Svavar Pétur Eysteinsson, sem þykir hafa fangað íslenska hversdagsmenningu í gervi popptónlistarmannsins Prins Póló, er látinn, 45 ára gamall, eftir fjögur ár með krabbamein.
Auk tónlistarlegs framlags vann Svavar að fjölda nýsköpunar- og sköpunarverkefna, oft í félagi við eiginkonu sína, Berglindi Häsler.
Í tilkynningu frá Berglindi og öðrum aðstandendum segir að Svavar hafi verið stoltur Breiðhyltingur, gengið í Hólabrekkuskóla og Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Leið hans átti eftir að liggja víðar og um mörg ólík svið. Svavar var sískapandi og oft nýskapandi í nálgun sinni.
Hann var menntaður grafískur hönnuður og ljósmyndari, en færði út kvíarnar og gerðist frumkvöðull í matvælaframleiðslu með framleiðslu og markaðssetningu á grænmetispylsum - Bulsum - og Boppi.
Veggsjöld seldi Svavar og hannaði með eigin textum sem vísuðu til klassísks íslensks hversdagsleika, meðal annars: Líf ertu að grínast? Er of seint að fá sér kaffi núna? Hvar er núvitundin - er hún úti með hundinn? Hafið, ég þekki ekki annað. Hann hafði höfuðstöðvar í Skeifunni, nánar tiltekið í Faxafeni.
Um tíma bjó Svavar með fjölskyldunni á Seyðisfirði og svo á Drangsnesi við Húnaflóa. Vorið 2014 flutti hann ásamt Berglindi og börnum í Berufjörð fyrir austan og stundaði lífræna ræktun, rekstur tónlistar- og kaffistaðar og ferðaþjónustu undir nafninu Havarí.
Árið 2018 greindist Svavar með krabbamein í vélinda sem var haldið niðri með lyfjagjöf á fjórða stigi. Hann lýsti því að hann hefði verið stjarfur fyrsta árið, en hélt síðan áfram að skapa. Fyrir honum var sköpunin lífið og án hennar ekkert líf. Hann lýsti þessu sem svo í viðtali við Kveik á RÚV. „Ég hef bara þessa þörf til að búa eitthvað til og það er bara það sem ég geri frá morgni til kvölds. Sama hvort það sé flík eða málverk eða tónlist eða ljósmynd eða vídeó eða eitthvað. Og það er í rauninni það sem heldur mér á lífi.“
Svavar Pétur lætur eftir sig eiginkonu, Berglindi Häsler, og þrjú börn, Hrólf Stein, Aldísi Rúnu og Elísu.
Athugasemdir