Afhjúpandi fyrir hugmyndir samfélagsins um konur

Gyða Margrét Pét­urs­dóttir, pró­fessor í kynja­fræði, svarar því hvað við sjáum á myndum frá Vest­manna­eyjum þar sem Edda Falak var gerð að svartri tröllskessu. Hún segir þetta þekkt stef í kynja­bar­átt­unni.

Afhjúpandi fyrir hugmyndir samfélagsins um konur

Það sem blasir við mér þegar ég les fréttir af þessu máli er hvað þetta er end­ur­tekið efni. Ef þú skoðar sögu kvenna­bar­átt­unnar, til dæmis bar­áttu súf­fra­gett­anna í Bret­landi, þá voru teikn­aðar af þeim skop­myndir þar sem þær voru sýndar sem hálf- eða altrölls­legar. Það er gam­alt þrástef þegar kemur að bar­áttu kvenna og ann­arra und­ir­skip­aðra hópa fyrir mann­rétt­indum og félags­legu rétt­læti að afmennska það.

Sama stef birt­ist með mild­ari hætti gagn­vart Rauð­sokk­unum þegar þær voru kall­aðar mussu­kell­ingar til að draga úr kven­leika við­kom­andi og þar með lög­mæti þeirra sem mann­eskju. Rauði þráð­ur­inn er alltaf sá sami. Að afmennska konur sem beita sér fyrir rétt­læti. Sama hvort það eru súf­fra­gett­urnar, rauð­sokkur, kvenna­lista­kon­urnar sem þóttu svo ljótar, þetta er alltaf sama stefið.

Femínísk bar­átta byggir á meng­andi kven­leika og við höfum ítrekað séð að við­brögðin við meng­andi kven­leika eru hót­anir um kyn­ferð­is­of­beldi, sem má rekja til nauðg­un­ar­menn­ingar. Þannig að það er ótrú­lega áhuga­vert hvernig við­brögðin við meng­andi kven­leika verður afhjúp­andi fyrir hug­myndir sam­fé­lags­ins um konur, að það versta sem kona geti verið sé að vera ljót. Skessa. 

Annað sem er áhuga­vert í þessu er hvernig ein kona er tekin fyrir í einu. Núna er farið að skila sér það sem femínísk bar­átta hefur kennt okkur  að einar eru konur teknar fyrir, hver á fætur annarri. Við sáum hvernig Sóley var tekin fyrir, síðan Hildur Lilli­endahl og núna Edda Falak. Þessi bar­átta hefur kennt okkur að kon­urnar í Öfgum koma núna fram í femínísku banda­lagi en ekki einar. Þannig getum við byggt á þess­ari reynslu. Af því að það er sífellt verið að leit­ast eftir því að splitta okkur, taka eina fyrir og þá mynd­ast þessi stemn­ing sem við sjáum í Vest­manna­eyjum. Hvort sem það er með­vitað eða ekki eru skila­boðin þau að konur eigi að hafa sig hægar því ann­ars séu þær næstar. Þetta er víti til varn­aðar. 

Þegar og ef gagn­rýni rís er klass­ískt að bregð­ast við með því að þetta hafi verið grín. Enginn hafi áttað sig á því að þetta væri meið­andi fram­koma. Grín hefur löngum verið notað sem skálka­skjól fyrir meið­andi orð­ræðu, þannig að í við­brögð­unum við þessum gjörn­ingi í Vest­manna­eyjum sjáum við enn eitt stefið sem við þekkjum mjög vel. Það er annað end­ur­tekið efni. 

Allt leggst þetta ofan á hót­anir sem Edda Falak hefur þurft að sæta um kyn­ferð­is­of­beldi, sem er líka þekkt aðferð gegn jafn­rétt­is­bar­átt­unni. Til að spyrna við þeirri bar­áttu hefur konum oft verið hótað kyn­ferð­is­of­beldi, en það er líka gert til þess að efla sam­stöðu á meðal karla. Með því skap­ast sam­trygg­ing á meðal þeirra og böndin styrkj­ast.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HH
    Hildur Harðardóttir skrifaði
    Góð grein. Einmitt þetta held ég að sé gert. Rétt eins og rándýrin sem hrekja fórnina úr hjörðinni. Við konur skulum standa saman, allar sem ein.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár