Stundin og Kjarninn fá heimild Samkeppniseftirlitsins til samruna

Þrátt fyrir að við­mið um til­kynn­ing­ar­skyldu sam­runa séu almennt þrír millj­arðar í veltu þurftu Kjarninn og Stundin að til­kynna sam­runa til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og sækja und­an­þágu­heim­ild til að gefa út sam­eig­in­legan fjöl­miðil á morgun.

Stundin og Kjarninn fá heimild Samkeppniseftirlitsins til samruna

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur á ell­eftu stundu veitt Kjarn­anum og Stund­inni und­an­þágu­heim­ild til að hefja útgáfu á sam­ein­uðum fjöl­miðli. Nýr fjöl­mið­ill Kjarnans og Stund­ar­innar lítur dags­ins ljós í prent- og vef­út­gáfu í fyrra­málið, en sam­ein­ing og sam­starf miðl­anna krafð­ist und­an­þágu frá eft­ir­lit­inu.

Almennt þarf heim­ild Sam­keppn­is­eft­ir­lit­ins til þess að sam­eina tvö félög sem hafa sam­eig­in­lega meira en þrjá millj­arða króna í veltu. Þrátt fyrir að Stundin og Kjarninn hafi sam­tals rétt rúm­lega tíunda hluta þess í veltu, sem að lang­mestu leyti sam­anstendur af áskriftum og styrkjum almenn­ings, þurfa fjöl­miðl­arnir að til­kynna sam­run­ann til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Ástæðan er sér­á­kvæði í lögum um fjöl­miðla sem skylda fjöl­miðla til að til­kynna sam­runa þeirra félaga sem hafa meira en 100 millj­ónir króna í veltu. 

Fallist á rök fyrir undanþágu

Í und­an­þágu­beiðni til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins kom fram að töf á fram­kvæmd sam­run­ans gæti skaðað hags­muni fyr­ir­tækj­anna.

Í svari Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins sem barst í kvöld segir að fall­ist hafi verið á þau sjón­ar­mið, í beiðni um und­an­þágu til að fram­kvæma sam­runa fyrir end­an­lega nið­ur­stöðu eft­ir­lits­ins, að tafir á sam­runa gætu skaðað fyr­ir­tækin.

„Samkvæmt 4. mgr. 17. gr. a sam­keppn­islaga getur Sam­keppn­is­eft­ir­litið veitt und­an­þágu frá því að sam­runi komi ekki til fram­kvæmda á meðan eft­ir­litið fjallar um hann, enda sé sýnt fram á að tafir á fram­kvæmd geti skaðað við­kom­andi fyr­ir­tæki eða við­skipta­að­ila þess og að sam­keppni sé stefnt í hættu. Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur farið yfir fram­komin rök og kynnt sér gögn sem fylgdu beiðn­inni. Byggt á fyr­ir­liggj­andi gögnum er það nið­ur­staða eft­ir­lits­ins að veita beri umrædda und­an­þágu.“

Þá segir Sam­keppn­is­eft­ir­litið að Fjöl­miðla­nefnd hafi vakið athygli á því að fjöl­miðlar eigi undir högg að sækja og að starfs­fólki þeirra hafi fækkað um 45% á und­an­förnum árum. Eft­ir­litið vísar til yfir­lýs­inga aðstand­enda Stund­ar­innar og Kjarnans um að ástunda sjálf­bæran rekstur. „Þá hafa sam­runa­að­ilar opin­ber­lega einnig fjallað um að sjálf­bær rekstur sé eitt af grunn­mark­miðum nýs fjöl­mið­ils í erf­iðu rekstr­ar­um­hverfi og á mark­aði þar sem við­var­andi tap­rekstur fjöl­miðla sé algengur.“

Samkeppnishömlur séu annars konar

Í beiðni Stund­ar­innar og Kjarnans kom fram að sam­run­inn ógn­aði ekki fjöl­ræði eða fjöl­breytni fjöl­miðla á Íslandi, heldur styddi við mark­mið þar að lút­andi. Sam­keppn­is­hömlur í fjöl­miðlum á Íslandi fælust einna helst í stór­felldum nið­ur­greiðslum á starf­semi ann­arra fjöl­miðla. Þá séu helstu birgjar Stund­ar­innar í eigu sam­keppn­is­að­ila. Póst­dreif­ing, sem dreifir prent­blöðum, sé í eigu útgáfu­fé­laga Frétta­blaðs­ins og Morg­un­blaðs­ins, og Lands­prent, sem prentar dag­blöð, sé alfarið í eigu útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins. 

Þrátt fyrir heim­ild­ina áskilur Sam­keppn­is­eft­ir­litið sér rétt til að vinda ofan af sam­runa Kjarnans og Stund­ar­innar. Þau skil­yrði séu sett að rekstr­ar­að­il­arnir „grípi ekki til neinna aðgerða sem geri það ómögu­legt eða veru­legum erf­ið­leikum háð að vinda ofan af sam­run­anum, svo sem ef það verður  nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar að sam­run­inn hindri virka sam­keppni og/eða hafi nei­kvæð áhrif á fjöl­ræði og fjöl­breytni þannig að íhlut­unar sé þörf,“ segir í svari Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Nýr, sam­ein­aður fjöl­mið­ill Stund­ar­innar og Kjarnans kemur því út í fyrra­málið eins og fyr­ir­hugað hafði verið.

Fyr­ir­vari um hags­muni: Í frétt­inni fjallar Stundin um stjórn­valds­að­gerð sem bein­ist að útgáfu­fé­lagi mið­ils­ins og hefur því hags­muni tengda umfjöll­un­ar­efn­inu.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu