991. spurningaþraut: Armadillo á Sprengisandi?

Fyrri auka­spurning:

Hvaða stofnun hefur aðsetur í þessari tilkomu­miklu byggingu á bökkum Thamesár?

***

Aðal­spurningar:

1.  Dýra­tegund ein (raunar nokkrar tegundir) kallast á flestum erlendum málum armadillo. Hvað eru þau dýr kölluð á íslensku?

2.  Armadillo býr núorðið aðeins í tveim heimálfum á heims­kringlunni. Hvaða heims­álfur eru það?

3.  Milli hvaða megin­jökla er Sprengi­sandur?

4.  Morten Harket heitir tónlistar­maður einn. Í hvaða hljómsveit eða tónlistar­flokki gerði hann garðinn frægan á árum áður?

5.  Hvar er garðurinn Hellis­gerði?

6.  Hver gerði Gerði grikk í sumar? Hver gerði Gerði ... hvað?

7.  Hvað heitir fjölmennasta borg Póllands?

8.  En hver er sú næst fjölmennasta þar í landi?

9.  Gudrun Ensslin var kona ein sem var töluvert í sviðs­ljósinu á áttunda áratugnum. Fyrir hvað var hún fræg?

10.  Hvað þýðir orðið íslam?

***

Seinni auka­spurning:

Hver er konan?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Beltisdýr.

2.  Norður- og #uður-Ameríku.

3.  Hofs­jökuls og Vatna­jökuls.

4.  A-ha.

5.  Í Hafnar­firði.

6.  Bommsí bommsí bomm. Sjá hér!

7.  Varsjá.

8.  Kraków.

9.  Hryðju­verk.

10.  Undir­gefni, hlýðni, uppgjöf — í merkingunni að lúta vilja guðs.

***

Svör við auka­spurningum:

Breska leyni­þjónustan eða MI6 hefur aðsetur í húsinu á fyrri myndinni. „Lögreglan“ er ekki rétt svar og „MI5“ heldur ekki.

Á seinni myndinni er Auður Jóns­dóttir rithöfundur.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Hver gerði Gerði bomsí bomm.
    Er bein tilvitnun í Gerði starfsfræðikennara í Þinghólsskóla í Kópavogi á sinum tíma.
    Þar sem Helgi Péturs í Ríó Tríó var einnig kennari í mannkynssögu að mig mynnir.
    En Gerður þessi þótti frekar andstyggileg gribba og var frekar óheppin til andlits lega séð.
    Og því þótti það frekar ótrúlegt að hún skildi hafa getið barn.
    Og það brann á allra vörum að vita hver gæti verið barnsfaðirinn.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár