Djöfull í helvíti skotgrafanna

... heimur bók­ar­innar er ein­stakur og gerir lest­ur­inn vel þess virði. Lýs­ing­arnar eru ekki óþarfar, heldur neyða okkur til að horfast í augu við and­styggi­legan heim þar sem nýlendu­hyggja og stríðs­rekstur Evr­ópu­þjóða ganga í eina sæng.

Djöfull í helvíti skotgrafanna
Bók

Á nótt­unni er allt blóð svart

Höfundur David Diop - Þýðandi Ásdís R. Magnúsdóttir
Angústúra
Gefðu umsögn

Angústúra gefur bók­ina út, en hún er sú 21. í áskrift­ar­röð Angústúru. Þetta eru stíl­hreinar og fal­legar litlar kiljur, og á bóka­röðin að færa les­endum „vand­aðar þýð­ingar á áhuga­verðum verkum sem víkka sjón­deild­ar­hring­inn“, og smellpassar Á nótt­unni er allt blóð svart inn í þá lýs­ingu. 

Sagan hefst í skot­gröfum í Þýska­landi í fyrri heims­styrj­öld þar sem senegalski her­mað­ur­inn Alfa verður vitni að dauða vinar síns Mademba, sem er honum meira en bróðir, eins og Alfa klifar á í sög­unni. Þessi atburður hrindir Alfa yfir brún­ina í þegar sturluðu umhverfi skot­graf­anna.

Bókin er stutt en kemur sögu Alfa vel til skila þar sem hann rifjar upp aðdrag­anda ferðar þeirra Mademba frá heima­land­inu í blóð­baðið. Þegar upp er staðið eru það ekki síst klif­anir Alfa á „gvuðsver að“ sem býr fljótt til sterka til­finn­ingu les­and­ans fyrir örvænt­ingu hans, manns sem hefur yfir­gefið allt sem hann þekkir ásamt Mademba til að drepa hvíta …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár