Borguðu 2,6 milljónir fyrir ónýta matsgerð

Kaupendur að jörð í Mosfellsdal greiddu matsmanni 2,6 milljónir króna fyrir að meta galla á fasteignum á jörðinni fyrir dómsmál. Dómari sagði mats­gerðina hins vegar ekki nothæfa en eftir sátu kaupendur með kostnaðinn. Fenginn var annar matsmaður til að leggja mat á sömu galla. Sá rukkaði fyrst 4 milljónir fyrir en krafðist svo 1,2 milljóna króna aukalega ofan á.

Segir gallana verulega
Segir gall­ana veru­lega Jóhannes segir mikla galla vera á hús­unum á jörð­inni. Mynd: Heiða Helgadóttir

Matsmaður sem fenginn var til að meta galla á fasteignum á jörð í Mosfellsdal rukkaði 2,6 milljónir króna fyrir, en matið sem hann framkvæmdi var dæmt ónothæft fyrir héraðs­dómi. Krafa kaupenda í dóms­málinu féll því niður en engu að síður þurftu þeir að greiða fyrir matið. Annar matsmaður sem fenginn var til að gera sömu úttekt gaf út að matið myndi kosta 4 milljónir króna en rétt áður en skila átti matinu inn til dómstóla hækkaði sú upphæð í 5,2 milljónir króna.

Stjórn Matsmanna­félags Íslands segir „grátlegt að ekki hafi tekist betur til í starfi hans [fyrri matmannsins] en raun ber vitni“. Stjórn félagsins harmar jafnframt að „óboðleg vinnu­brögð mats­mannsins hafi bitnað svo illilega á þér,“ í bréfi til kaupanda. Hins vegar hafi félagið enga lögsögu yfir félags­mönnum sínum og geti því ekki beitt sér í málinu. Enginn sinni eftirliti með vinnu matsmanna annar sen sá sem óski eftir …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár