeirra sem hún tekur til mun verk­fall hefj­ast 7. febr­úar.

Efling boðar til atkvæðagreiðslu um verkfall hjá Íslandshótelum
Verkfall Samn­inga­nefnd Eflingar fund­aði með fjöl­mennum hópi starfs­fólks Íslands­hót­ela í gær­kvöldi, áður en að verk­falls­boð­unin var sam­þykkt Mynd: Efling

Samn­inga­nefnd Eflingar sam­þykkti verk­falls­boðun á fundi sínum í gær. Hún tekur til starfs­stöðva Íslands­hót­ela á félags­svæði Eflingar, alls sjö hót­ela. Félags­fólk sem verk­falls­boð­unin nær til mun nú kjósa um hvort það vilji að ráð­ist verði aðgerð­irnar eða ekki en um er að ræða starfs­fólk sem sinnir þrifum á her­bergjum og í sam­eig­in­legum rýmum, störfum í eld­húsi, við fram­leiðslu veit­inga, þvott og fleira. 

Atkvæða­greiðslan opnar á hádegi á morgun og stendur fram á mánu­dags­kvöld. Verði verk­fall sam­þykkt mun ótíma­bundin vinnu­stöðvun hefj­ast á hádegi 7. febr­úar næst­kom­andi. Hún mun ná til allra starfa undir kjara­samn­ingi Eflingar við Samtök atvinnu­lífs­ins um vinnu í veit­inga- og gisti­húsum sem starfa á eft­ir­far­andi sjö hót­elum: 

  • Foss­hotel Reykja­vík…………….. Þór­unn­ar­tún 1, 105 Reykja­vík
  • Hotel Reykja­vík Grand………… Sigtún 28, 105 Reykja­vík
  • Hotel Reykja­vík Saga…………… Lækj­ar­gata 12, 101 Reykja­vík
  • Hotel Reykja­vík Centrum…….. Aðal­stræti 16, 101 Reykja­vík
  • Foss­hotel Baron…………………… Bar­óns­stígur 2-4, 101 Reykja­vík
  • Foss­hotel Lind…………………….. Rauð­ar­ár­stígur 18, 105 Reykja­vík
  • Foss­hotel Rauðará……………….. Rauð­ar­ár­stígur 37, 105 Reykja­vík

Efling sleit við­ræðum við Samtök atvinnu­lífs­ins 10. jan­úar síð­ast­lið­inn og til­kynnti sam­hliða að und­ir­bún­ingur verk­falls­að­gerða væri haf­inn. 

Yfirgnæfandi hluti konur af erlendum uppruna

Í til­kynn­ingu sem Efling sendi frá sér síð­degis í dag segir að samn­inga­nefndin hafi fundað með fjöl­mennum hópi starfs­fólks Íslands­hót­ela í gær­kvöldi, áður en að verk­falls­boð­unin var sam­þykkt. „Meðlimir samn­inga­nefndar Eflingar hafa jafn­framt heim­sótt allar starfs­stöðvar Íslands­hót­ela og rætt við félags­fólk. Við­hengdar myndir eru af þessum heim­sóknum og af fund­inum í gær. Í síð­asta til­boði til SA krafð­ist samn­inga­nefnd Eflingar þess að hót­el­störf yrðu hækkuð um launa­flokk. Töflu­hækkun til­boðs Eflingar myndi skila almennum hót­el­starfs­manni með eins árs starfs­aldur rúm­lega 55 þús­und króna hækkun grunn­launa, til við­bótar við fram­færslu­upp­bót að upp­hæð 15 þús­und á mán­uði vegna hás fram­færslu­kostn­aðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.“

Þar er haft eftir Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, for­manni Eflingar, að hót­el­starfs­fólk sé með lægst laun­aða fólki á íslenskum vinnu­mark­aði og að yfir­gnæf­andi hluti þess séu konur af erlendum upp­runa. „Þessi sami hópur sam­þykkti sögu­legar verk­falls­að­gerðir vorið 2019 sem áttu mik­inn þátt í að ljúka góðum kjara­samn­ingum þá. Eftir þessu man félags­fólk. Hjá þeim skynja ég sama hug­rekki, sömu reisn og sömu stað­festu og árið 2019.“

Í mánu­dags­molum Samtaka atvinnu­lífs­ins, sem birtir voru fyrr í dag, segir að þau hafi hafnað kröfum Eflingar um að samið verði um hækk­anir launa umfram þann kjara­samn­ing sem und­ir­rit­aður var við Starfs­greina­sam­band Íslands (SGS) 3. des­em­ber síð­ast­lið­inn. 

Samtökin segj­ast til­búin að ræða aðlögun kjara­samn­ings SGS að stöðu Efl­ing­ar­fólks, innan kostn­að­ar­ramma og meg­in­lína kjara­samn­ings SGS, en að þau hafi hins vegar ekki séð „mál­efna­legar for­sendur fyrir greiðslu sér­staks fram­færslu­á­lags á félags­svæði Eflingar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Kjós, Hvera­gerði, Ölfusi og Grímsnes- og Grafn­ings­hreppi.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ég er ekki að saka neinn um óeðlilega hagsmunagæslu eða óeðlilegar spurningar, Mér hefur bara alltaf fundist nafnleysi vera angi af þeim gamla leiða sið að pískra,nöldra og nagga undir húsveggjum eða bak við horn en þagna svo um leið og sá sem talað er um birtist. Annars varðandi Eflingu, það að kjarasamningar losnuðu á síðasta ári er ekkert sem að datt af himnum ofan skyndilega,það var vitað lengi. Það var líka vitað að Sólveig og hennar hópur eru herská og vígdjörf. Á síðasta ári stóð félagsmönnum það til boða að kjósa hana eða hafna. Hver var þátttaka félagsmanna? Hún var altént ekki þau cirka 20000 sem eru í félaginu. Lýðræði er hlutur sem að lifir ekki nema vera ástundaður. Þessvegna finnst mér ódýrt að fara að nöldra eftirá, því þáttökuleysi er sama og samþykki. Segjum sem svo að það sé almenn óánægja meðal félagsmanna nú, þá spyr ég hvar var fólkið þá. Það væri óskandi að fólk færi að kannast við það að við berum ábyrgð sjálf hverjir ráða í stéttarfélögum, í sveitarstjórnum og á alþingi. Við fáum því bara þær stjórnir sem við eigum skilið. Annars óska ég Eflingarfólki alls hins besta.
    0
  • OV
    Ofeigur Vilhjalmsson skrifaði
    Hvað er þetta stór prósenta Eflingarfélaga sem fær að kjósa á meðan allir aðrir fá að bíða? Af hverju máttu almennir Eflingarfélagar ekki bara kjósa um SGS samninginn?
    -1
    • SIB
      Sigurður I Björnsson skrifaði
      Sérstakt að vilja ekki koma undir nafni. Viðkomandi gæti þessvegna heitið Halldór Benjamín.
      -1
    • Jóhannes Ragnarsson skrifaði
      Af því einfaldlega að Efling var ekki aðili að kjarasamningi Starfsgreinasambandsins.
      0
    • OV
      Ofeigur Vilhjalmsson skrifaði
      Jóhannes, er Efling ekki í SGS? Ég bara skil ekkert tilganginn með þessu öllu.

      Sigurður, eru þessar spurningar svo vondar eða hættulegar að aðeins væri hægt að spyrja þær í annarlegum tilgangi? Eða heldur þú að öll nafnleynd sé í raun leynileg hagsmunagæsla? Ég skil ekki athugasemdina þína. Ég vona samt að þú getir ímyndað þér að til séu aðrar og fleiri ástæður fyrir því að kjósa sér nafnleynd. Svo er margt sinnið sem skinnið eins og amma sagði einu sinni.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaradeila Eflingar og SA

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár