934. spurningaþraut: Hiti, samba og hemóglóbín

Fyrri auka­spurn­ing: Hver er þessi mik­ils háttar frú?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvar í manns­lík­am­anum finnum við hemó­glóbín?

2.  Eiríkur heit­inn Guð­munds­son var vel met­inn útvarps­maður sem starf­aði til skamms tíma á hvaða útvarps­stöð?

3.  Á hvaða reiki­stjörnu í sól­kerf­inu okkar er mestur hiti?

4.  Hvaða land er einkum tengt samba-dansi?

5.  Hvaða stjórn­mála­maður var utan­rík­is­ráð­herra frá 2013 til apríl 2016 en síðan sjávar­útvegs- og land­bún­aðar­ráð­herra til jan­úar 2017?

6.  Spendýr sem verpa eggjum og hafa enga spena en fæða þó afkvæmi sín á mjólk. Hvað kall­ast svo­leiðis dýr?

7.  Hvar búa þau?

8.  Hljóm­sveit nokkur hætti störfum með við­hafn­ar­tón­leikum 2018 en hafði þá ekki gefið út plötu síðan 2013. Sú hét Glamr og næsta plata á undan hét Upp og niður stig­ann frá 2010. Meðal ann­arra hljóm­platna hljóm­sveit­ar­innar var Þessi þungu högg (1992). Hvað heitir hljóm­sveitin? 

9.  Hver leik­stýrði bíó­mynd­inni Með allt á hreinu?

10.  Hvað heitir sú bíó­mynd frá 1995 þar sem kemur fyrir per­sónan Keyser Söze?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða fáni er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Í blóð­inu. Það er nægi­lega nákvæmt svar.

2.  Rás eitt Rík­is­út­varps­ins.

3.  Venusi.

4.  Brasilíu.

5.  Gunnar Bragi Sveins­son.

6.  Nefdýr. Líka er gefið rétt fyrir breið­nefi og/eða mjónefi.

7.  Í Ástralíu, nær ein­göngu. Mjónefir þekkj­ast þó á Nýju Gíneu.

8.  Sálin hans Jóns míns.

9.  Ágúst Guð­munds­son.

10.  The Usual Suspects.

***

Svör við auka­spurn­ingum: konan er Katrín mikla. Fáninn er Græn­lands.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár