Misstu allar eigur sínar í eldsvoða

„Öll föt barn­anna, öll leik­föngin þeirra og rúmin okkar allra eru að mestu farin. Og allt hitt, allt í sóti,“ segir Erna Kristín Brynjars­dóttir en hún, sam­býl­is­maður hennar og tvö ung börn þeirra misstu allar eigur sínar þegar kvikn­aði í íbúð sem þau búa í á Ásbrú í Reykja­nesbæ í morgun. Engin slys urðu á fólki.

Misstu allar eigur sínar í eldsvoða

Erna Kristín fór með börnin tvö sem eru tveggja og þriggja ára gömul í leik­skól­ann klukkan níu í morgun. Hún kom aftur heim um tíu mín­útum síðar. „Þá var slökkvi­liðið komin og löggan. Það hafði kviknað í íbúð­inni. Ég sá mik­inn reyk koma út úr svefn­her­berg­is­glugg­anum mínum,“  sagði Erna Kristín þegar Stundin náði tali af henni en hún var þá inni í íbúð­inni að skoða vegs­um­merki og sendi þetta mynd­band:

 

Erna Kristín segir að allar eigur fjöl­skyld­unnar séu ónýtar af völdum reyks, sóts og vatns. „Við vorum að leigja þessa íbúð en erum með heim­il­is­trygg­ingu sem dekkar ein­hvern hluta en við erum als­laus núna. Það er hræði­lega óþægi­leg til­finn­ing,“ segir Erna Kristín.

Erna Kristín, Benedikt Hjalti Sveins­son, sam­býl­is­maður hennar og börnin tvö fengu skjól hjá mömmu Ernu, ömmu barn­anna, en hún býr í nágrenn­inu. „Mér skilst að það hafi kviknað í út frá elda­vél­inni. Það er allt ónýtt. Öll föt barn­anna, öll leik­föngin þeirra og rúmin okkar allra eru farin. Og allt hitt,“ segir Erna Kristín.  

Þakklát fyrir stuðn­ing­innMargt fólk hefur boð­ist til að gefa börnum Ernu Krist­ínar og Bene­dikts, föt, leik­föng og jafn­vel hús­gögn.

Erna Kristín segir að slökkvi­starfið hafi gengið vel. Hún seg­ist vera í áfalli en um leið afar þakk­lát öllu því fólki sem hefur haft  sam­band við fjöl­skyld­una í dag.  „Þetta er fólk úr öllum áttum, ókunn­ugt fólk líka sem er búið að hafa sam­band við okkur og bjóð­ast til að gefa börn­unum föt, leik­föng og jafn­vel hús­gögn. Ég gæti ekki verið þakk­lát­ari,“ segir Erna Kristín.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár