933. spurningaþraut: Hver er þessi skrautbúna kona?

933. spurningaþraut: Hver er þessi skrautbúna kona?

Fyrri auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að ofan er per­sónan Padmé Amidala. Hvar kemur hún við sögu?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Árið 1949 kom til óeirða á Aust­ur­velli í Reykja­vík og beitti lög­reglan bæði táragasi og vara­liði svo­nefndra „hvít­liða“. Hvað var til­efni óeirð­anna?

2.  En hvaða dag urðu þessar óeirðir?

3.  Hvar í Frakk­landi er haldið fræg kvik­mynda­há­tíð á vor­dögum á hverju ári?

4.  Á Ítalíu er líka haldin fræg kvik­mynda­há­tíð en hún stendur aðal­lega í sept­em­ber. Aðal­verð­laun þar heita Gullna ljónið. Í hvaða borg á Ítalíu fer sú kvik­mynda­há­tíð fram?

5.  Við hvaða eðl­is­fræði­legu aðstæður (í tóma­rúmi) er hraði ljóss­ins mestur?

6.  Hvaða milli­nafn not­aði Halldór Laxness um mið­bik ævinnar?

7.  Í hvaða heims­álfu er hæsta fjall heims­ins — utan Asíu?

8.  Ein er sú borg í heimi hér sem tvö ríki kalla höf­uð­borg sína. Hvaða borg er það?

9.  Árið 2003 hófst útgáfa á nýju blaði í Reykja­vík sem komið hefur út allar götur síðan. Það er skrifað á ensku og er einkum ætlað útlend­ingum en margir Íslend­ingar hafa líka gaman af að lesa umfjöllun blaðs­ins um íslenskt sam­fé­lag, skemmt­ana­líf, menn­ingu, mat, tón­list, tísku og fleira. Hvað heitir þetta blað?

10.  Hver er Belsebúb?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þessi ungi dáti?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Innganga Íslands í NATO.

2.  30. mars.

3.  Cannes.

4.  Feneyjum.

5.  Hraði ljóss­ins er alltaf sá sami. Alltaf. Það er ein helsta meg­in­stoð eðl­is­fræði okkar að svo sé.

6.  Kiljan.

7.  Suður-Ameríku.

8.  Jer­úsalem.

9.  Grapewine.

10.  Djöf­ull­inn.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Padmé Amidala er drottn­ing og stjórn­mála­maður sem kemur við sögu í Star Wars-heimum.

Á neðri mynd er Winston Churchill.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár