Posad Pokrov­sky Í níu mán­uði var bær­inn miðja átaka­lín­unnar sem færð­ist lítið til. Bærinn er því gjör­sam­lega í rúst og þak­inn jarð­sprengjum. Sergei átti þar þrjú hús fyrir inn­rás­ina en hefst nú við í hálf­hrundu bak­hússi við það sem eitt sinn var íbúð­ar­hús fjöl­skyldu hans, en er nú rústir einar. Mynd: Óskar Hallgrímsson

„Núna eigum við ekkert“

Íbúar Kherson eru enn að reyna að ná áttum eftir að svæðið var frelsað undan níu mán­aða her­setu Rússa. Enn rignir þó sprengjum yfir svæðið. Hern­að­ar­leg skot­mörk skipta Rússa engu lengur, eins og Óskar Hall­gríms­son komst að á ferð um svæðið.

„Stríðið hefur haft gíf­ur­leg áhrif á mig per­sónu­lega, geð­heilsan mín er ekki í lagi. Ég er með áfallastreitu og pabbi líka. Ég hef misst marga vini í stríð­inu, einn besti vinur minn dó þegar hann var að verja Mariupol. Pabbi var fang­els­aður og pynt­aður af Rússum og dó næstum því.“

Þetta segir hinn 27 ára Olec Poltav­sky. Hann rekur hjálp­ar­sam­tökin Suspilna Ideya, og vinnur að því ásamt 300 öðrum sjálf­boða­liðum að koma hjálp­ar­gögnum inn á nýlega frelsuð svæðin í kringum Kherson-borg eftir níu mán­aða her­nám Rússa.

Þegar stríðið hófst gekk Olec í þjóð­varða­liðið. Þremur mán­uðum síðar varð hann að hætta. Áfallastreita og svæsin dag­leg kvíða­köst henni sam­fara gerðu honum ómögu­legt að stunda frek­ari hernað. Þess í stað ákvað hann að verða að liði á annan hátt og fara í fremstu víg­línu í hjálp­ar­starf í stað hern­aðar.

„Hjartað mitt sagði mér að ég yrði að halda áfram að þjóna land­inu mínu …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SH
    Sveinbjörn Halldórsson skrifaði
    Evrópusambandið leiddi hjá sér stríðsglæpina í Tsétseníu, sem voru líklega þeir verstu frá stríðslokum. Blaðakonan hugrakka Anna Politkovskaya galt fyrir með lífi sínu að upplýsa sannleikann um það djöfullega stríð. Hún var myrt á afmælisdegi Pútíns fyrir framan blokkaríbúð sína. Mynstur glæpanna í Tsétseníu og Úkraínu er um margt líkir. Þeir fyrri sem hafa legið í þagnargildi í áratugi rifjast upp núna þegar þeir eru endurteknir. Leiðtogar Evrópusambandsins skelltu skollaeyrum við stríðsglæpum í Tséteníu en flöðruðu þess í stað eins og hundstíkur upp við einræðisherrann. Pútín mun beita sömu aðferðum í Úkraínu eins og hann gerði í Tséteníu og Sýrlandi. Raunverulegt eðli nútímahernaðar verður sífellt augljósara og þar er Pútín í farararbroddi. Markmiðið er að gera borgirnar óbyggilegar. Þótt orrustur séu háðar á vígvellinum þá eru almennir borgarar helsta skotmarkið.
    2
  • SVS
    Stefán Valdemar Snævarr skrifaði
    Hinir rúSSnesku faZistar sýna sitt rétta eðli í Kherson eins og annars staðar. Svei þeim!
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár