987. spurningaþraut: Kastvopn með óvenjulegan eiginleika

Fyrri auka­spurning:

Hvers konar dýr má sjá á myndinni hér að ofan?

***

Aðal­spurningar:

1.  Árið 1929 var nýr stjórn­málaflokkur stofnaður á Íslandi þegar tveir flokkar á þingi runnu saman. Hvað var hinn nýi flokkur kallaður?

2.  Og hvað hét fyrsti formaður þessa nýja flokks?

3.  Tígraí heitir hérað eitt í tilteknu ríki. Þar var fyrir fáeinum árum gerð uppreisn gegn stjórn­völdum í landinu en hún koðnaði niður — í bili að minnsta kosti — seint á nýliðnu ári. Hvaða Afríku­ríki er hér um að ræða?

4.  Frá hvaða landi kemur hinn eini sanni fetaostur?

5.  Hvernig mjólk er uppi­staðan í þeim osti?

6.  Hvaða ríki sprengdi árið 1961 öflugustu kjarnorku­sprengju sem sprengd hefur verið?

7.  Sanna Magdalena Mörtu­dóttir situr í borgar­stjórn Reykja­víkur fyrir ... hvaða flokk eða samtök?

8.  Tónlistar­maður vakti fyrst athygli á unga aldri árið 2020 með laginu I'm Not Supposed to Say This. Síðan hefur tónlistar­maðurinn gefið út lög á íslensku, svo sem Röddin í klettunum, Frosið sólarlag og Annar séns. Hvað heitir þessi tónlistar­maður?

9.  Hvað nefnist kastvopn eitt sem er svo lagað að sé því kastað á réttan hátt þá snýr það aftur til þess sem kastaði?

10.  Í hvaða núverandi ríki var kastvopn þetta þróað?

***

Seinni auka­spurning:

Úr hvaða bíómynd frá 1991 er skjáskotið hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Sjálfstæðis­flokkurinn.

2.  Jón Þorláksson.

3.  Eþíópíu.

4.  Grikk­landi.

5.  Kinda­mjólk. Þess eru dæmi að geita­mjólk sé blandað út í kinda­mjólkina en kinda­mjólk er þó eina rétta svarið hér.

6.  Sovét­ríkin. Rússland dugar að sjálfsögðu ekki.

7.  Sósíalista­flokkinn.

8.  Gugusar — eða Guðlaug Sóley.

9.  Búmerang.

10.  Ástralíu.

***

Svör við auka­spurningum:

Dýrið á efri myndinni er lemúr.

Skjáskotið er úr kvik­myndinni Thelma and Louise.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár