Lítil en samt stór bók eftir Nóbelsverðlaunahafa ársins

Nú má vona að Nóbels­verðlaunin verði til þess að fleiri fram­úrskarandi verk Annie Ernaux reki á fjörur íslenskra lesenda.

Bók

Staðurinn

Höfundur Annie Ernaux Þýðandi: Rut Ingólfsdóttir
Ugla
Gefðu umsögn

Því var almennt tekið af ánægju þegar tilkynnt var nú í haust að franski rithöfundurinn Annie Ernaux hlyti Nóbels­verðlaunin í bókmenntum 2022. Ernaux (f. 1940) nýtur enda virðingar fyrir verk sín sem dansa á mörkum skáld­skapar og ævisagna en einstakt lag hennar á að vinna með hið persónu­lega minni var einmitt tiltekið í rökstuðningi dómnefndar. Í bókinni Staðurinn, sem kom út á íslensku síðastliðið vor í þýðingu Rutar Ingólfs­dóttur og var nýverið endur­prentuð, kristallast öll sterkustu höfundar­einkenni Ernaux. Þessi stutta en innihalds­ríka saga sem fyrst kom út á frum­málinu 1983 er byggð á lífs­hlaupi föður höfundar og hverfist auk þess um tengsl föður og dóttur. Einkar fínlegum dráttum dregur Ernaux upp mynd af hæglátum manni og feðgina­sambandi sem gliðnar um leið og kynslóða- og stétta­bilið eykst.

Konan sem segir okkur söguna er meðvituð um eigið hlutverk og glímuna við að koma slíkri frásögn til skila, þá list að staðsetja …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár