Ímyndunarafli barna gefið byr undir báða vængi

Höfundur er ekki aðeins hæfi­leik­a­ríkur á sviði texta­gerðar en hefur einnig skapað dásam­legar mynd­lýs­ingar í sög­unni.

Ímyndunarafli barna gefið byr undir báða vængi
Bók

Héra­gerði

Ævintýri um súkkulaði og kátínu
Höfundur Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir
Salka
Gefðu umsögn

Barna­bókin Héra­gerði er sjálf­stætt fram­hald Grísa­fjarðar sem var til­nefnd til barna­bóka­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs og Íslensku bók­mennta­verð­laun­anna og var valin besta barna­bók árs­ins 2020 af bók­sölum lands­ins og Morg­un­blað­inu. Því var ég spennt að lesa bók­ina og sjá hvað tví­burarnir Inga og Baldur væru að fást við núna.

Í þetta skipti eru börnin á leið í páska­frí og hlakka til hátíð­ar­dag­anna. Það kemur í ljós að amma þeirra er flutt heim til Íslands og býr nú í Hvera­gerði ásamt hálf­systur móður þeirra. Bók­ar­tit­ill­inn vísar til þess að Ingu heyr­ist að amma hennar búi í Héra­gerði. Börnin hafa fram að þessu ekki kynnst ömmu sinni eða frænku svo þau eru hik­andi við að eyða páska­frí­inu með þeim en heim­sóknin verður heilt ævin­týri eins og margt annað í lífi þeirra.

Per­sónu­sköpun systk­in­anna er aðdá­un­ar­verð og þótt þau séu ólík ríkir mik­ill skiln­ingur á milli þeirra. Baldur er kvíð­inn strákur og nýtur eflaust sam­kenndar hjá …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár