Samfylkingin mælist stærst – Með meira fylgi en Vinstri græn og Framsókn til samans

Stærstu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir þrír mæl­ast nú með meira fylgi en rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír. Sam­fylk­ingin mælist með 1,8 pró­sentu­stigum meira en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sam­kvæmt nýrri könnun Maskínu.

Samfylkingin mælist stærst – Með meira fylgi en Vinstri græn og Framsókn til samans
Á flugi Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar hefur stökk­breyst eftir að Kristrún Frosta­dóttir tók við for­mennsku í flokknum í fyrra­haust. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sam­fylk­ingin heldur áfram að bæta við sig fylgi sam­kvæmt nýrri könnun Maskínu. Í könnun sem fyr­ir­tækið gerði 13. til 18. jan­úar mæld­ist fylgi flokks­ins 23,6 pró­sent. Fylgið hefur auk­ist um 3,5 pró­sentu­stig síðan síð­asta könnun Maskínu var birt í lok síð­asta árs og um 13,7 pró­sentu­stig frá síð­ustu kosn­ingum, þegar flokk­ur­inn fékk 9,9 pró­sent atkvæða. 

Sam­fylk­ingin mælist nú með meira fylgi en Fram­sókn­ar­flokkur og Vinstri græn til sam­ans en sam­an­lagt fylgi þeirra flokka, sem báðir sitja í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki, mælist 20,4 pró­sent. 

Allir rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir hafa tapað fylgi það sem af er kjör­tíma­bili. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn minnst, en hann mælist með 21,8 pró­sent fylgi eftir að hafa fengið 24,4 pró­sent atkvæða haustið 2021. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur tapað mestu, en fylgi hans hefur farið úr 17,3 í 12,1 pró­sent. Vinstri græn mæl­ast nú sjötti stærsti flokkur lands­ins með 8,2 pró­sent fylgi, en flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra fékk 12,6 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum. 

Sam­an­lagt hafa stjórn­ar­flokk­arnir þrír tapað 12,2 pró­sentu­stigum það sem af er kjör­tíma­bili og mæl­ast með 42,1 pró­sent fylgi. Það er nokkuð langt frá því að duga til áfram­hald­andi stjórn­ar­setu ef kosið yrði í dag og nið­ur­staða Maskínu kæmi upp úr kjör­köss­unum. 

Aðrir flokkar sem hafa bætt við sig fylgi á kjör­tíma­bil­inu, utan Sam­fylk­ing­ar­innar, eru Píratar og Viðreisn. Píratar hafa bætt við sig 1,8 pró­sentu­stigi og mæl­ast með 10,4 pró­sent fylgi og Viðreisn 0,8 pró­sentu­stig, en fylgi flokks­ins mælist nú 9,1 pró­sent. 

Flokkur fólks­ins, sem mælist með 6,9 pró­sent fylgi, og Mið­flokk­ur­inn, sem mælist með 5,1 pró­sent, njóta báðir minni stuðn­ings nú en þeir gerðu í lok sept­em­ber 2021. Sömu sögu er að segja af Sós­í­alista­flokki Íslands, sem náði ekki inn á þing í síð­ustu kosn­ingum en komst afar nálægt því. Fylgi hans mælst nú 3,6 pró­sent. Það minnkar um 2,5 pró­sentu­stig frá síð­ustu Mask­ínu­könnun sem gerð var í lok síð­asta árs.  

Athygli vekur að sam­eig­in­legt fylgi þeirra þriggja stjórn­ar­and­stöðu­flokka sem oft eru kall­aðir hin frjáls­lynda miðja: Sam­fylk­ingin, Píratar og Viðreisn, mælist nú 43,1 pró­sent. Þessir þrír flokkar mæl­ast því með meira fylgi en rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir sem stendur. 

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðmundur Thoroddsen skrifaði
    Það sem skiptir mestu máli fyrir venjulegt fólk á Íslandi, er að Sjálfstæðisflokknum verði komið varanlega út úr fjármálaráðuneytinu.
    0
  • OÖM
    Oddur Örvar Magnússon skrifaði
    Gleðileg tíðindi.
    Kristrún Frostadóttir er líklega sú eina sem nær að snúa þjóðarskútunni frá heljum.
    2
  • Óskar Þór Árnason skrifaði
    Fólk er farið að hugsa.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár