Hlutur Vísis-systkinanna í Síldarvinnslunni 18 milljarða virði

Þegar greint var frá kaupum Síldar­vinnslunnar á Vísi í fyrra­sumar kom fram að sá hluti kaup­verðsins sem greiddur yrði með hluta­bréfum væri 14 milljarðar króna. Síðan þá hefur hluturinn hækkað um fjóra milljarða króna. Verð­mætasta eignin sem Síldar­vinnslan keypti var 3,54 prósent hlutdeild af úthlutuðum fisk­veiðikvóta.

Í júlí var greint frá því að systkinin sex sem áttu útgerðar­fyrirtækið Vísi í Grindavík hefðu ákveðð að selja það til Síldar­vinnslunnar. Sölu­verðið var sagt 31 milljarður króna, að meðtöldu yfirtöku skulda upp á ellefu milljarða króna. Sex milljarðar króna áttu að greiðast í reiðufé svo hægt yrði að gera upp skatt­greiðslur vegna kaupanna. 

Systkinin sex; Pétur, Páll, Svanhvít, Margrét, Kristín og Sólný Pálsbörn, fengu auk þess rétt um átta prósent hlut í Síldar­vinnslunni við söluna. Mest fékk Pétur, sem er forstjóri Vísis, eða um 1,6 prósent hlut. Hin systkinin fengu 1,3 prósent hvert. Í tilfelli Páls skiptist sá hlutur milli hans og eiginkonu hans, Guðmundu Kristjáns­dóttur. 

Þegar salan var tilkynnt, með fyrirvara um samþykki hluthafa­fundar og Samkeppnis­eftirlitsins, sagði að virði þess hlutar sem systkinin myndu fá í sinn hlut yrði 14 milljarðar króna.

Síðan þá hefur virði Síldar­vinnslunnar hækkað umtals­vert, og markaðs­virðið er nú um 226 milljarðar króna. Vísis-systkinin fengu hluti sína í Síldar­vinnslunni 1. desember síðastliðinn. Sameiginlegt virði þeirra er nú rétt yfir 18 milljarðar króna. Hluturinn sem þau eiga, og geta nú selt fyrir reiðufé á virkum hlutabréfa­markaði kjósi þau svo, hefur hækkað um fjóra milljarða króna á hálfu ári. 

Kvótinn langverðmætasta eignin

Vísir hagnaðist um 797 millj­ónir króna á árinu 2021 og virði fasta­fjár­muna (fast­eign­ir, skip, vélar og tæki) var 5,3 millj­arða króna í lok þess árs, samkvæmt ársreikningi. Ljóst er að það var eitthvað annað sem Síldar­vinnslan var að borga á fjórða tug milljarða króna fyrir en rekstur, skip og tæki.

Helstu bók­færðu eignir Vísis utan fasta­fjár­muna voru afla­heim­ildir sem metnar voru á 90,9 millj­­ónir evra, alls um 13,4 millj­­arða króna á árs­loka­­gengi ársins 2021. Afla­heim­ildir eru nær und­an­­tekn­ing­­ar­­laust van­­metnar í reikn­ingum sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja, en fyrir við­­skiptin var heild­­ar­­upp­­­lausn­­ar­virði úthlut­aðs kvóta á Íslandi áætlað um 1.200 millj­­arðar króna, miðað við kaup Síld­­ar­vinnsl­unnar á útgerð­inni Bergi Hug­in árið 2021. Kaupin á Vísi voru langt undir því verð­i. 

Alls heldur Vísir á 3,54 prósent af öllum úthlutuðum kvóta samkvæmt nýbirtum tölum Fiskistofu um samþjöppun í sjávar­útvegi. 

Blokk með næstum fjórðung alls kvóta

Eftir að kaupin á Síldar­vinnslunni gengu í gegn var til stærsta útgerð á Íslandi, ef miðað er við úthlutaðan kvóta í aflamarks­kerfinu. Síld­ar­vinnslan átti fyrir tvö dótt­ur­fé­lög í útgerð, Berg-Hug­in og Berg ehf. Sam­an­lögð afla­hlut­deild þess­ara fjög­urra útgerða er 12,11 pró­sent og rétt yfir lög­bundnu tólf pró­sent hámarki sem tengdir aðilar mega eiga. 

Stærstu eig­endur Síld­­­­­ar­vinnsl­unnar eru Sam­herji og félagið Kjálka­­­­­nes, sem er í eigu sömu ein­stak­l­inga og eiga útgerð­ina Gjögur frá Gren­i­vík. Þar er meðal ann­­­­­ars um að ræða Björgólf Jóhanns­­­­­son, sem var um tíma annar for­­­­­stjóri Sam­herja, og fólk sem teng­ist honum fjöl­­­­skyld­u­­­­bönd­um, meðal ann­­­ars syst­k­ini hans. Auk þess á Kald­bak­­­­­­­ur, félag í eigu Sam­herja, 15 pró­­­­­­­sent hlut í öðru félagi, Eign­­­­­ar­halds­­­­­­­­­fé­lag­inu Snæfugli, sem á hlut í Síld­­­­­­­ar­vinnsl­unni. Á meðal ann­­­­­arra hlut­hafa í Snæfugli er Björgólf­­­­­ur. Samtals eiga þessir aðilar 49,7 prósent í Síldar­vinnslunni eftir hlutafjár­aukninguna sem framkvæmd var í fyrir­tækinu til að greiða Vísis-systkinunum.

Forstjóri Samherja, sem á dóttur­fyrirtækin Samherja Ísland og Útgerðar­félag Akureyringa, er Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnar­formaður Síldar­vinnslunnar. 

Þegar talin er saman afla­hlut­deild Sam­herja Ísland, Útgerð­ar­fé­lags Akur­eyr­inga, Síld­ar­vinnsl­unn­ar, Vís­is, Gjög­urs og Bergs-Hug­ins og Bergs (sem eru báðar dótt­ur­fé­lög Síld­ar­vinnsl­unn­ar) þá heldur sú blokk á 23,39 pró­sent úthlut­aðra afla­heim­ilda. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár