Baráttan um frönsku kartöflurnar: „Það blasir algjörlega við að tollurinn verndar ekki neitt“

Það fjölgar í hópi þeirra sem kalla eftir afnámi vernd­ar­tolla á franskar kart­öflur. Eina íslenski fram­leið­and­inn til ára­tuga hefur hætt. Toll­arnir vernda því engan, eins og staðan er í dag.

Baráttan um frönsku kartöflurnar: „Það blasir algjörlega við að tollurinn verndar ekki neitt“
Til­boðs­franskar Franskar frá Þykkva­bæjar voru um ára­bil seldar undir heit­inu Til­boðs­franskar. Þær voru þó ekki á neinu til­boði og í dag eru þær heldur ekki einu sinni fáan­legar.

Ekki er hægt að flytja inn franskar kart­öflur nema að greiddir séu háir tollar sem ætlað er að vernda íslenska fram­leiðslu á sömu vöru. Nú er hins vegar svo komið að engin frönsk kartafla er fram­leidd á Íslandi, eftir að Þykkva­bæjar hætti fram­leiðslu sem staðið hafði sam­fleytt í ára­tugi. Minnst fern hags­muna­sam­tök fyr­ir­tækja hafa kallað eftir afnámi þess­ara tolla. 

Enginn til að verndaÓlafur, hjá Félagi atvinnu­rek­enda, segir eng­ann lengur til staðar til að vernda fyrir erlendum frönskum.

„Svandís vís­aði þessu eig­in­lega á Bjarna,“ segir Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, um við­brögð við erindum félags­ins vegna inn­fluttu franskanna sem beint var til bæði mat­væla­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, svar­aði frétta­stofu Sýnar á þann veg að margt í tolla­málum mætti skoða og stjórn­völd mættu vera virk­ari í að laga toll­heimtu að þörfum nútím­ans.

Ráð­herr­ann hefur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu