Bað sjúklinga afsökunar á ástandinu á bráðamóttöku

„Nær dag­lega var ég að biðja sjúk­linga og aðstand­endur afsök­unar fyrir hönd okkar á bráða­mót­tök­unni og spít­al­ans,“ segir hjúkr­un­ar­fræð­ingur sem hefur minnkað starfs­hlut­fall sitt á bráða­mót­tök­unni niður í 30 pró­sent vegna álags á deild­inni. 24 hjúkr­un­ar­fræð­ingar hafa sagt upp störfum á bráða­mót­tök­unni í Fossvogi það sem af er ári. Nokkur fjöldi hefur auk þess minnkað starfs­hlut­fall sitt. Teym­is­stjóri við­bragð­steymis bráða­þjón­ust­unnar segir áskorun að reka bráða­mót­tök­una að óbreyttu enda vanti um þriðj­ung hjúkr­un­ar­fræð­inga.

Bað sjúklinga afsökunar á ástandinu á bráðamóttöku
Hjúkr­un­ar­fræð­ingar segja dýr­mætri reynslu kastað á glæ nú þegar 24 hjúkr­un­ar­fræð­ingar hafa hætt störfum á bráða­mót­tök­unni í Fossvogi það sem af er ári Mynd: Ljósmynd/Landspítali/Þorkell

Áttatíu og tveir ein­stak­lingar voru á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans í Fossvogi síð­degis fimmtu­dag­inn 8. sept­em­ber, 60 á bráða­deild­inni og 22 á bráða- og göngu­deild­inni. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar þurftu flestir þeirra að bíða í allt að fimm klukku­stundir eftir því að hitta lækni eða hjúkr­un­ar­fræð­ing.

Í sumar þurftu þau sem biðu á bráða­mót­tök­unni eftir því að vera lögð inn á aðrar deildir að með­al­tali að bíða þar í tæpan sól­ar­hring. Ekki feng­ust upp­lýs­ingar um hversu margir sjúk­lingar voru í þess­ari stöðu fimmtu­dag­inn 8. sept­em­ber, en nýlega var tekin sú ákvörðun að sá sjúk­linga­hópur teldi ekki fleiri en tutt­ugu. Því má gera ráð fyrir að allt að eitt hund­rað sjúk­lingar hafi verið á bráða­mót­tök­unni seinni part­inn í gær.

Þar starfa nú alls 108 hjúkr­un­ar­fræð­ingar í 74 stöðu­gildum en þegar deildin er full­mönnuð er gert ráð fyrir 90 stöðu­gildum hjúkr­un­ar­fræð­inga sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Land­spít­al­anum. Því vantar nú hjúkr­un­ar­fræð­inga í 16 stöðu­gildi en …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Svona vilja auðvaldssleikjurnar í Vinstri Grænum hafa þetta.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár