Isavia segir að lögreglan hafi fyrirskipað að myndatökur fjölmiðla yrðu stöðvaðar

Upp­lýs­inga­full­trúi Isavia segir að lög­reglan hafi beðið um að starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins myndu hindra mynda­töku RÚV af vett­vangi þegar fimmtán umsækj­endum um alþjóð­lega vernd var flogið til Grikk­lands. „Isavia harmar að það hafi gerst í nótt og biðst afsök­unar á því,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Isavia segir að lögreglan hafi fyrirskipað að myndatökur fjölmiðla yrðu stöðvaðar
Frá aðgerðum Lög­reglan safn­aði saman fimmtán umsækj­endum um alþjóð­lega vernd á hótel í Hafn­ar­firði í gær, þaðan sem það var svo flutt í rútum til Kefla­vík­ur­flug­vallar þar sem leiguflug­vél á vegum stjórn­valda beið til að fljúga fólk­inu til Grikk­lands. Mynd: Sema Erla

Lög­reglan fór fram á það við starfs­fólk Isavia að komið yrði í veg fyrir mynda­tökur fjöl­miðla af brott­vísun fimmtán ein­stak­linga af land­inu í nótt. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu Isavia þar sem beðist er afsök­unar á hátta­lag­inu. „Að mati Isavia er það ekki hlut­verk örygg­is­gæslu flug­vall­ar­ins að hindra störf fjöl­miðla. Isavia harmar að það hafi gerst í nótt og biðst afsök­unar á því. Isavia mun fara yfir þessa fram­kvæmd með lög­reglu,“ segir í yfir­lýs­ingu frá upp­lýs­inga­full­trúa fyr­ir­tæk­is­ins.

RÚV greindi frá því í morgun að starfs­fólk Isavia hafi komið fyrir bílum sem búnir voru flóð­ljósum gegnt blaða­mönnum mið­ils­ins til að koma í veg fyrir að hægt væri að mynda aðgerðir lög­regl­unnar. Þetta var gert að beiðni lög­regl­unnar.

„Þegar aðgerðin stóð yfir fylgdi starfs­fólk örygg­is­gæsl­unnar fyr­ir­mælum lög­reglu. Meðal þess sem lög­regla fór fram á var að komið yrði í veg fyrir mynda­tökur af lög­reglu­að­gerð­inni. Það er ekki hlut­verk s …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HMH
    Hildur María Hansdóttir skrifaði
    vanhæf ríkisstjón
    1
  • RS
    Ragnar Sigurðsson skrifaði
    Mér finnst með eindæmum að þetta skuli ekki vera aðalfrétt Stundarinnar. Hér eru fasískar aðgerðir yfirvalda gegn varnarlausu fólki og blaðamönnum leyfðar. Hef á tilfinningunni að sumir stjórnmála- og embættismenn vilji vera í friði fyrir umfjöllun almennings og fjölmiðla. Ég vil vita hvaða yfirmenn Isavia leyfðu aðförina gegn fjölmiðlafólkinu og ég vil vita hver er ábyrgur fyrir skepnuskapnum gegn flóttafólkinu. Stundin: Ég vil nöfn!!
    2
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Skammarlegt!
    1
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ég skammast mín fyrir að vera íslendingur. Að þurfa að teljast samlandi fólks sem vill fsb væða löggæslu og dómsmál á Íslandi. Hvernig líður þeim sem voru látnir vinna þessi verk, eru þeir sáttir eða er kannski biturt að vera notaður sem SA sveit. Nú þurfa margir að horfa í spegil og gera upp við sig. Ég er sjálfur smeykur, það vekur ugg að sjá landið þróast með hverju árinu nær fasisma.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár