Ætlar að þjóna kjósendum – ekki flokknum og stjórnmálamönnum

George Santos, nýkjör­inn þing­maður repúblik­ana í full­trúa­deild Banda­ríkja­þings, við­ur­kennir að hafa fegrað eigin fer­il­skrá. Það hafi verið mis­tök en hann ætlar ekki að segja af sér þing­mennsku þrátt fyrir kröfu þess efnis.

Ætlar að þjóna kjósendum – ekki flokknum og stjórnmálamönnum
„Ég segi ekki af mér“ George Santos, þing­maður Repúblikana­flokks­ins, laug til um menntun, starfs­reynslu og einka­líf í aðdrag­anda þing­kosn­inga í nóv­em­ber. Hann sér enga ástæðu til að segja af sér þing­mennsku. Mynd: AFP


Tugir valda­manna innan Repúblikana­flokks­ins í New York, þar á meðal fjórir þing­menn í full­trúa­deild Banda­ríkja­þings, hvetja George Santos, þing­mann repúblik­ana í rík­inu, til að segja af sér þing­mennsku. Kevin McCarthy, nýkjör­inn for­seti full­trúa­deild­ar­innar, er á öðru máli.

Santos var kjör­inn á þing full­trúa­deildar Banda­ríkja­þings í þing­kosn­ing­unum í nóv­em­ber fyrir þriðja kjör­dæmi í New York sem sam­anstendur af íbúum í hluta Queens og Long Island. Skömmu fyrir jól birti New York Times umfjöllun þar sem greint var frá því að Santos laug til um starfs­reynslu og menntun á fer­il­skrá sinni og lagði mikla áherslu á í kosn­inga­bar­átt­unni.   

Santos hefur við­ur­kennt að hafa hvorki unnið fyrir fjár­fest­inga­bank­ann Goldman Sachs né Citigroup. Þá við­ur­kenndi hann einnig að hafa ekki lokið háskóla­prófi þó fram komi fram á fer­il­skrá hans að hann hafi verið útskrif­ast með hæstu ein­kunn úr Baruch-háskóla og lokið M.B.A.-gráðu við New York-háskóla. Hvorugt er satt. 

Í kosn­inga­bar­átt­unni opn­aði hann sig um móð­ur­miss­inn og sagði móður sína hafa lát­ist í hryðju­verka­árásinni 11. sept­em­ber 2001. Hið rétta er að móðir hans lést árið 2016. Þá sagð­ist Santos vera gyð­ingur en hefur nú við­ur­kennt að hann er kaþ­ólikki. Santos útskýrði mál sitt með því að segj­ast vera „gyð­ing­leg­ur“ þar sem slíkan bak­grunn væri að finna í móð­ur­fjöl­skyldu hans.

Lygar Santos eru nú rann­sak­aðar sem glæp­sam­legt athæfi af hér­aðs­sak­sókn­ara í Nassau-­sýslu í New York-ríki sem og af alrík­is­yf­ir­völdum. Yfirvöld í Brasilíu hafa einnig tekið upp eldri rann­sókn frá 2008 þar sem Santos er grun­aður um að hafa stolið ávís­ana­hefti og notað.  

Santos við­ur­kennir að hafa fegrað feril sinn og gert mis­tök en hann ætlar ekki að segja af sér þing­mennsku. „Ég er ekki glæpa­mað­ur.“

Santos veitti Fox News við­tal í byrjun árs þar sem hann ræddi við Tulsi Gabbard, fyrr­ver­andi þing­mann Demókra­ta­flokks­ins. Gabbard spurði Santos meðal ann­ars hvort hann skamm­að­ist sín ekki? Santos svar­aði ekki en sagð­ist „geta sagt það sama um Demókra­ta­flokk­inn og Joe Biden Banda­ríkja­for­seta sem hefur verið að ljúga að banda­rísku þjóð­inni í 40 ár“.

 Kjósendur geta endurskoðað ákvörðun sína eftir tvö ár

Þrátt fyrir þrýst­ing frá fyrrum banda­mönnum Santos innan flokks­ins um að segja af sér þing­mennsku er Kevin McCarthy, nýkjör­inn for­seti full­trúa­deild­ar­innar, stað­ráð­inn í að styðja Santos áfram sem þing­mann. Auk þess hefur hann lofað honum sæti í einum af þing­nefndum full­trúa­deild­ar­innar.

„Kjós­end­urnir kusu hann til að gegna þing­störfum,“ segir McCarthy. „Hann þarf að sinna kjós­endum og kjós­endur geta ákveðið sig að nýju eftir tvö ár.“ 

Formaður nefndar Repúblikana­flokks­ins í Nassau-sýslu, Joseph G. Cairo Jr., segir Santos hafi misst stuðn­ing allra repúblik­ana í kjör­dæm­inu. Kosn­inga­her­ferð Santos var, að mati Cairo, full af „svikum, lygum og til­bún­ingi“. 

„Hann van­virti full­trúa­deild­ina og við teljum hann ekki til­heyra þing­manna­hópi okkar,“ sagði Cairo á blaða­manna­fundi á mið­viku­dag þar sem hann krafð­ist afsagnar Santos fyrir hönd nefndar Repúblikana­flokks­ins í Nassau-sýslu. 

Santos brást við á Twitter þar sem hann sagð­ist harð­á­kveð­inn í að þjóna kjós­endum sínum, en „ekki flokknum og stjórn­mála­mönn­unum“. 

„Ég mun EKKI segja af mér!“ 

Hefur ekki áhyggjur af formlegum kvörtunum

Tvær form­legar kvart­anir hafa verið lagðar fram gegn Santos. Tveir þing­menn Demókra­ta­flokks­ins hafa lagt fram beiðni um að þverpóli­tísk nefnd full­trúa­deild­ar­innar rann­saki hvort Santos hafi brotið gegn lögum þegar hann skil­aði upp­lýs­ingum um fjár­hags­lega hags­muni eftir til­skyldan frest og án lykil­upp­lýs­inga um banka­inni­stæður og fyr­ir­tækja­rekstur. 

Santos segir þing­mönnum frjálst að gera það sem þeir vilja, hann hafi ekki áhyggjur þar sem hann „hefur ekki gert neitt sið­ferði­lega rangt“. 

Þá hafa eft­ir­lits­sam­tökin Campaign Legal Center sakað Santos um að nýta fjár­magn sem merkt var kosn­inga­her­ferð hans í per­sónu­leg útgjöld sem og að gera ekki grein fyrir upp­runa fjár­magns sem hann nýtti í kosn­inga­bar­átt­unni. Eft­ir­lits­sam­tökin hafa óskað eftir því að alrík­is­kjör­nefnd Banda­ríkj­anna (FEC) taki kosn­inga­bar­áttu Santos til rann­sóknar. 

Þingforsetinn styður Santos en ætlar að stjórna ferðinni

 McCarthy forð­að­ist að tjá sig um Santos á meðan hann barð­ist fyrir því að ná kjöri sem for­seti full­trúa­deild­ar­innar. Eftir fjóra langa daga í þingsalnum í síð­ustu viku og fimmtán atkvæða­greiðslur tókst það loks. Þing­for­seti er vana­lega kos­inn án vand­kvæða með einni atkvæða­greiðslu en inn­an­flokkserjur og átök innan þing­flokks repúblik­ana flæktu málin. Þetta er í fimmt­ánda sinn í 234 ára sögu full­trúa­deild­ar­innar sem fleiri en eina umferð þarf til að kjósa þing­for­seta. Fara þarf 164 ár aftur í tím­ann til að finna svip­aða stöðu en þá þurfti 44 umferðir til að kjósa þing­for­seta.

Þó McCarthy styðji Santos ætlar hann ekki að láta allt eftir honum. Santos fékk til að mynda ekki sæti í fjár­laga­nefnd full­trúa­deild­ar­innar sem hann sótt­ist eftir og á enn eftir að fá úthlut­uðu sæti í þing­nefnd. Aðspurður hvort Santos fengi sæti í einum af áhrifa­meiri nefndum full­trúa­deild­ar­innar var svar McCarthy ein­falt: „Nei.“  

Þónokkrir þing­menn repúblik­ana virð­ast vera á báðum áttum með stöðu Santos. Ken Buck, þing­maður repúblik­ana í Colorado, segir gjörðir Santos alvar­legar en sakar demókrata um að hafa brugð­ist. „Ef demókratar hefðu kannað málið frekar og afhjúpað það hefðu kjós­endur haft frek­ari upp­lýs­ingar,“ segir Buck.  

Ólíklegt verður að telj­ast að Santos segi af sér þing­mennsku en ef það ger­ist þarf að efna til sér­stakrar kosn­ingar um þing­sæti hans. Formaður nefndar repúblik­ana í Nassau-sýslu segir of snemmt að til­nefna mögu­lega fram­bjóð­endur til að fylla sæti Santos. Santos er samt sem áður ekki vel­kom­inn í höf­uð­stöðvar Repúblikana­flokks­ins í New York þó svo að hann sitji enn á þingi. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár