Íslandsbanki talinn hafa brotið lög við söluna á sjálfum sér

Íslands­banki þarf að gang­ast við broti, upp­lýsa það að fullu og greiða stjórn­valds­sekt ef bank­inn á að ná sátt við Fjár­mála­eft­ir­litið. Hann fékk nið­ur­stöðu frum­mats eft­ir­lits­ins afhenta fyrir ára­mót.

Íslandsbanki talinn hafa brotið lög við söluna á sjálfum sér
Birna Ein­ars­dóttir er banka­stjóri Íslands­banka Bankinn hefur ekki viljað segja hvaða lög og reglur hann er tal­inn hafa brotið. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands telur að Íslands­banki hafi gerst brot­legur við lög í hlut­verki sínu sem sölu­ráð­gjafi við fram­kvæmd á útboði Banka­sýslu rík­is­ins á 22,5 pró­sent eign­ar­hluta rík­is­ins í bank­anum sem fram fór 22. mars í fyrra. 

Íslands­banki stað­festi að hann hafi fengið frum­mat Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, þar sem þessi nið­ur­staða er kynnt, í hendur í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands sem birt var síðla dags 9. jan­úar. Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Heim­ildin hefur aflað var Íslands­banka gert við­vart um inni­hald frum­mats Fjár­mála­eft­ir­lits­ins fyrir ára­mót. 

Í enskri útgáfu til­kynn­ing­ar­innar til Kaup­hallar kom fram að Íslands­banki hefði ein­hliða óskað eftir við­ræðum við eft­ir­litið um að ljúka mál­inu með sátt og að Fjár­mála­eft­ir­litið hafi þegar fall­ist á að eiga þær við­ræður. Hvorugt kemur fram í íslensku útgáfu til­kynn­ing­ar­innar. 

Hvorki Íslands­banki né Fjár­mála­eft­ir­litið hafa viljað greina frá því hvaða lög eft­ir­litið telur bank­ann hafa brotið.

Þurfa að gangast við brotum og upplýsa um þau að fullu

Sátta­við­ræður fara fram á grund­velli reglna frá árinu 2019 um heim­ildir Fjár­mála­eft­ir­lits­ins til að ljúka málum með slíkum hætti. Í sátt felst að máls­að­ili, í þessu til­felli Íslands­banki, gengst við að hafa brotið gegn ákvæðum laga eða ákvörð­unum Fjármála­eft­ir­lits­ins, upp­lýsi að fullu um brotið og geri sam­komu­lag við stofn­un­ina um til­tekna sektar­greiðslu. Auk þess þarf að liggja fyrir að bank­inn hafi þá þegar látið af þeirri hátt­semi sem braut gegn lögum og að hann hafi gert við­eig­andi úrbætur.

Heim­ildin til sáttar nær ekki til þess sem kall­ast meiri háttar brot, en það eru brot sem refsi­við­ur­lög, fang­els­is­vist, liggja við. Brot telst meiri háttar ef það lýtur að veru­legum fjár­hæðum, ef verkn­aður er fram­inn með sér­stak­lega víta­verðum hætti eða við aðstæður sem auka mjög á sak­næmi brots­ins.

Sektir sem Fjár­mála­eft­ir­litið getur lagt á geta numið frá 100 þús­und krónum og upp í 800 millj­ónir króna. Sektir sem lagðar eru á lög­að­ila geta þó verið mun hærri, eða allt að tíu pró­sent af heild­ar­veltu sam­kvæmt síð­asta sam­þykkta árs­reikn­ingi. Rekstr­ar­tekjur Íslands­banka árið 2021 voru 50,2 millj­arðar króna, auk þess sem virð­is­breyt­ing fjár­eigna var þrír millj­arðar króna. Hámarks­sekt sem hægt er að leggja á bank­ann er því yfir fimm millj­arðar króna. Miðað við þær sektir sem Fjár­mála­eft­ir­litið hefur lagt á vegna brota und­an­farin ár er þó lík­legt að sekt Íslands­banka verði langt undir hámark­inu. 

Eft­ir­litið lauk fjórum við­ur­laga­málum með sam­komu­lagi um sátt við máls­að­ila árið 2021 og hóf rann­sókn á 24 málum sem komu upp á verð­bréfa­mark­aði. Í þeim málum sem lauk á því ári með sam­komu­lagi um sátt var hæsta sektin upp á 18 millj­ónir króna í máli Kviku banka sem sner­ist um sölu og mark­aðs­setn­ingu á til­teknum skulda­bréfa­flokki. 

Hæsta sektin sem Fjár­mála­eft­ir­litið hefur lagt á fjár­mála­fyr­ir­tæki á und­an­förnum árum er 88 millj­óna króna sekt sem lögð var á Arion banka á árinu 2020. Brotið fól í sér að upp­lýs­ingar um yfir­vof­andi upp­sagnir bank­ans láku í fjöl­miðla og birt­ust þar áður en mark­aðnum var greint frá þeim. Um var að ræða inn­herj­a­upp­lýs­ingar sem gátu haft verð­mynd­andi áhrif á gengi bréfa í Arion banka. Bankinn sætti sig ekki við nið­ur­stöð­una og stefndi Fjár­mála­eft­ir­lit­inu fyrir dóm­stóla. Eft­ir­litið var sýknað af kröfum hans í apríl í fyrra en Arion banki áfrýj­aði þeirri nið­ur­stöðu til Lands­réttar. 

Þegar Fjár­mála­eft­ir­litið komst að nið­ur­stöðu sinni um brot Arion banka var birt ítar­leg ákvörðun á alls 18 blað­síðum. Í henni var farið yfir máls­at­vik, máls­með­ferð eft­ir­lits­ins, laga­grund­völl og sjón­ar­mið bank­ans áður en greint var frá ítar­lega rök­studdri nið­ur­stöðu á alls níu blað­síðum. 

Hæfi fjárfesta ekki kannað

Þótt ekki sé greint frá því í til­kynn­ingu Íslands­banka hvaða lög og reglur bank­inn á að hafa brotið gegn liggja fyrir upp­lýs­ingar um hvað Fjár­mála­eft­ir­litið var að rann­saka. 

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um söl­una á 22,5 pró­sent hlut í Íslands­banka í mars síð­ast­liðnum kom til að mynda ýmis­legt fram um þau mál tengd bank­anum, sem var einn af þremur umsjón­ar­að­ilum Banka­sýslu rík­is­ins í sölu­ferl­inu, sem ratað hafa inn á borð Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Þar var meðal ann­ars greint frá því að fjár­festar sem voru ekki í við­skiptum við Íslands­banka fram að sölu­deg­inum hafi haft mögu­leika á að sækja um og eftir atvikum fá flokkun hjá honum sem hæfir fjár­festar meðan á söl­unni stóð. Í skýrsl­unni segir: „Að auki var horft til full­yrð­inga frá fjár­fest­unum sjálfum um að þeir teld­ust hæfir fjár­festar en bank­inn þurfti að meta upp­lýs­ingar þess efnis sjálf­stætt. Rík­is­end­ur­skoðun kann­aði ekki hvernig þessu var háttað hjá öðrum umsjón­ar­að­il­um, sölu­ráð­gjöfum eða sölu­að­ilum við mat þeirra á hæfum fjár­fest­um. Þessi hluti sölu­ferl­is­ins sætir eft­ir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands.“

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar segir að Banka­sýslan hafi metið það svo að reglu­verk fjár­mála­mark­að­ar­ins væri með þeim hætti að slíkar innri reglur umsjón­ar­að­ila, sölu­ráð­gjafa og sölu­að­ila kæmu í veg fyrir hags­muna­á­rekstra í söl­unni. „Ljóst er að innri reglur Íslands­banka komu ekki í veg fyrir slíkt.“

Íslands­banki hefur ekki viljað svara því hversu margir fjár­festar fengu flokkun sem „hæfir fjár­festar“ hjá bank­anum á þeim klukku­tímum sem sölu­ferlið stóð yfir né viljað upp­lýsa um fyrir hversu háa fjár­hæð þeir sem fengu flokkun á meðan að tekið var við til­boðum í hlut rík­is­ins í bank­anum keyptu. Hann seg­ist þó hafa gert breyt­ingar á innri reglum og ferlum sem eigi að koma í veg fyrir að það sem gerð­ist, ger­ist aftur. 

Veltan þurrkaðist út í fjóra daga

Rík­is­end­ur­skoðun fjallað einnig um að velta með hluta­bréf í Íslands­banka hafi verið nán­ast engin síð­ustu tvo dag­ana áður en Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra til­kynnti um það eftir lokun mark­aða þann 18. mars 2022 að ríkið myndi selja hlut í bank­anum næst þegar mark­aðs­að­stæður yrðu hag­stæð­ar. Dag­anna á und­an, þann 15. og 16. mars, hafði verið nálægt fimm millj­arða króna velta með bréf í bank­anum dag­lega. Þrátt fyrir að velta með bréf Íslands­banka hafi hrunið þessa daga í mars þá voru umtals­verð við­skipti með bréf í Arion banka, sem er svip­aður að stærð og umfangi og Íslands­banki. 

Þann 21. mars, sem var mánu­dag­ur, var ákveðið að hefja mark­aðs­þreif­ingar um sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka og láta nokkra aðila fá inn­herj­a­upp­lýs­ingar um söl­una. Ákveðið var að hefja inn­lendar þreif­ingar meðal sjö líf­eyr­is­sjóða og hafði Íslands­banki umsjón með þeim. Þessir aðilar fengu staðl­aðan tölvu­póst frá bank­anum og í kjöl­farið inn­herj­a­upp­lýs­ingar sem byggðu á fyr­ir­fram sam­þykktu verk­lagi. Banka­sýsla rík­is­ins  hefur full­yrt að ekk­ert hafi lekið út um sölu­á­formin fyrr en til­kynnt var um þau opin­ber­lega eftir lokun mark­aða dag­inn eft­ir, þann 22. mars. Samt sem áður voru við­skipti með bréf í Íslands­banka lítil sem engin dag­ana tvo eftir að Banka­sýslan greindi völdum fjár­festum frá því að til stæði að selja rík­is­banka, á sama tíma og velta með bréf í Arion banka var áfram umtals­verð. 

Þegar Rík­is­end­ur­skoðun átt­aði sig á þess­ari stöðu, að velta með bréf í Íslands­banka hefði dreg­ist svona mikið saman hvort sínum megin við helg­ina áður en hlut­ur­inn var seldur, þá taldi stofn­unin að hún þyrfti að vekja athygli Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands á þessu. Það gerði hún á fundi í ágúst síð­ast­liðn­um.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Þetta ætti ekki að koma nokkrum manni á óvart.

    Enginn mun reynast ábyrgur - frekar en fyrri daginn :-) :-)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár