Hvað er sannleikur og hvað er lygi?

Bóka­blaðið bregður áfram á leik að fá fólk með inn­sýn í saka­mál til að dæma glæpa­sögur og nú er það Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, fyrr­ver­andi sak­sókn­ari en núver­andi þing­maður, sem rýnir í blóð­uga bók.

Hvað er sannleikur og hvað er lygi?
Bók

Eitt satt orð

Höfundur Snæbjörn Arngrímsson
Bjartur
395 blaðsíður
Gefðu umsögn

FJÓRAR OG HÁLF STJARNA

Eitt satt orð

Útgef­andi Bjartur

Hvað er sann­leikur og hvað er lygi?

 

Júlía og Gíó mað­ur­inn hennar sigla saman að kvöld­lagi út í Geirs­hólma í Hval­firði. Júlía snýr hins vegar ein til­baka og við­fangs­efni sög­unnar Eitt satt orð er hvað varð um mann­inn hennar þetta kvöld. Gíó virð­ist horf­inn af yfir­borði jarðar. 

 

Spurn­ingin er jafn­framt hvað varð um sam­band Júlíu og Gíó. Eftir hvarfið gerir Júlía upp sögu þeirra saman, sem bæði hófst og lauk á dramat­ískan hátt. Byrjun og endir ást­ar­sög­unnar eiga það líka sam­eig­in­legt að hafa átt sér langan og sér­stakan aðdrag­anda. Upphafið er kannski strax lýsandi um hvernig sögu þeirra lýkur.

 

Það er Júlía sem segir frá. Júlía finnst mér áhuga­verð meðal ann­ars vegna þess að hún er heið­ar­leg gagn­vart sjálfri sér um að hún lýgur. Það hefur hún gert áður og ekki bara í tengslum við hvarfið. Í huga Júlíu virð­ist verk­efnið í kjöl­far þess að mað­ur­inn hennar er horf­inn einna helst vera að segja lög­reglu trú­verð­uga sögu af hvarf­inu. Hún er alltaf með hug­ann við þá sögu sem hún er að segja. Hún leggur sig fram um að fegra sög­una og eftir stendur hugs­unin um hvað veldur þess­ari þörf að fegra og að segja ósatt. Þetta sam­band sann­leika og lygi er heill­andi í sög­unni. 

 

Er um að ræða manns­hvarf eða getur verið að Gíó hafi bara yfir­gefið Júlíu? Var fram­inn glæpur? Jafnvel morð? Að þessu leyti nær sagan saka­mála­rann­sókn vel þar sem lög­regla hefur í upp­hafi engar aðrar upp­lýs­ingar en að kona til­kynnir hvarf manns­ins síns. Lög­regl­unnar er svo að raða saman frá­sögn við stað­reyndir. Hvað er sann­leikur og hvað er lygi?

 

Þegar Júlía til­kynnir lög­reglu um hvarf manns­ins síns hefst leit að Gíó fljót­lega sem og rann­sókn á hvenær Gíó hvarf og hvað gerð­ist. Það er Júlía sem segir frá og hún leggur sig fram um að fegra sög­una. Oft virð­ist hún segja ósatt án þess að þurfa þess bein­línis og eftir stendur hugs­unin hvað veldur þess­ari þörf Júlíu að fegra og að segja ósatt. Þessari til­hneig­ingu sinni deilir hún auð­vitað ekki með lög­reglu en segir hins vegar strax þannig frá að Haraldur sem fær málið til rann­sóknar virð­ist átta sig, enda felst hann starf hans í því að greina á milli sann­leika og lygi. 

 

Haraldur virkar vænn karl og er þol­in­móður, sem er senni­lega einn mik­il­væg­asti eig­in­leiki þeirra sem vinna við að leysa gátur. Hann fer fram af mýkt og ákveðni. Og mér finnst sterkt hvað sagan nær dýnamíkinni í yfir­heyrslu lög­reglu vel. Stíg­and­inn í rann­sókn Haraldar sést í spurn­ingum hans. Þegar á líður er hann far­inn að spyrja spurn­inga sem hann veit svörin við og sýnir Júlíu þannig bæði að hann veit að hún segir ósatt og að hann er að nálg­ast nið­ur­stöðu. Verk­færin sem les­and­inn fær til að leggja mat á þessar spurn­ingar er hvernig Júlía umgengst sann­leik­ann, hvernig hún sér sögu þeirra og önnur sam­skipti. En auð­vitað er sann­leik­ur­inn flókn­ari en svo. Hver er saga Gíó sem virð­ist lítið segja konu sinni?

 

Mér finnst þessi saga ná því svo vel hvernig minn­ingar og karakter geta mótað sann­leik­ann. Og það er ekki alltaf aug­ljóst hvað er hvað er sann­leikur og hvað er lygi. Sagan er heill­andi og það eru sögu­per­són­urnar sömu­leiðis. Bókin hélt mér for­vit­inni allt til enda og fléttan lagð­ist fal­lega undir lokin. Það er les­and­ans að dæma um hvað er satt og hvað ekki.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár