Sara Björk hættir að leika með landsliðinu

Lands­liðs­fyr­ir­lið­inn Sara Björk Gunn­ars­dóttir hefur ákveðið að leika ekki fleiri lands­leiki fyrir Íslands hönd.

Sara Björk hættir að leika með landsliðinu

Sara Björk Gunn­ars­dóttir, fyr­ir­liði íslenska lands­liðs­ins í knatt­spyrnu, greindi frá því í morgun að hún myndi ekki leika fleiri lands­leiki fyrir Íslands hönd. Sara Björk er 32 ára gömul og hefur verið lyk­il­leik­maður í kvenna­lands­lið­inu nær allar götur frá því hún lék sinn fyrsta lands­leik 16 ára gömul.

Hún hefur leikið 145 lands­leiki frá árinu 2007 og segir, í yfir­lýs­ingu sem hún birti á sam­fé­lags­miðlum, að hún telji rétt að kveðja lands­liðið á þessum tíma­punkti knatt­spyrnu­fer­ils­ins. 

Sara hefur tví­vegis verið valin íþrótta­maður árs­ins í kjöri íþrótta­f­rétta­manna, árin 2018 og 2020. Hún hefur leikið með nokkrum af fremstu knatt­spyrnu­liðum Evrópu, meðal ann­arra Wolfsburg í Þýska­landi og Lyon í Frakk­landi, auk Juventus á Ítalíu, þar sem hún leikur nú.

Sara Björk segir að hún líti stolt til baka á lands­liðs­fer­il­inn og það að hafa verið hluti af lands­liði Íslands sem komst í fyrsta sinn á Evr­ópu­mót árið 2009 og þakkar KSÍ, öllum þjálf­urum, starfs­mönnum og leik­mönnum lands­liðs­ins fyrir, í færslu sem hún birti á Twitter í morgun.

„Ég óska sam­band­inu og lið­inu alls hins besta og bjartrar fram­tíðar,“ segir Sara Björk í færslu sinni.






Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár