Icelandair endurskoðar kolefnissamstarf og Orkan breytir markaðsefni

Icelandair end­ur­skoðar nú sam­starf sitt við Kolvið og segir kolefn­is­bind­ingu lít­inn hluta af aðgerðum félags­ins í lofts­lags­málum. Orkan boðar breytt mark­aðs­efni um kolefn­is­jöfnun sem seld er við­skipta­vinum fyr­ir­tæk­is­ins, vegna umfjöll­unar um vill­andi fram­setn­ingu Orkunnar og Vot­lend­is­sjóðs.

Icelandair endurskoðar kolefnissamstarf og Orkan breytir markaðsefni
Síðasta aðgerðin Icelandair segir kolefn­is­bind­ingu síð­astu aðgerð­ina sem farið er í til að minnka lofts­lags­á­hrif starf­sem­innar. Aðgerðir sem dragi úr sjálfri los­un­inni séu mik­il­væg­ari. Mynd: Icelandair

Tvö fyr­ir­tæki, sem mark­visst hafa mark­aðs­sett kolefn­is­jöfnun sem svar við meng­andi þjón­ustu og vörum sínum, end­ur­skoða nú fram­setn­ingu og sam­starf um bind­ingu. Þetta kemur fram í svörum bæði Icelandair og Orkunnar við fyr­ir­spurnum Stund­ar­innar um fram­setn­ingu full­yrð­inga í aug­lýs­ingum og á vef­síðum fyr­ir­tækj­anna. Bæði selja þau meng­andi vöru og þjón­ustu sem hefur veru­leg nei­kvæð áhrif á lofts­lag. Það tekur á bil­inu átta til fimm­tíu og fimm ár að ná fram bind­ingu, sem fyr­ir­tækin gefa til kynna að ger­ist nær sam­stundis. 

Binding síðasta úrræðið

„Við höfum því að und­an­förnu unnið að gagn­gerri end­ur­skoðun þess­ara mála og munum kynna frek­ari skref í þess­ari veg­ferð á næst­unni,“ segir Ásdís Ýr Pét­urs­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Icelandair, í skrif­legu svari. Rúmlega 4.300 trjám hafi verið plantað í sam­starfi Kolviðar og Icelandair bara á þessu ári. Samkvæmt við­miðum Kolviðar þýðir það bind­ingu upp á 430 tonn af CO2-ígildistonnum, sem er mæli­ein­ingin sem er notuð …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu